Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1994, Page 93
TÍMASKIPTING JARÐARINNAR
Myndin á bls. 90 sýnir hve rnörgum stundum þarf að bæta við (+)
eða draga frá (—) íslenskum tíma til að finna hvað klukkan er að stað-
altíma annars staðar á jörðinni.
Við jaðra kortsins efst og neðst eru reitir sem afmarka svonefnd
tímabelti sem liggja beint frá norðri til suðurs milli heimskauta. Þessi
einfalda og reglulega beltaskipting gildir á úthöfum og í lofti við sigl-
'ngar og flug. A landi eru hins vegar víða frávik frá beltatímanum eftir
því sem hagkvæmast hefur þótt í hverju ríki vegna landamæra eða af
öðrum ástæðum. Gott dæmi um þetta er Kína þar sem staðaltíminn er
alis staðar 8 stundum á undan íslenskum tíma þótt ríkið sé svo víðlent
að það skeri fimm tímabelti. í nokkrum löndum er staðaltíminn 1 klst.
eða meira á undan beltatíma. Þetta á við um fsland, Alaska, Argent-
inu og mestan hluta Sovétríkjanna eins og sjá má á kortinu. Fáein
lönd fylgja tíma sem ekki víkur heilum stundafjölda frá íslenskum
bma. Þetta er sýnt á kortinu með tölum sem tákna frávikið í mínútum
frá viðkomandi stundafjölda. Dæmi um þetta er Indland, þar sem
klukkan er 5 stundum og 30 mínútum á undan íslenskum tíma, og Ný-
fundnaland, þar sem klukkan er 3 stundum og 30 mínútum á eftir ís-
lenskum tíma.
A kortinu liggur óregluleg lína frá norðri til suðurs yfir Kyrrahaf.
Lína þessi nefnist dagalína og gegnir því hlutverki að aðgreina þau
svæði, sem lengst eru komin í tíma, frá hinum sem skemmst eru kom-
ín. Dagalínan var staðsett með alþjóðasamþykkt og tvískiptir hún einu
hmabeltanna. Staðaltíminn vestan línunnar er réttum sólarhring á
þndan staðaltímanum austan við og verður því að breyta um dagsetn-
'ngu þegar farið er yfir línuna.
Kortið sýnir að austasti hluti Síberíu er 12 stundum á undan íslandi
1 tíma. Þegar klukkan á íslandi er 12 á hádegi á gamlársþag er klukk-
an austast í Síberíu 12 á miðnætti og nýtt ár að hefjast. f Alaska, hin-
um megin við Beringssundið, er klukkan þá 3 að morgni gamlársdags.
Sumartími. í mörgum löndum tíðkast sá siður að flýta klukkunni á
sumrin. Er klukkunni þá yfirleitt flýtt um eina klukkustund að vori en
seinkað aftur að hausti. Á íslandi voru slíkar reglur í gildi árin
1917-1918 og svo aftur frá 1939 til 1967 (sjá almanak 1988, bls. 94).
Keglur um sumartíma eru margar og þeim hefur oft verið breytt. Á
meginlandi Evrópu er aðalreglan sú að klukkunni er flýtt síðasta
sunnudag í mars og henni seinkað aftur síðasta sunnudag í september.
^ Bretlandseyjum er sumartími í gildi frá síðasta sunnudegi í mars til
sunnudags eftir fjórða laugardag í október. í Bandaríkjunum og Kan-
ada gildir sumartími víðast hvar frá fyrsta sunnudegi í aprfl til síðasta
sunnudags í október. Sjá nánar í almanaki fyrir 1991.
(91)