Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Page 3
I>V Fyrst og fremst FIMMTUDACUR 3. MARS 2005 3 Ráðgjafar fylgjast með Davíð Davíð Oddsson utan- [ ríkisráðherra I viðtali við Alþingi i gær. Skyndimyndin Davíð Oddsson utanríkisráðherra varð viðtalsefni fjölmiðla í gær eftir fyrirspurnartíma á Alþingi í hádeginu. Evrópumál Framsóknarflokksins voru ofarlega á döfinni en Davíð gerði lítið úr „hugsanlegri" stefhubreytingu Framsóknar; sagði enga nýja ákvörðun hafa verið tekna, hvorki í flokki né ríkisstjórn. Á myndinni sem ljósmyndari DV tók í gær má sjá Davíð í viðtali við Kristján Má Unnarsson á Stöð 2. Athygli vekur að tveir helstu ráðgjafar og hugmyndasmiðir Davíðs; Illugi Gunn- arsson og Albert Jónsson, standa til hliðar og virðast hlusta íbyggnir á það sem formaður segir. Likt og þeir séu að ganga úr skugga um að engar bollu- dagsbombur verði látnar falla. Maðurinn með stílabók í hönd sem snýr baki í myndavélina er Albert Jónsson, sendiherra í utanríkisráðuneytinu. „Við vorum nú bara niðrá þingi að fýlgjast með í hádeginu og höfðum rölt allir saman út þegar fjölmiðlarnir mættu,“ sagði hann en vildi lítið tjá sig um hvort orð Davíðs hefðu verið í samræmi við það sem fýrir- fram var ákveðið eða hvaða tilgangi bláa stílabókin þjónar sem hann ríghélt í. Eftir viðtalið röltu þremenningarnir á brott og hafa trúlega skeggrætt stöðu mála. Enda nóg um að tala þegar hægri hönd- in í ríkisstjórn er hönd Halldórs Ásgrímssonar. Spurning dagsins Hvervinnur Idolið? Er ekki með Stöð 2 „Ég get ekki svarað þvíþví ég fylgist ekki með keppninni. Við erum ekki með Stöð 2 heima hjá mér." Hrefna Ólafsdóttir, nemi í Setbergsskóla. „Ég spái því að Davíð Smári vinni þetta. Þetta er töffari og ímynd sterku, þöglu týpunnar." Guðmundur Erlingsson, nemi í Flensborg. „Mér finnst að Davíð Smári eigi að vinna Idolið. Hann er besti söngvar- inn í keppn- inni." Tómas Barichon, S. bekk í Stóru-Vogaskóla. „Ég held með Davíð Smára. Hann syngur mjög vel og er líka svo mikill töffari." Hlynur Steinn Þórsson, 5. bekk í Myllubakkaskóla. „Davíð Smári tekur þetta. Mér finnst hann syngja best og stelp- urnar heilla mig ekki." Jóhanna Sigrún Bjarnadóttir, nemi í Breiðholtsskóla. Þriggja manna úrslit í Idol verða annað kvöld. Jón Páll veðjaði vatnsrúminu „Þetta var ijanúar 1992 þegar við fögnuðum eins árs afmæii Gym80. Þetta var voða flott, haldið á Hótel Islandi. Ég ernúna í Banda- ríkjunum að vinna í heimildarmyndinni um Jón Pál. Við erum hérna að taka viðtöl við Bill Kasc- meyer, eða Kasmæjerinn eins og hann var alltaf kallaður. Hann er náttúrulega goð- sögn i þessum bransa. Myndin verðurflott, ég lofa þvi." Jón Páll og Andrés Guðmundssc krók Jón Páll tapaði og varð að láta rúmið sitt af hendi. „Þessu man ég vel eftir/'segir Hjalti Úrsus Árnason um gömlu myndina.„Þarna eru Andrés G uðmundsson og Jón Páll í krók eins og kallað er. Ég og Magnús Ver erum þarna fyrir aftan og fylgjumst með. Það sem erskemmtilegt við að rifja þetta upp erað Jón Páll veðjaði við And- rés forláta vatnsrúmi sem hann átti upp á að hann mundi ekki tapa króknum. Andrés tókJónPálsvoá endanumog hirti rúmið af honum/'segir kraftakarlinn. Málið Flæöisker. Að vera á fléeðiskeri stadd- ur þýðir að vera í klípu, samkvæmt orðtakabók Sölva Sveinssonar. Hann segir:„Þau sker eru kölluð flæðisker sem einungis standa upp úrsjó á fjöru en fara í kafþegar fellur að. Þessi sker eru oftast þakin sjávargróðri, og þar freistuðust menn til þess að beita fé sínu. En þá var líka eins gott að sækja það áður en féll að. Menn eru í klípu ef þeir eru staddir eins og á flæðiskeri og flóöið að koma. Miklu algengara er að nota orðtakið með neitun: einhver er ekki á flæðiskeri staddur efhann er efnaðureða á góða að." ÞEIR ERU SVILAR Hagkaupserfinginn & framleiðandinn Sigurður Gísli Pálmason viðskiptamógúll og Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiöandi eru svilar. Þeir eru kvæntir systrunum Sigríði og Guðmundu Helen Þórisdætrum. Báðir búa þeir núna I Suður-Kaliforníu. Sigriöur kona Sigurjóns er sáifræðingur og hans nánasti ráögjafi I öllum stórum máium. Guðmunda Helen er klæöskeri að mennt. Svilarnir hafa afog til staðiö I viðskiptum saman og standa saman að listaævintýri á Eiöum. ‘BrauðútsaCa, aíít að 50 % afsíáttur af öttutn 6rauðum þessa vitqt. 9{já oCfurfczrð þú einungis nýbökuðgceðabrauð. %omcCu á brauðútsöCuna og taktu CöIqi mánaðrins með þér BAKARIIÐtf AUSTURVER Háaleitisbraut 68 Sími 568 1120 Rangarsel 6 Simi 587 1120 - Bakstur er okkar fag - kaífi mánaðrins er ítöCsfiepCakgkg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.