Bræðrabandið - 01.11.1977, Síða 24

Bræðrabandið - 01.11.1977, Síða 24
til þeirra af kærleika og náð en sem þeir hafa hafnaó. í óguðleika sínum eru þeir alls ófærir um að þola hina brennandi fegurð Sólar Réttlætisins þar sem hún rennur upp með græðslu undir vængjum sínum. Fólk Guðs stendur í litlum hópum og horfir til himins með fögnuði og eftirvæntingu. Hendur þeirra eru útréttar og fagna endurkomu Drottins. Reynslur og þjáningar, freistingar og andstaða, erfiðleikar og ofsóknir — allt er þetta að baki! Allt annað er gleymt — Jesús er að koma! Hann er hérna, rétt yfir höfðum þeirra! Hann er að benda þeim að koma til sín og sinna konunglegu engla. „Sjá, þessi er vor Guð; vér vonuðum á hann, að hann mundi frelsa oss,“ hrópa hinir endurleystu með fögnuði. „Þessi er Drottinn; vér vonuðum á hann; fögnum og gleðjumst yfir hjálpræði hans!“ (Jes. 25, 9.). Grafirnar opnast. Hinir réttlátu koma fram úr rykugum hvíldarstöðum sínum með fagnaðar- og gleðiópum. Öll merki syndar og jarðneskra erfiðleika og mótlætis eru horfin. í ferskum blóma eilífs heilbrigðis rísa hinir endurley&tu upp til að mæta frelsara sínum. „Dauðinn er uppsvelgdur í sigur.“ (1. Kor. 15, 54.). Þegar „sjálfur Drottinn mun með kalli, með höfuðengilsraust og með básúnu Guðs, stíga niður af himni... munum vér, sem lifum, sem eftir erum, verða ásamt þeim,“ sem risu upp úr gröfunum, „hrifnir burt í skýjum til fundar við Drottin í loftinu.“ (1. Þess. 4,15—17.) „Persónueinkenni okkar varðveitast í upprisunni, þótt ekki verði um sömu efnisagnir eða efnisinntak að ræða og það sem fór í gröfina... I upprisunni mun sérhver maður hafa sína eigin lyndiseinkunn. Þegar Guði þóknast mun hann kalla fram hina dauðu og gefa þeim aftur lífsandann, og bjóða hinum þurru beinum að lifa.“ — Ellen G. White, The Faith I Live By, bls. 185. Hvílík frelsissjón! Hvílíkir stórkostlegir endurfundir! Enginn mannlegur penni getur lýst því til fullnustu! Vinir og fjölskyldur sem svo lengi hafa verið aðskilin af dauðanum sameinast nú á ný. „Fjölskyldukeðjan verður aftur tengd. Þegar við lítum á dána ástvini okkar, eru það forréttindi okkar að líta fram til morgunsins þegar básúna Guðs hljómar, þegar „hinir dauðu munu upprísa óforgengilegir, og vér munum umbreytast." (1. Kor. 15,52.). „Síðustu viðloðandi leifarnar af bölvun syndarinnar verða fjarlægðar, og hinir trúu fylgjendur Krists munu koma fram í ,fegurð Drottins vors og Guðs‘, og endurspegla fullkomlega Drottin sinn í huga, sál og á líkama.“ — sama. „Hinir réttlátu sem lifa munu umbreytast „á einu augabragði." Fyrir rödd Guðs voru þeir dýrlegir gjörðir; nú eru þeir gerðir ódauðlegir og ásamt hinum upprisnu heilögu hrifnir upp til fundar við Drottin í loftinu. Englar „munu safna saman hans útvöldum frá áttunum fjórum, himinsendanna á milli.“ Lítil börn eru borin af heilögum englum í arma mæðra þeirra. Vinir, sem dauðinn hefur aðskilið um langan tíma, sameinast og munu aldrei framar skiljast, og þeir stíga upp til borgar Guðs með gleðisöngvum." — Child Guidance, bls. 566. Þetta er hámarkið! Þetta er dagurinn! Endurkoma Krists er upp runnin! Allt er þetta dýrleg og stórfengleg staðreynd. Snúum okkur aftur aö Guðs endurleysta fólki Hinn dýrlegi herskari — frelsarinn og hinir frelsuðu allra alda — hefja himnaferð sína til borgar Guðs. Gleðisöngvar slíkir sem dauðleg eyru aldrei hafa heyrt óma í himinhvelfingunum. Engin jarðneskur íburður hefur nokkru sinni komist í hálfkvist við þessa sigurskrúðgöngu hinna endurleystu. Himneskir herskarar fylgja hinum fagnandi hóp endurleystra með gleði- og fagnaðarhrópum um himininn til borgar Guðs. Þegar hinir endurleystu nálgast hlið Guðs, „sjá þeir sveit engla báðum megin hliðsins“; og er þeir fara framhjá, „segir Jesús, ,Komið, þér hinir blessuðu föður míns, og takið að erfð ríkið, sem yður var fyrirbúið frá grundvöllun heims/ “ — sama, bls. 567. Hvílík heimkoma! Hvílíkir fjölskylduendurfundir! Mörgum öldum áður, á hérvistardögum sínum, hafði Jesús lofað, „Og þegar ég er farinn burt og hefi búið yður stað, kem ég aftur og mun taka yður til mín, til þess að þér séuð og þar sem ég er.“ (Jóh. 14, 3). Nú er þetta 'nforð uppfyllt. Öll fjölskylda Guðs er örugg og óhult innan hliða borgar Guðs — loksins komin heim! Jesús elskar sína eigin svo mikið að hann vill ekki vera aðskildur frá þeim. Lengi er hann búinn að hlakka til þessara fjölskylduendurfunda með sínu sanna fólki. Hvílíkur dagur! Karlar og konur, piltar og stúlkur, endurheimt úr landi óvinarins sameina nú raddir sínar í þakkar- og lofgjörðarsöngvum. Loks er bæn frelsarans að fullu svarað: „Ég vil, að það sem þú gafst mér, — að einnig þeir séu hjá mér þar sem ég er.“ (Jóh. 17, 24.). Aldrei framar munu synd eða syndarar aðskilja hina endurleystu frá endurlausnara sínum. Hér mun hann sjá ávöxt „þeirra hörmunga, er sál hans þoldi,... og seðjast." (Jes. 53, 11.). Gleði meistarans er fullnuð er hann horfir á verðlaun fórnar sinnar á Golgatahæð. Þeir tilheyra honum um alla eilífð. Jesús lætur nú þá, sem hann hefur keypt með blóði sínu, koma fram fyrir föður sinn „fram fyrir dýrð sína, lýtalausa í fögnuði." (Júdas 24.). Hér eru „þeir er varðveita boð Guðs og trúna á Jesúm.“ (Op. 14, 12.). Hér eru þeir „sem þú hefir gefið mér... og enginn þehra týndist." (Jóh. 17,12.). Hér er „frumgróði handa Guði og handa lambinu. Og í munni þeirra var enga lygi að finna; þeir eru 24

x

Bræðrabandið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bræðrabandið
https://timarit.is/publication/698

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.