Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2005, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2005
Fréttir DV
Borgarráð
vill bætur
Vilhjálmur H. Vilhjálms-
son hæstaréttarlögmaður
telur góðar líkur á að
honum takist að
sanna að Reykjavíkur-
borg hafi tapað fjár-
munum á samráði
oh'ufélaganna. Hann
segir í áliti til borgar-
ráðs að Reykjavíkur-
borg og fyrirtæki borgarinn-
ar eigi rétt til skaðabóta frá
olíufélögurrum vegna sam-
ráðs við útboð árið 1996.
Aðgerðir félaganna voru
ætlaðar til þess að draga úr
áhrifum útboðsins og
leiddu til þess að vérð á
bensíni og olíu var hærri en
ella. Hann treystir sér ekki
til að meta hvort félögin hafi
verið skaðabótaskyld vegna
útboðsins 2001.
Sveinbjörn
segist sakiaus
Sveinbjöm Kristjáns-
son, fyrrum aðalbókari
Landssímans og höfuð-
pauriim í svokölluðu
Landssímamáli, kvaðst
saklaus af ákærum á
hendur sér fyrir aðild að
skattamálinu sem nú hef-
ur verið höfðað á hendur
honum og öðrum sak-
bomingum í Landssíma-
málinu. Sveinbjörn segir
kvittun Tollstjóraembætt-
is liggja til grundvaUar því
að búið sé að greiða rúm-
lega átta miUjóna skatta-
skuld sem ákært er fyrir.
Sveinbjörn situr nú á
Litla-Hrauni og afplánar
fjögurra ára dóm fyrir
fjárdrátt.
Erfátœkt
á Islandi?
Pétur H. Blöndal,
þingmaðurSjálfstæðisflokksins.
„Þaö er hlutfallsleg fátækt á fs-
landi. Sumir geta ekki veitt sér
þaö sem aörir geta veitt sér.
Auövitaö þarfaö vinna að því
að þeim sem lökust hafa kjörin
og hefur vissulega margt áunn-
ist á undanförnum árum. “
Hann segir / Hún segir
„Þv! miður, já. Fólk má ekki
afla sér viöbótartekna sökum
skerðingarákvæða. Það væri
mikill kostur efþeirsem tíma-
bundiö geta aflaö sér tekna
fengju þaö. Þá þyrftu þeir ekki
aðstoð hjálparsamtaka."
Ásgerður Jóna Flosadóttir,
formaður Fjölskylduhjálpar
islands.
Stefán Hjörleifsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Japis, segist hafa orðið hissa
þegar hann frétti að hann yrði ákærður vegna vanskila á rúmum 22 milljónum í
staðgreiðslu- og virðisaukaskatt. Fjármál hafi ekki verið í hans verkahring og
hann kann Árna Þór og Kristjáni Ra. litlar þakkir fyrir að draga sig inn í dómsmál.
Segist lórnarlamb
Landssimadrengja
Ákærurnar í skattamálinu nú beinast gegn fimm einkahluta-
félögum í eigu Árna Þórs og Kristjáns Ragnars; Lífstíl ehf.,
Kaffi Le ehf., Japís ehf., ísafoldarhússins ehf. og Planet
Reykjavíkur. Um er að ræða vanskil á staðgreiðslu og virðis-
aukaskatti í flestum tilfellum.
Allir sakborninganna sem hlutu
refsingu í hinu svokallaða Lands-
símamáli eru meðal sakborninga
nú, auk Stefáns Hjörleifssonar sem
starfaði hjá Japis ehf. um sex mán-
aða skeið. Stefán er óhress yfir að
þurfa að sæta dómi enda hafi pen-
ingamál ekki verið á hans borði
mánuðina sem hann starfaði hjá
Japis.
„Þessi ákæra kom mér mjög á
óvart. Það var reyndar búið að segja
mér að ég yrði ekki ákærður," segir
Stefán Hjörleifsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Japis, sem nú
sætir ákæru vegna dráttar á greiðslu
virðisaukaskatts og staðgreiðslu
skatta. Nærri helmingur upphæð-
arinnar í ákærunum er vegna van-
skila Japis ehf., eða 22 milljónir.
Var greitt til baka
Stefán kveðst lítil sem engin
samskipti hafa átt við Kristján Ra.
og Árna Þór eftir að hann hætti
störfum sem framkvæmdastjóri
fyrirtækis þeirra í júlí 2001. Stefán
hafði þá starfað hjá félaginu um sjö
mánað skeið.
„Þetta var bara stutt tímabil í
mínu lífi og ég kann þeim félögum
satt best að segja litlar þakkir fyrir
að hafa flækt mér í þetta mál,“
segir Stefán, sem fullyrðir að þrátt
fyrir vanskilin á milljónunum 22
hafi þær verið greiddar, en ekki á
gjalddaga.
„Mér skildist á lögreglunni að
peningarnir hefðu verið greiddir
en samkvæmt lögum er hægt að
ákæra fyrir vanskil sem þessi. Ann-
ars var mitt hlutverk innan fyrir-
tækisins fólgið í markaðssókn sem
fyrirtækið hugðist leggjast í og ég
vann að, peningar og daglegur
rekstur voru ekki á minni könnu,"
segir hann.
Líður eins og Landssíma-
stelpunni
Stefán segir að fyrst saksóknari
hafi á annað borð ákveðið að
höfða mál vegna vanskila félaga í
eigu Árna og Kristjáns hafi í raun mna skatta-
ekki verið hægt annað en að ákæra
hann sjálfan, þar sem hann var
einn af stjórnendum fyrirtækj-
anna á því tímabili sem van-
skilin áttu sér stað. Hann
kveðst ekki hafa áhyggjur
af því að lenda í klefa á
Litla-Hrauni vegna
málsins og treystir á
að við aðalmeðferð
málsins fyrir dómi
muni hann verða
sýknaður af ákærun-
um.
