Barnadagurinn - 22.04.1937, Síða 13

Barnadagurinn - 22.04.1937, Síða 13
BARNADAGURINN 1937 13 GötulífeOaGiænaborg Eftir Björn Sigfússon, magister. Reykvísk börn fara margs á mis. Ég ætla ekki að telja það upp, sem þau njóta, ef efni leyfa, umfram flest börn annars staðar á landinu. Ég fullyrði aðeins, að það bæti samt ekki upp það, sem þau skortir á við sveitabörn á góðum heimilum. Störfin og náttúran hjálpast þar að. Á sveitabæjum vinn- ur fólkið saman dag eftir dag, ungir og gamlir. Innanbæjar- störfin eru margbreytt og heimta hagsýni. Útiverkin grípa þó hugann fastar — við lambfé á vorin, ávinnslu, jarðrækt, garðrækt og ullarþvott — heyskap, sem reynir flesta hæfi- leika til hins ýtrasta — göngur og fjárréttir á haustin — og loks frelsi og fásinni vetrarins. Þetta gefur allt saman ævilangar, seiðandi minningar, því að þarna eru lífsbarátta, leikur og svölun á reynsluþorsta barnsins sameinuð í hverj- um atburði. Við íslendingar kunnum ekki enn að lifa í borg, hefir þekktur læknir nýlega sagt með uppeldið í huga. Því verður ekki mótmælt. Skásta úrræðið í smábæ, eins og Reykjavík, er kannski það að búa í bæjarjaðri og reyna jafnhliða bæj- arsollinum að opna augu smábarna sem fyrst fyrir náttúr- unni, kenna þeim þar útileiki og síðar garðrækt, gróðursetja í huga þeirra tryggð við gras og mold. Reykjavík er rík af náttúruskilyrðum. Það skilur maður best í grjótauðn erlendrar stórborgar. Einu sinni reikaði ég um „Söder“, verkamannahverfi Stokkhólms, og dáðist að bænum. Traustlegar, sambyggðar húsaraðir minntu á sam- tök alþýðunnar. Velmegun og samtök mátti lesa út úr hverj- um drætti í svip sumra gatnanna og margri auglýsing kaup- félagsbúðanna. Enn fannst mér þó eitthvað vanta. Það voru grænir blettir. Leikvelli barna gat ég hreint ekki uppgötvað. Bellmansgatan, þar sem skáldið Bellman óx upp forðum í fjölskrúðugum bæjarjaðri og þau systkin fjórtán — hún er orðin steinsteypuauðn. Hvað veldur þessu? — Því svarar 20. öldin eins og hreinustu fjarstæðu: „Hvað veldur! Auðvit- að er borgin byggð fyrir fullorðið fólk, vinnandi fólk, en ekki fyrir börn“. Reykjavík er ekki heldur byggð fyrir börn, og Reykvík- ingar kunna ekki að ala upp borgarbörn. Þetta eru ónota- legar staðreyndir. Bærinn hefir þróast nóg til þess í áttina til virkilegrar borgar. Skipulagsskortur og lóðadýrleiki hindra leikvallagerð. Verkaskipting og vinna, sem er ein- göngu utan heimilis, útiloka að jafnaði, að ungur sonur geti MJÓLKURNEYSLA, framh. af 12. síðu. viðskiptamenn hennar, 5—7 aura afslátt á líter, vil eg taka þetta fram: 1 fyrsta lagi er mjólkurneysla barna í skólum að mjög miklu leyti umframneysla, þar sem reynslan sýnir, að mjólk- urkaup heimila vaxa ekki að sama skapi, eftir að mjólkur- úthlutun er hætt í skólunum. í öðru lagi hlýtur dreifingarkostnaður Samsölunnar að vera sáralítill, þar sem hlut á að máli svo stór neytendahópur. 1 þriðja lagi er mjólkurneyslan í skólum einhver besta aug- lýsing fyrir almennri og aukinni mjólkurneyslu í bænum. Arngrímur Kristjánsson. Vigfús GuBbrandsson & Go. Klæðaverzlun og saumastofa Austurstræti 10 (uppi) Eítir atvikum vel birgir aí íataeínum og öllu til fata. SHELL TRYGGIR YÐUR ÆTÍÐ ÞAÐ BESTA nijn i. bensin \HM I ■ BRENNSLUOLÍUR OG U 1 1 LLLl SMURNINGSOLÍUR — Slcigasbór fyrir börn og fullorðna Stórt og ódýrt úrval. !?J/mnn6ergs6ra>6ur ■ H æ f i I e g Sumarg jöf ungum og öldruðum er góð bók frá Bókaverzl. Sigfúsar Eymundssonar eða Bókabúð Austurbœjar B. E. S., Laugaueg 34.

x

Barnadagurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnadagurinn
https://timarit.is/publication/869

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.