Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2005, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005
MAGASÍN DV
Laufey Karitas Einarsdóttir er 22 ára og með tvær
litlar dætur. Laufey Karitas er á öðru ári í viðskipta-
fræði í Háskóla Islands en hún og kærastinn, Jónas
Haukur, stefna á frekara nám í Bandaríkjunum í
nánustu framtíð.
%
'r
r<í
m
9S
„Hún er alveg rosalega góð,“ segir
Laufey Karitas Einarsdóttir sem eign-
aðist sína aðra dóttur þann 17. októ-
ber. Laufey á dóttur fyrir sem hún
eignaðist 17. mars 2003. Stelpurnar
heita báðar skemmtilegum öðruvísi
nöfnum en þar sem Laufey er ætt-
leidd frá Indónesíu fékk hún leyfi til
að velja þessi nöfn.
Námið gengur hægt en ör-
ugglega
„Sú eldri heitir Silvana Ósk en
þegar ég kom til landsins var ég köll-
uð Silvana á pappírum en þetta er
indónesískt nafn. Sú yngri heitir svo
Camilla Rún,“ segir Laufey sem er á
öðru ári í viðskiptafræði í Háskóla ís-
lands. „Námið gengur hægt en ör-
ugglega enda eru þær svo góðar. Eftir
að þær komu í heiminn varð ég að-
eins að minnka við mig í náminu en
ég stefni á að klára þetta sem fyrst. Sú
eldri er allan daginn á leikskóla og
svo skiptumst við á að vera heima en
kærastinn minn, Jónas Haukur Ein-
arsson, er að klára sálfræðina í há-
skólanum."
Varð ung móðir
Laufey og Jónas Haukur byrjuðu
saman fyrir sex árum. Laufey er að-
eins 22 ára í dag og var því aðeins 15
ára þegar þau fóru að vera saman.
„Já, ég varð mjög ung móðir enda
komu stelpurnar báðar mjög óvænt í
heiminn en það er bara gaman að því
í dag. En þar sem ég er mjög ung, og
sú fyrsta í vinahópnum til að stofna
fjölskyldu, reyni ég að passa mig á því
að missa ekki af öllu og er því dugleg
við að fara út á kaffihús og annað
með vinunum enda er ég mikil fé-
lagsvera."
Laufey segir að Silvana Ósk sé dá-
h'tið afbrýðissöm út í litlu sysmr.
„Hún er samt svo h'til að hún fattar
þetta ekki alveg en sú htla fær að
kenna á því allavega tvisvar á dag en
svo er hún góð við hana inn á milli,"
segir Laufey.
Frekari barneignir ekki á dag-
skrá
Laufey hefur starfað sem fyrirsæta
í gegnum ú'ðina og sat meðal annars
fyrir fyrir gallabuxnarisann Levis. „Ég
hef mjög gaman af því að fá eitt og
eitt verkefni og ég fékk ágætan pen-
ing fyrir Levis-auglýsinguna. Ég vil
samt ekki vera skráð á módelskrif-
stofu því þær taka sín umboðslaun
og þar sem þetta eru ekki há laun
finnst mér best að sjá um þetta sjálf
og lúngað til hef ég fengið ágætis
aukapening út á þetta."
Laufey segir að þriðja barnið sé
ekki á dagskránni enda stefni hún nú
á að klára námið. „Þegar ég byrjaði í
skólanum gerðist aht á sama tíma.
Ég eignaðist mitt fyrsta barn og við
Jónas fluttum inn saman. Nú ætla ég
Inns vegar að rumpa þessu af og svo
setjum við stefnuna á Bandaríkin en
Jónas ætlar að taka masterinn í sál-
fræði og ég kannski master í við-
skiptafræði og við bæði jafhvel
kennararéttindin. Ég er alveg rosa-
lega spennt fyrir að fara út en planið
er að koma heim aftur eftir námið.“
Ánægð með íbúðina
Laufey, Jónas og stelpurnar hafa
komið sér vel fyrir í íbúð á Vestur-
götunni. Þetta er önnur íbúðin sem
þau kaupa þar sem þau urðu að
stækka við sig eftir að yngri dóttirin
kom í heiminn. „Ég er alveg rosalega
ánægð með þessa íbúð og élska að
búa svona nálægt miðbænum.
íbúðin er mjög spes og svoh'tið gam-
aldags og það er gaman að vita að
það er ekki til eins íbúð því maður-
inn sem við keyptum hana af inn-
réttaði hana aJla sjálfur."
Nú fer mestur tími hennar í að sjá
um dæturnar og læra þess á milli. Þó
segist hún passa sig á að kíkja reglu-
lega út með vinunum. „Við erum ah-
an daginn að læra. Þegar ég þarf að
mæta í tíma kemur hann heim enda
er hann að skrifa lokaritgerðina og
ræður sér sjálfur. Við reynum að
nota ú'mann á meðan sú eldri er í
leikskólanum til að læra og þetta er
bara eins og fuhur vinnudagur."
indiana@dv.is
Fjölskyldan
Laufey Karitas, Jónas
Haukur, Silvana Ósk
og Camilla Rún.
- ,
Ung móðir
Laufey Karitas og Jónas
Haukur hafa verið saman
síðan Laufey var 15 ára.