„Ég hef engar
áhyggjur af að ég verði
ekki sýknaður," segir
Stefán. „Mér líður svolítið
eins og stelpunni í Lands-
símamálinu, án þess að vita
hvernig henni leið eða
þekkja hana neitt. Þarna
flækist maður inn í mál sem er
auðvitað angi af stærra máli.
Þessir strákar voru náttúrulega
fullir af krafti og áræðni á þeim
tíma sem ég
Kann þeim litlar þakkir Stefán Hjörleifsson,
fyrrum samstarfsmaður Kristjáns Ragnars og
Árna Þórs, vandar þeim ekki kveðjurnar eftir
nokkurra mánaða samstarf. Sætir nú ákæru
vegna aðildar að 22 milljóna króna vangold-
» '
hóf að starfa
hjá þeim og
auðvitað
hreifst mað-
ur með,“ seg-
ir Stefán Hjörleifsson sem fullyrðir
að milli sín og Skjásdrengjanna
sé ekkert samband í dag.
helgi@dv.is
AKÆRURGEGN
FIMMMENNINGUNUM
Lífstíll ehf.
Eignarhaldsfélag sem átti í nokkrum
félögum auk þess að reka Hótel
Borg.
Ákærðun Kristján Ragnar
Kristjánsson framkvæmda-
stjóri.
Vanskil á viröisaukaskatti og
staögreiöslu á árunum 2002 og
2003, samtals aö upphæö
16 milljónir króna.
Planet Reykjavik
Átti og rak líkamsræktarstöð undir
sama nafni í Austurstræti.
Ákærðun Kristján Ragnar
Kristjánsson, stjórnarmaður V’AÁJ
og daglegur stjórnandi.
Vanskil á staðgreiöslu opinberra
gjalda áriö 2003, samtals aö upp-
hæö 3,5 milljónir króna.
Japis ehf.
Átti og rak Japis, hljómplötuútgáfu
og afþreyingarverslanir.
Ákærðin Kristján Ragnar
Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri og stjórnarmaður, og
Stefán Hjörleifsson fram-
kvæmdastjóri.
Vanskil á staögreiölu og viröisauka-
skatti, samtals aö upphæö 22 millj-
ónlrkróna.
Kaffi Leehf.Thorvaldsen bar
Ákærðir. Kristján Ragnar
Kristjánsson stjórnarmaður,
Ragnar Orri Benediktsson
framkvæmdastjóri, Árni Þór
Vigfússon stjómarmaður og
Sveinbjörn Kristjánsson
stjórnarmaður.
Vanskil á staögreiöslu og
viröisaukaskatti, samtals aö
upphæö 9 mllljónir króna.
I ísafoldarhúsið ehf.
Rak veitingastaðinn Sportkaffi.
Ákærðir: Árni Þór Vigfússon fram-
' kvæmdastjóri og Kristján Ragnar
Kristjánsson stjórnarmaður.
Vanskil á staögreiöslu og víröisauka-
skattl, samtals aö upphæö 5 millj-
ónirkróna.
Samtals vanskil: 55 milljónir króna
Krakkar úr 10. bekk í Valhúsa- og Hlíðaskóla fylgdust með þingfestingunni
Skjár einn verri nú og Kristján Ra. sætari en Árni Þór
Þétt setin n bekkur Unglingar úr 10. bekk fylgdust spenntir með þingfestingunni I gær. Frá
þeirra sjónarhóli á ákæruvaldið erfitt verk fyrir höndum, enda fulltrúi saksóknara einn ámóti
fimm sakborningum og fjórum lögmönnum.
Það vakti athygli þegar mál
fimmmenningana Árna Þórs, Krist-
jáns Ragnars, Stefáns Hjörleifsson-
ar, Ragnars Orra og Sveinbjörns
Kristjánssonar var tekið fýrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær að stór
hópur 15 og 16 ára unglinga var
mættur til að vera viðstaddur þing-
festingu málsins.
Ástæðan fyrir heimsókn ungling-
anna var þó ekki brennandi áhugi á
skattalagabrotum félaganna heldur
var þar á ferð hópur nemenda í 10.
bekk Valhúsa- og Hlíðaskóla sem var
mættur til að kynna sér starfsemi
héraðsdóms og það sem þar fer
fram.
Þegar Kristján Ragnar og Árni Þór
mættu mátti heyra klið og fliss með-
al kvenkyns nemenda úr skólunum.
„Mér finnst Kristján sætari,"
heyrðist hvíslað úr munni ungrar
stúlku. Kristján sýndi engin við-
brögð.
Drengirnir virtust meira líta til
keppninnar milli ákæruvalds og
varnar. Mátu sitt hvort liðið og sáu
strax að ákæruvaldið var einmana,
sitjandi örðum megin í salnum.
„Ég held að Skjáseinsgaurarnir
vinni, þeir eru fleiri," sagði ungur
áhugamaður um dómaframkvæmd
við vin sinn sem brosti.
Aðspurðir sögðust nokkrir gest-
anna þekkja til sakborninganna frá
gullárum félaganna, Kristjáns og
Sætari en Árni? „Mér finnst Kristján sæt-
ari, “ heyrðist hvíslað úr munni ungrar stúlku
við þingfestinguna i gær. Kristján var á
gullárum sinum taiinn einn eftirsóttasti pip-
arsveinn landsins. .
Árna Þórs. „Mér fannst Skjár einn
betri þegar þeir voru þar, þó ein-
hverju hafi verið stolið," sagði ungur
maður sem taldi strákana í vondum
málum að loknu þinghaldinu. „Þetta
eru engir smá pengingar, sjitt."
helgi@dv.is