Bræðrabandið - 01.11.1980, Blaðsíða 14
Lækning frá Satan
afdrifarík
Gripió niður í kaflann, FALL
AKABS" í. bókinni Prophets and Kings
eftir E.G.White.
"Mörgum hryllir vió þeirri hugsun
að hafa samband við miðla, en hrífast
samt af viðkunnanlegra formi andatrúar.
Enn aðrir láta avegaleiðast af kenning-
um Christian Science, og dulspeki
guðspekinnar og annarra austurlenskra
trúarbragða.
Postular svo til allra tegunda
andatrúar segjast hafa lækningamátt.
Þeir þakka þetta krafti rafmögnunar,
segulkrafti, svokölluðum "samhyggðar-
lækningum," eða blundandi öflum í huga
mannsins. Og það eru ófáir, jafnvel
á þessum tímum kristninnar, sem fara
til þessara lækningamanna, í stað þess
að treysta krafti hins lifandi Guðs
og hæfileikum velmenntaðs læknis.
Móðirin, sem vakir við sjúkrabeð barns-
ins síns, hrópar,"Ég get ekkert meira
gert. Er hvergi læknir sem getur læknað
barnið mitt?" Henni er sagt frá dásam-
legum lækningum miöils nokkurs eða
segulkraftalæknis. HÚn felur þeim ást-
kært barnið sitt, og leggur það jafn-
vissulega í hendur Satans eins og stæði
hann við hlið hennar. í mörgum tilfell-
um stjórnast líf barnsins eftir þetta
af illum öflum sem ómögulegt virðist
vera að brjóta á bak aftur". PK211. ★
”Herra, Herra“
"Ekki mun hver sá, er við mig segir:
Herra, herra, ganga inn í himnaríki,
heldur sá er gjörir vilja föður míns,
sem er í himnunum. Margir munu segja
við mig á þeim degi: Herra, herra, höf-
um vér ekki spáð með þínu nafni, og
höfum vér ekki rekið ut illa anda með
þínu nafni, og höfum vér ekki gjört
mörg kraftaverk með þínu nafni? Og þá
mun ég segja þeim afdráttarlaust:
Aldrei þekkti ég yður; farið frá mér
þér, sem fremjið lögmálsbrot."
Matt. 7,21-23.
"Vera má að þessir segist vera
fylgjendur Krists, en þeir hafa misst
sjónar á meistara sínum. Það kann að
vera að þeir segi: "Herra, herra"; þeir
kunna að benda á hina sjúku sem þeir
hafa læknað, og önnur kraftaverk, og
staðhæfa að þeir hafi meira af Anda og
krafti Guðs en sjáanlegt sé á meðal
þeirra sem halda lögmál hans. En
verk þeirra eru unnin undir stjórn
óvinar réttlætis, hans sem stefnir að
því að blekkja sálir, og þessi verk eru
til þess ætluð að leiða menn burt frá
hlýðni, sannleika og skyldu. 1 náinni
framtíð munu þessi kraftaverkaöf1
koma enn greinilegar fram á sjónar-
sviðið, því um þau er þetta sagt:
"Og það gjörir tákn mikil svo að það
lætur jafnvel eld falla af himni ofan
á jörðina í augsýn mannanna" E.G.White
í ST 26.feb.1885. ★
Þegar Kristur
neitaði að gera kraftaverk
"Frásögnin af freistingum Krists
átti að vera til lærdóms öllum fylgj-
endum hans. Þegar Satan blæs óvinum
Krists í brjóst að biðja fylgjendur
Krists um að gera kraftaverk ættu þeir
að svara eins hógværlega og sonur Guðs
svaraði Satan: "Ritað er: Ekki skaltu
freista Drottins Guðs þíns." Vilji þeir
ekki láta sannfærast af innblásnum
vitnisburði, mun auglýsing á krafti
Guðs ekki gagna þeim neitt. Dásemdar-
verk Guðs eru ekki framkvæmd til þess
að svala forvitni neins. Kristur,
sonur Guðs, hafnaði því að sanna fyrir
Satan vald sitt. Hann reyndi á engan
hátt að fjarlægja "EF" Satans með því
að gera kraftaverk.
Lærisveinar Krists munu komast í
svipaðar aðstæður. Vantrúaðir munu
heimta að þeir geri kraftaverk, til
sönnunar þeirri trú sinni að sérstakur
kraftur Guðs sé í söfnuðinum og að þeir
séu Guðs útvaldi lýður. Vantrúaðir,
sem þjást af sjúkdómum, munu fara fram
á það við þá að þeir geri á þeim krafta-
verk til að sanna það að Guð sé með
þeim. Fylgjendur Krists ættu þá að
fara að dæmi herra síns. Jesús notaði
ekki guðlegan mátt sinn til að þóknast
Satan með kraftaverki. Það geta þjónar
Krists ekki heldur gert. Þeir ættu að
vísa hinum vantrúuðu á hinn ritaða,
innblásna vitnisburð til þess að finna
þar sönnun þess að þeir séu hlýðið og
trúfast fólk Guðs og erfingjar hjálp-
ræðisins." MM 15 ★
14