Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1994, Síða 86
MÆLIEININGAR
f eftirfarandi yfirliti eru einingar hins alþjóðlega einingakerfis (SI)
auðkenndar með feitu letri. Br. táknar breskar einingar og U.S.
bandarískar. Fullkomnar jafngildistölur eru skáletraðar. 102 = 100,
103 = 1000 o. s. frv. 10“2 = 1/100, 10"3 = 1/1000 o. s. frv.
Lengd
1 metri (m) = vegalengd sem ljósið fer á 7/299 792 458 hluta úr sek-
úndu í lofttómu rúmi. Þessi skilgreining gekk í gildi árið 1983.
Metrinn var upphaflega skilgreindur sem 1 tíumilljónasti hluti af
vegalengdinni frá heimskauti jarðar að miðbaug.
1 þumlungur, tomma (inch, in, Br. og U.S.) = 2,54 cm.
1 fet (Br. og U.S.) = 12 þumlungar = 30,48 cm.
1 alin (dönsk) = 63 cm.
1 yard = 3 fet = 91,44 cm.
1 faðmur (danskur) = 3 álnir = 1,88 m.
1 mfla (Br. og U.S.) = 1,609 344 km.
1 míla (dönsk) = 4000 faðmar = 7,53 km.
1 mfla (sænsk) = 10 km.
1 sjómfla (alþjóðleg) = 1852 m. Sjómflan samsvarar nokkurn veginn
1 mínútu breiddar á yfirborði jarðar. Breiddarmínútan er um
1843 m við miðbaug en 1862 m við heimskaut.
1 stjarnfræðieining (staðalgildi) = 1,495 978 70 ■ 10" m. Stjarnfræði-
einingin er því sem næst meðalfjarlægðin milli jarðar og sólar.
1 ljósár = 9,461 • 1015 m = 63 240 stjarnfræðieiningar.
1 parsek (pc) = 3,086 • 1016 m = 206 265 stjarnfræðiein. = 3,26 ljósár.
1 míkron (p) = 10r6 m. Heppilegra nafn: míkrómetri (pm).
1 punktur (í leturmáli) = 0,376 mm. (Enskur punktur er 0,351 mm.)
1 síseró (cicero) = 12 punktar = 0,451 cm.
1 em (pica) = 12 enskir punktar = 0,422 cm.
1 angström (Á) = 10~'° m.
Öldulengd sýnilegs ljóss = 4 • 10~7 m — 8 • 10-7 m.
Þvermál atóms = um 10_1° m.
Þvermál atómkjarna = 10“14 m - 10“15 m.
Flatarmál
1 fermetri (m2) = flatarmál fernings sem er 1 m á hvom veg.
1 hektari (ha) = 10 000 m2.
1 ferkílómetri (km2) = 100 hektarar = 106 m2.
1 ekra (Br. og U.S.) = 0,4047 hektarar = 4047 m2.
Rúmmál
1 rúmmetri (m3) = rúmmál tenings sem er 1 metri á hvern veg.
1 lítri (1 eða L) = 1 dm3 = 1000 cm3 (millilítrar, ml). Þessi skilgreining
tók gildi 1964. Eftir eldri skilgreiningu var lítrinn 1,000 028 dm •
(84)