Bræðrabandið - 01.11.1977, Síða 4

Bræðrabandið - 01.11.1977, Síða 4
Himinninn gat ekki lengur komið þeim fyrir sjónir eins og ótiltekin óskiljanleg víðátta fyllt óáþreifanlegum öndum. Nú litu þeir á hann sem framtíðar-heimkynni sitt þar sem þeirra elskaði lausnari var að búa þeim híbýli. Bænin klæddist nýjum áhuga, þar sem hún var samband við frelsara þeirra. Með nýjum og gagntakandi tilfinningum og óbilandi trausti á að bænir þeirra yrðu heyrðar söfnuðust þeir saman í loftsalnum til að bera fram beiðnir sínar og leggja hald á loforð frelsarans, sem sagði: „Biðjið, og þér munuð öðlast, til þess að fögnuður vðar verði fullkominn." Þeir báðu í Jesú nafni. 8 Loforöinu skal haldiö fersku Lærisveinarnir áttu ætíð að halda loforðinu um endurkomu Krists fersku í huga sér. Þessi sami Jesús sem þeir sáu fara til himins mundi koma aftur til þess að taka til sín þá sem hér á jörðu gefa sig þjónustu hans. Sama röddin sem hafði sagt við þá: „Sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldarinnar,“ mundi bjóða þá velkomna til sín í hinu himneska ríki. 9 Nú er hann til hægri handar Guði, hann er á himnum sem talsmaður okkar, sem meðalgöngumað- ur okkar. Þegar við hugleiðum þetta á það ætíð að vera okkur huggun og von. Hann hugsar til þeirra sem verða fyrir freistingum í þessum heimi. Hann hugsar um okkur einstaklingslega, og þekkir allar þarfir okkar. Þegar þið verðið fyrir freistingu, þá segið aðeins, hann ber umhyggju fyrir mér, hann er meðal- göngumaður minn, hann elskar mig, hann hefur dáið fyrir mig. Ég vil gefast honum að fullu og öllu. Við hryggjum hjarta Krists þegar við erum döpur og niðurbeygð yfir sjálfum okkur eins og við værum okkar eigin frelsari. Nei, við verðum að fela sálir okkar Guði sem trúum skapara. Hann hfir ávallt til að biðja fvrir hinum þjáðu og þeim sem verða fyrir freistingu.10 Af himni heyrist rödd Guðs kunngjöra daginn og stundina, þegar Jesús kemur til þess að lýsa fyrir sínum útvöldu hinum eilífa sáttmála. ... Israel Guðs stendur og hlustar með upplyftum ásjónum. Andlit þeirra eru upplýst af dýrð hans og geisla eins og andlit Móse, þegar hann kom niður af Sínaí... Brátt birtist í austri lítið, svart ský, á stærð við hálfa mannshönd. Það er skýið, sem umkringir frels- arann og virðist í fjarlægð vera hulið myrkri. Fólk Guðs veit, að þetta er tákn manns-sonarins. í hátíð- legri þögn starir það á það, er það nálgast jörðina og lýsist og verður dýrlegra, uns það er orðið að stóru hvítu skýi. Neðri hluti þess glóir eins og eyðandi eldur, og yfir því hvelfist regnbogi sáttmálans. Jesús kemur fram sem máttugur sigurvegari, ekki nú eins og „maður sorgarinnar“ til að drekka hinn beiska bikar smánar og eymdar, hann kemur sem sigurveg- ari yfir himni og jörð til þess að dæma lifendur og dauða.. Með himneskum lofsöng fylgja heilagir englar honum, ótölulegur aragrúi. Himinninn virðist þakinn ljómandi verum, „tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda.“ Enginn mannlegur penni getur lýst þeirri sjón, enginn dauðlegur mannshugur getur gert sér dýrð hennar í hugarlund... Þegar þetta lifandi ský kemur enn nær, greinir hvert auga konung lífsins. Engin þyrnikóróna særir nú hið heilaga höfuð, en dýrlegt djásn hvílir á enni hans. Ásjóna hans er hádegissólinni bjartari. „Og á skikkju sinni og lend sinni hefur hann ritað nafn: konungur konunga ogDrottinn drottna.“ Op. 19,16.11 Hinir óguðlegu munu flýja úr návist hans, en fylgjendur Krists munu fagna. Ættfaðirinn Job leit fram til tíma endurkomu Krists og sagði: „Ég mun líta hann mér til góðs; já, augu mín sjá hann, og það eigi sem ókunnugan.“ Job 19, 27 (ensk þýðing). Kristur hefur verið trúum fylgjendum sín- um daglegur félagi og náinn vinur. Þeir hafa hfað í nánu sambandi og stöðugu samfélagi við Guð. Yfir þá hefur dýrð Drottins upprisið. í þeim hefur ljós þekkingarinnar á dýrð Guðs, eins og hún kom í ljós í ásjónu Jesú Krists endurspeglast. Nú fagna þeir í skærum geislum Ijóma og dýrðar konungsins í hátign sinni. Þeir eru hæfir fyrir samfélag himinsins því þeir hafa himininn í hjörtum sínum. 12 Hið endurleysta fólk Krists eru gimsteinar hans, dýrmætur og sérstakur fjársjóður. „Þeir eru gimstein- ar í höfuðdjásni" — „ríkdómur þeirrar dýrðar sem hann erfir meðal hinna heilögu.“ í þeim „mun hann sjá ávöxt hörmunganna er sál hans þoldi, og seðjast." Kristur lítur á fólk sitt í hreinleika þeirra og full- komnun sem launin fyrir allar þjáningar sínar, lítil- lækkun og kærleika, og sem auðgun dýrðar sinnar — Kristur, hinn mikli miðdepill sem öll dýrð geislar út frá.13 Kristur gerir kröfu til þeirra forréttinda að hafa söfnuð sinn hjá sér. „Ég vil, að það sem þú gafst mér, — að einnig þeir séu hjá mér þar sem ég er.“ Að hafa þá hjá sér er í samræmi við sáttmálaloforð og samkomulag við föður hans. Með lotningu leggur hann fram við náðarstólinn fullnaða endurlausn fyrir fólk sitt. Bogi loforðsins umlykur staðgengil okkar og öryggi þar sem hann úthellir kærleiksbæn sinni. „Faðir, ég vil, að það sem þú gafst mér, — að einnig þeir séu hjá mér þar sem ég er, til þess að þeir sjái dýrð mína.“ Við munum sjá konunginn í fegurð hans og söfnuðurinn mun verða dýrlegur gjörður.14 Sigurtáknin Áður en farið er inn í borg Guðs veitir frelsarinn lýð sínum tákn sigursins og skrýðir þá tignarmerkjum hinnar konunglegu tignar sinnar. Hinum skínandi fylkingum er skipað í ferhyrning með auðu svæði í miðjunni um konung þeirra, en mynd hans rís tígulega, hátt yfir helga menn og engla, og snýr hann að þeim Ijómandi ásjónu fullri af góðvilja og kær- leika. Frá gervöllum hinum ótölulega fjölda frelsaðra er augum beint að honum, hvert auga sér dýrð hans, hvers „ásjóna var svo illa farin, að hann var ekki 4

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.