Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1994, Page 64
MYRKVAR 1994
Sólmyrkvar
1. Hringmyrkvi á sólu 10. maí. Hringmyrkvinn sést í Bandaríkjunum.
Kanada og Marokkó. f Reykjavík sést deildarmyrkvi sem hefst kl-
17 14 (nánar tiltekið 17 13,7) en þá er sól hátt á lofti á vesturhimni-
Tunglið færist yfir sól frá vestri til austurs og byrjar að sjást neðar-
lega til hægri á sólkringlunni (kl. 5, ef sólinni er líkt við klukku-
skífu). Þegar myrkvinn er mestur, kl. 18 14, hylur tungl 41% af þver-
máli sólar. Myrkvanum lýkur kl. 19 12. Á Akureyri stendur myrkv-
inn frá kl. 17 15 til kl. 19 08.
2. Almyrkvi á sólu 3. nóvember. Sést í Suður-Ameríku.
Tunglmyrkvar
1. Deildarmyrkvi á tungli 25. maí. Tungl er lágt í suðri frá Reykjavík
þegar hálfskugginn (mjög daufur) byrjar að færast yfir það kl. 01 18-
Dimmur alskugginn fylgir á eftir kl. 02 37. Þegar myrkvinn er mest-
ur, kl. 03 30, nær alskugginn yfir fjórðung af þvermáli tungls. Tungl
sest f Reykjavík kl. 04 09, skömmu áður en það er laust við alskugg-
ann.
2. Hálfskuggamyrkvi á tungli 18. nóvember. Hálfskugginn byrjar að
færast yfir tunglið kl. 04 26. Þegar myrkvinn er mestur, kí. 06 44,
hylur skugginn 91% af þvermáli tungls. Myrkvanum lýkur kl. 09 02.
Tungl er á vesturhimni í Reykjavík meðan myrkvinn varir. Þess ber
að geta að hálfskugginn er mjög daufur og myrkvar af þessu tagi ÞV1
mun tilkomuminni en alskuggamyrkvar.
Stjörnumyrkvar
Stjörnumyrkvi verður þegar tungl gengur fyrir stjörnu frá jörðu séð.
Hverfur þá stjarnan bak við austurrönd tungls en kemur aftur í ljós við
vesturröndina. Tunglið er um það bil klukkustund að færast breidd
sína til austurs miðað við stjörnurnar, þannig að myrkvinn getur staðið
svo lengi. Að jafnaði sést fyrirbærið aðeins í sjónauka.
I töflunni á næstu síðu eru upplýsingar um alla helstu stjörnumyrkva
sem sjást munu hér á landi á þessu ári. Tímarnir, sem gefnir eru upp “
tíunda hluta úr mínútu, eru reiknaðir fyrir Reykjavík. Annars staðar a
landinu getur munað nokkrum mínútum. Nöfn stjarnanna eru ýnust
dregin af latneskum heitum stjörnumerkja eða númeri í stjörnuskra.
Þannig merkir p Taur stjörnuna Muj (grískur bókstafur) í stjörnu-
merkinu Taurus (Nautið), en ZC vfsar til stjörnuskrárinnar Zodiacal
Catalogue. Með birtu er átt við birtustig stjörnunnar, sbr. bls. 68.1 aft'
asta dálki er sýnt hvort stjarnan er að hverfa (H) eða birtast (B) °v
hvar á tunglröndinni það gerist. Tölurnar merkja gráður sem reiknast
frá norðurpunkti tunglskífunnar (næst pólstjörnunni) til austurs. 0 ef
nyrst á tunglinu, 90° austast, 180° syðst og 270° vestast.
(62)