Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2005, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005
MAGASÍN DV
Andri ÞórTheodórsson, grafískur hönnuður,
flúði öngþveitið í borginni
Guðni Ólafur Guðnason
ætlaði að búa á ísafirði í
tvö ár en hefur nú verið
fyrir vestan íníuár
Andri ÞórTheodórsson
„Ég hafði aldrei komið hingað áður að
vetri til og náttúran er mjög faiieg hérna
núnaog ég er sérstaklega hrifinn af
norðurljósunum. Maðursá þau stundum
íbænum en aidrei ísama mæli og hér.“
■Æ
Úfj®
I fi
Allt afslappaðra
Forréttindi að
búa á ísafirði
jafnfailmn snjór og það er
búiö að snjóa í allan dag.
Vonandi helst snjórinn alla-
vega yfir páskana svo fólk
geti komiö og farið á skíði.“
á Egilsstööum
„Ég flutti hingað því ég var
orðinn leiður á stressinu í bænum,"
segir Andri Þór Theodórsson sem
flutti frá Reykjavík til Egilsstaða fyrir
þremur mánuðum. „Mig langaði að
prófa að breyta aðeins til og víkka
sjóndeildarhringinn á meðan ég er
enn þá laus og liðugur og eins og er
líkar mér mjög
vel,“ segir
Andri sem
starfar sem
grafískur
hönnuður hjá
Héraðsprenti.
Andri er þó
duglegur að
kíkja í borgina enda á hann son í
bænum. „Eg flýg suður aðra hverja
helgi enda finnst mér of langt að
keyra í átta tíma. Það er þó helvíti
blóðugt að þurfa að borga 30 þús-
und krónur í fluggjald og ég vildi að
flugfélagið myndi gera einhvern díl
við fólk í svona aðstöðu. En auðvitað
stoppar verðið mig ekki í að hitta
strákinn minn."
Allt mögulegt á Egilsstöðum
Andri segir allt miklu afslappaðra á
Egilsstöðum og honum finnst alltaf
gott að komast aftur austur eftir að
hafa verið í borginni. „Maður er vanur
svo miklu öngþveiti og umferð og
finnur fyrir breytingunni þegar maður
kemst aftur austur. Hér er hægt að
gera flestallt sem mann langar til
nema kannski að kíkja í bíó. Þá þarf að
fara til Seyðsfjarðar." Andri segist
einnig fara reglulega á kaffihús, í sund
og í ræktina og í sumar ætlar hann að
vera duglegur að fara í golf og í stutt
ferðalög.
„Ég hafði aldrei komið hingað áður
að vetri til og náttúran er mjög falleg
hérna núna og ég er sérstaklega hrif-
inn af norðurljósunum. Maður sá þau
stundum í bænum en aldrei í sama
mæli og hér. Ég hef samt í rauninni
aldrei verið sérstaklega hrifinn af vetr-
inum yfirhöfuð en ætla að reyna að
gera gott úr honum með því að stunda
snjóbretú í auknum mæli enda em
mörg góð skíðasvæði héma."
indiana@dv.is
„Upphaflega flutti ég hingað til
að þjálfa körfuboltaliðið sem þá var
nýkomið í úrvalsdeild," segir Guðni
Ólafur Guðnason, umdæmisstjóri
hjá Vís á ísafirði. „Maður synti á
móti straumnum þegar allir voru á
leiðinni suður," segir Guðni sem
kom frá Reykjavfk. Upphaflega ætl-
aði hann að dvelja í tvö ár fyrir vest-
an en hefur ílengst og nú hefur
hann búið á ísafirði síðan 1996. „Ég
var mjög spenntur að flytja en samt
með ákveðna fordóma. Mér fannst
þetta ægilega langt í burtu og stað-
setningin hrikaleg og þegar ég kom
fyrst sendi ég bílinn með skipi en
flaug sjálfur því ég gat ekki hugsað
mér að keyra hingað að vetri til. Það
var náttúrulega alveg fáránlegt en
þetta er þessi Reykjavíkurhugsun."
Stutt að sækja allt
Eftir að samningur hans í körfu-
boltanum rann út fékk Guðni Ólaf-
ur boð um annað starf sem hann
þáði. „Við erum með þrjá litla kúta
og okkur finnst mjög gott að vera
hér. Þetta er bara eins og að vera
hvar annars staðar nema hvað það
er mun auðveldara að stunda öll
áhugamál hér en fyrir sunnan. Ég
er eina mínútu að fara út á golfvöll,
eina mínútu að komast á skíði og
ég held að ég fari mun oftar í leik-
hús hér en ég gerði í Reykjavík. Að
mínu mati eru mikil forréttindi að
fá að búa hér og ég er ekki á leið-
inni til baka í bráð þótt maður viti
„Við erum með þrjá litla kúta og
okkur finnst mjög gott að vera
hér. Þetta er bara eins og að
vera hvar annars staðar nema
hvað það er mun auðveldara að
stunda öll áhugamál hér en fyr-
ir sunnan. Ég er eina mínútu að
fara út á golfvöll, eina mínútu
að komast á skíði og ég held að
ég fari mun oftar í leikhús hér
en ég gerði í Reykjavík.
