Bræðrabandið


Bræðrabandið - 01.11.1977, Qupperneq 16

Bræðrabandið - 01.11.1977, Qupperneq 16
enginn vafi á því að komu Drottins hefur verið frestað. En hver hefur verið ástæðan fyrir seinkuninni? Það er þetta sem við ætlum að athuga stuttlega og ákveða með Guðs náð að við verðum ekki lengur gleymin eða fáfróð um þessa hluti: „Hin langa drungalega nótt reynir á, en morgninum er frestað í náð, því ef Meistarinn kæmi myndu svo margir reynast óviðbúnir. Ástæðan fyrir þessari miklu seinkun er sú að Guð er ófús að láta fólk sitt glatast. ... Það var ekki Guðs vilji að endurkomu Krists skyldi þannig verða seinkað..Það var ekki áform Guðs að fólk hans, Israel, skyldi reika í fjörutíu ár í eyðimörkinni. Hann lofaði að fara með það beint til Kanaanlands, og kom þeim þar fyrir sem helguðu, heilbrigðu og hamingjusömu fólki. En þeir sem fyrst heyrðu boðskapinn fóru ekki inn „sakir vantrúar." Hjörtu þeirra voru fyllt mögli, uppreisn og hatri svo að hann gat ekki uppfyllt sáttmála sinn við þau. „í fjörutíu ár hélt vantrú, mögl og uppreisn ísrael til forna frá Kanaanlandi. Sömu syndirnar hafa seinkað inngöngu nútíma ísraels í hið himneska Kanaanland. í hvorugu tilfellinu er hægt að sakast við loforð Guðs. Það er vantrú, heimshyggja, skortur á helgun og deilur á meðal þeirra sem játast að vera fólk Drottins sem hefur haldið okkur í þessum heimi syndar og sorgar í svo mörg ár. „Það getur verið að við þurfum að vera áfram í þessum heimi í mörg ár í viðbót vegna óhlýðni og mótþróa eins og ísraelsmenn; en Krists vegna ætti fólk hans ekki að bæta synd ofan á synd og saka Guð um afleiðingar þeirra eigin röngu athafna.“ — Evangelism, bls. 694—696. Athygli okkar er dregin að mikilvægu atriði í 10.—13. versi. Þrátt fyrir það sem spottararnir segja, er staðreyndin sú að, „dagur Drottins mun koma.“ Hann muna koma „sem þjófur, og þá munu himnarnir með miklum gný líða undir lok, frumefnin sundurleysast í brennandi hita, og jörðin og þau verk, sem á henni eru, upp brenna.“ Ekkert er öruggara en þetta. Dagur Drottins mun koma. Látum spottarana spotta og háðfuglana hæðast, en það mun ekki breyta fullvissuninni sem Drottinn hefur gefið fólki sínu. Eftir þessa ótvíræðu yfirlýsingu um komu Drottins heldur postulinn áfram, „Þar eð allt þetta ferst þannig, hversu ber yður þá að framganga í heilagri breytni og guðrækni, þannig að þér væntið eftir og flýtið fyrir komu Guðs dags, en vegna hans munu himnarnir sundurleysast í eldi og frumefnin bráðna af brennandi hita. En vér væntum eftir fyrirheiti hans nýs himins og nýrrar jarðar, þar sem réttlæti býr.“ Þriðja hvatning postulans til þeirra sem í alvöru eru að búa sig undir komu frelsarans, er að finna í 14. versinu: „Með því að þér nú þér elskuðu, væntið slíkra hluta, þá kappkostið að vera flekklausir og lýtalausir frammi fýrir honum í friði.“ Þetta er ákaflega hár staðall. Maðurinn getur ekki náð slíkum staðli sjálfur, hver svo sem staða hans er, ætterni eða menntun. Það er engin leið til þess að við getum náð slíkum staðli af sjálfum okkur. En Guði sé lof, það er til leið. Hún er dásamlega einföld og einfaldlega dásamleg, og við getum öll farið hana. Er það að þakka „honum, sem megnar að varðveita yður frá hrösun og láta yður koma fram fyrir dýrð sína, lýtalausa í fögnuði." (Júdas 24). Boðorðið er loforð „Guðs háleiti staðall fyrir börn sín er hærri en háleitasta hugsun manna nær. „Verið þér því fullkomnir, eins og yðar himneski faðir er fullkominn.“ Þetta boð er loforð. Frelsunaráfromið ráðgerir algjöra viðreisn undan valdi Satans. Kristur skilur ætíð hina iðrandi sál frá synd. Hann kom til þess að gera að engu verk djofulsins, og hann hefur séð svo til að Heilagur Andi verði gefinn sérhverri iðrandi sál, til þess að halda henni frá að syndga.“ — The Desire of Ages, bls. 311. Þetta er hið dásamlega starf Heilags Anda að koma þessum kraftaverkum náðarinnar til leiðar í lífi okkar. Heilagur Andi er okkur gefinn ekki aðeins til þess að sannfæra um synd heldur einnig til þess að veita okkur guðlegt eðli, svo að við höldum okkur frá því að syndga. Hafi nokkurn tíma verið þörf á að biðja Guð um úthellingu Heilags Anda til þess að koma þessu til leiðar í lífi okkar þá er það vissulega nú. „Þér elskaðir kappkostið.“ Síðasta atriðið sem postulinn leggur áherslu á er að finna í 17. versinu. „Með því að þér vitið þetta fyrirfram, þér elskaðir, þá hafið gát á yður.“ Hvað eigum við að varast? Er hætta á ferðum? Svarið er að finna í seinni hluta versins. „Að þér látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá yðar eigin staðfestu." Við lifum á tíma sáldunarinnar. Margt af okkar kæra fólki finnur að aðdráttarafl heimsins ásamt vandamálum lífsins og syndsamlegum skemmtunum og lystisemdum er að draga það frá kærleika til og hollustu við Drottin sinn og meistara. Margir, allt of margir, eru að gefast upp. Hjarta okkar stynur er við sjáum syni okkar og dætur, bræður, systur, feður og mæður, trúsystkini okkar, missa tak sitt á Guði og falla í það ástand sem algjörlega gerir það óhæft til borgararéttinda í ríki Guðs. Hver er villa þessara þverbrotnu manna sem postulinn er að tala um? Fyrst og fremst er þetta villa lögleysisins sem er að reyna að ná athygli okkar og leiða okkur frá innblásnum leiðbeiningum Drottins. Þessir óguðlegu segja, „Guð meinar ekki það sem hann segir.“ Eða, „Húsbónda mínum dvelst.“ Eða, „Það er nógur tími. Hví að komast allur í uppnám?“ Eða, „Guð er of góður til þess að eyða hinum óguðlegu.“ Eða, „Það er ekki hægt að trúa á, né treysta Biblíunni." Eða, „Biblían er ekki áreiðanleg hvað snertir sagnfræði og vísindi." Postular hins nýja siðgæðis og ,siðfræði 16

x

Bræðrabandið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.