Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2005, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2005, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2005 MAGASÍN DV Hamingjan var aðeins á yfirborðinu Heimsfræg Leikkonan Gwyneth Paltrow lék Sylviu Plath i kvikmynd sem byggð var á ævi skáldsins. frí í tilraun sinni til að laga hjóna- bandið en ákváðu í staðinn að skilja. Ætlunarverkið tókst Um veturinn 1962, einum þeim kaldasta á öldinni, bjó Sylvia í lítilli íbúð í London ásamt tveimur börn- um sínum. Hún var illa farin af veikindum og átti litla pengina. Hinar erfiðu aðstæður virtust ýta undir þörf hennar til að skrifa og oft samdi hún eitt ljóð á dag. Lítið er þó vitað um hennar síðstu daga. Alla- vega var hún alvarlega veik á líkama og sál og börnunum var kalt. Þann 11. febrúar 1963 framdi hún sjálfs- víg. Hún stakk höfðinu inn í gaseldavél eftir að hafa lokað börn- in vandlega inni í öðru herbergi. Hún var aðeins þrítug þegar hún lést. Sylvia Plath átti stutta en viðburðaríka ævi. Aðeins 21 árs reyndi hún að fyrirfara sér en þrítugri tókst henni ætlunar- verk sitt. Margar af dagbókum Sylviu hafa verið birtar og lýsa þær sársaukanum sem kraumaði undir niðri en Sylvia trúði engum fyrir vanlíðan sinni nema dagbókunum. Sylvia Plath fæddist inn í miðstéttarijölskyldu þann 27. október 1932 í Massachusetts. Þegar hún var aðeins átta ára var hennar fyrsta ljóð birt. Á yfirborðinu virtist hún vera hamingjusam- ur og vinsæll yfirburðarnemandi sem leitaði fullkomnunar í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Sannleik- urinn var hins vegar allt annar. Dauði föður hennar hafði afar djúp- stæð áhrif á Sylviu en hún var aðeins átta ára þegar hann lést úr sykursýki. Vanlíðanin leiddi Sylviu í að reyna að fremja sjálfsvíg og árið 1953 skildi hún eftir sig miða: „Er farin í langan göngutúr. Kem aftur á morgun." Syl- via tók með sér teppi, flösku með svefntöflum og vatnsglas og fór nið- ur í kjallara. Þar settist hún niður í lítið skot og gleypti töflurnar. Mamma hennar hóf strax að leita hennar og eftir að hafa hringt á lög- // Stórbrotin kona regluna og auglýst eftir henni í blöðunum fannst Sylvia meðvit- undarlaus. Hún hafði ekki gleypt allar töflurnar. Sylvia dvaldi í nokkurn tíma á sjúkrahúsi þar sem hún gekkst meðal annars undir raflosts- og sálffæðimeð- ferðir en sneri aftur í Smith-há- skólann um vorið. Taugaveikluð og veik- burða Atburðurinn hafði mikil áhrif á ljóð hennar og sársaukinn leyndi sér ekki. Síðar gaf hún út bókina The Bell Jar þar sem hún lýsti atburðarásinni að sjálfs- vígstilrauninni. Árið 1956 giftist hún enska skáldinu Ted Hughes. Mamma hennar var viðstödd brúðkaupið og sumrinu eyddu hjónakornin til að kynnast hvort öðru og skrifa saman. Eftir skólagönguna fór Plath að kenna í Smith-háskólan- um. Hún var afar Bóndadagstilboð Hinsegin hollráð fvrir alla karlmenn Stórskemmtileg, gagnleg og smart bók í frábærri þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar. frá þér tl! itacis. Fæst í öllum bókabúðum. Á sérstöku tilboði hjá SÖLKU Ármúla 20 eða á aðeins 1990 kr. 'f\ ■ . ; _ S: 552 1122 www.salkaforlag.is Stmi4372345 Sylvia Plath Dauði föður hennar hafði afar djúpstæð áhrifá hana en hún var aðeins átta ára þegar hann léstúr sykursýki. taugaveikluð fyrstu vikurnar og vonsvikin yfir að hafa lítinn tíma til skrifta. Hún hafði einnig afar litla trú á hæfileikum sínum til kennslu en viðurkenndi það ekki fyrir nein- um nema dagbókinni sinni. Dag- bækur hennar hafa verið birtar þar sem nákvæmar lýsingar á öllu sem hún upplifði er að finna. Dagbókin var hennar besti vinur og sú eina sem Sylvia trúði fyrir leyndarmál- um sínum. Eftir nokkra mánuði í skólanum tóku Sylvia og Ted þá ákvörðun að yfirgefa háskólann og snúa sér al- farið að skrifum. í apríl 1960 fædd- ist fyrsta barn þeirra, Frieda Rebecca, og ekki leið á löngu áður en Sylvia var aftur orðin ófrísk en hún missti barnið í febrúar. Tveim- ur árum síðar eignuðust þau son- inn Nicholas Farrar. Stuttu eftir fæðinguna fór Sylviu að gruna Ted um framhjáhald. Þau fóru í Sylvia Síiítfu eftir fæðinguna fór Sylviu að gruna Ted um framhjá- hald. Þau fóru i fri i tilraun sinni til að laga hjónabandið en ákváðu i staðinn að skilja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.