Synirnir
Guðni Páll, Kjartan Elf og Benedikt Hrafn I
aldursröð.
náttúrulega aldrei. Fjölmiðlar ein-
blína oft einum of á snjóflóðahætt-
una hérna en gleyma öllu hinu sem
er hægt að gera hér." Guðni Ólafur
segist fara reglulega á skíði enda sé
skíðasvæðið mjög gott. í dag sé
mikill snjór á ísafirði, sá mesti síð-
an hann flutti vestur. „í morgun var
30 til 40 sm jafnfallinn snjór og það
er búið að snjóa í allan dag. Von-
andi helst snjórinn allavega yfir
páskana svo fólk geti komið og far-
ið á skíði."
indiana@dv.is
„Ég hafði aldrei komið hingað áður að vetri til og
náttúran er mjög falleg hérna núna og ég er sér-
staklega hrifinn af norðurljósunum. Maður sá þau
stundum í bænum en aldrei í sama mæli og hér."
r
rl
r
r
fí
r
rl
r
r
ri
la ác
rj
Kerti
Ekki klikka á kertunum.
I skammdeginu skapa
kertin skemmtilega og
rómantiska stemmningu.
Ekki skemmir fyrir ef kertin
eru með góðum ilmi. Þú getur nálgast
fin kerti i næsta stórmarkaði.
Seqence
Ótrúlega skemmtilegt
spil sem allt að sex
manns geta spilað sam-
an. Nauðsynlegt i sumar-
bústaðinn. Hjá Magna fæst
spilið á 2.750 krónur.
Rauðvín
Má alls ekki gleymast til
að hafa með ostunum
og steikinni. Muna bara
að hafa nóg afþvi.
Spil
Hægt er að gera ýmis-
legt skemmtilegt með
spilastokk. T.d. spila
fatapóker. Hjá Magna á
Laugaveginum fæst ódýrasti
spiiastokkurinn á 270 krónur.
Ostabakki
Nauðsynlegur í sumar-
bústaðinn. Ekki gteyma
vinberjunum, kexinu og
mörgum tegundum af
allskyns ostum.
Teppi
Ekki gleyma að taka með
hlý og góö teppi til að
kúra undir i bústaðnum.
%
r r rr
r -rr
fi fi
Afþreying
Margir geta ekki hugs-
að sér heila helgi án
sjónvarpsins. Mundu
bara að taka nóg af
krossgátubiöðum, timarit-
um og bókum með i ferðalagið og þá
er málið leyst.
Útikerti
Útikerti við heita pott-
inn skapa ótrúlega
skemmtilega stemmn-
ingu.
Sundföt
Efþið farið mörg saman, klikkaðu þá
ekki á sundfötunum. Efþið eruð hins
vegar bara tvö saman er miklu skemmti-
legra að gleyma þeim. Óvart.
Skemmtilegir kok-
teilar
Takið hráefni með svo
þið getið búið til
skemmtilega kokteila. ís-
kaldir kokteilar i heita pott-
inn og heitir þegar upp úr er komið.
Góður matur
77/ aðmuna eftir öllu
skrifaðu þá matseðilinn
niður og athugaðu
hvort þú hafir nokkuð
gleymt einhverju kryddi
eða rjóma I sósuna.
Sexý undirföt
Á þessu atriði má ekki klikka! Helgar-
ferð útúr bænum getur
gert kraftaverk fyrir
sambandið og þvi'
nauðsynlegt að
klikka ekki á
svona atriðum.
Hvort sem ferðinni er heitið í sum-
arbústað eða á hótel má ekki klikka
á smáatriðunum þegarfarið er út úr
bænum. Þegar þið hafið barist í
gegnum skafla til að komast á
áfangastað erfátt meira pirrandi
en að uppgötva að þið hafið gleymt
nokkrum mikilvægum hlutum sem
gera ferðina fullkomna.
Fyrir börnin
Ekki gleyma dóti handa börnunum. Þau
sitja ekki og lesa alla helgina. Efþú vilt fá
frið, taktu þá með þér nóg afleikföngum.
Nuddolía
Eftir langan göngutúr I frostinu er
frábært að taka upp nuddoliuna og
nudda hvort annað.