Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 Fréttir JOV Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, bendir á hversu jaðarskattar fara illa með þá ellilífeyrisþega sem fá greiðslur úr lífeyrissjóði. Dæmi eru um að 75% teknanna fari í skatt. Gera út á norðurljós Hópur skipaður fulltrú- um Isafjarðar, Hornafjarð- ar, Mývatns, Vopnafjarðar og Kópavogs hefur einsett sér að nota norðurljósin til að efla ferðcunennsku á ís- landi. „Flest það sem þarf til að setja saman ævintýra- lega vetrarupplifun er þegar til staðar á öllum viðkomandi stöðum. Norð- urljósin eru skrautfjöður sem fullkomnar pakkann. Norðurljósaskoðun verður fléttuð saman við aðra af- þreyingu sem fyrir er á stöðunum," segir á horna- fjordur.is. Þrýstikútur féll á sjómann Maður slasaðist lítillega við uppskipun í Hafnar- fjarðarhöfn í gær. Maður- inn var að vinna að upp- skipun í togarann Baldvin Þorsteinsson EA-10 þegar þrýstikútur, sem notaður er í kælikerfi skipsins, féll ofan á hann. Samkvæmt lögregl- unni í Hafnarfirði slapp maðurinn vel úr óhappinu. Hann beinbrotnaði eldd en mun þó vera eitthvað mar- inn. Maðurinn var fluttur á slysadeild til athugunar eftir óhappið. Hálkuslys í þíðunni Lögreglan á Selfossi þurfti að sinna þremur hálkuslysum í gær. Kona hlaut höfuðmeiðsl þegar hún sté út úr bfl og tveir aðrir ökklabrotnuðu. Að sögn lögreglunnar er þetta há tala í háikutíð en er enn hærri þegar horft er til þess að nú er þíða og h'tið um svell. Tveir ökumenn þjáð- ust af þungum bensínfæti í nágrenni Selfoss. Annar var hirtur á 128 kílómetra hraða og hinn á 136. Að sögn lögreglunnar voru akstursskilyrði léleg, bleyta á drullugum veginum og útsýni út um rúður lélegt. gamalt fólk í eineld „Það nær ekki neinni átt hvemig stjómvöld hegða sér og það er ekki hægt að nefna þetta annað en einelti að svona skuh farið með aldraða," segir Ólafur Ólafsson, fyrrverandi landlæknir, sem hélt tölu á fundi hjá Félagi eldri borgara í Hafnarfirði um helgina. Ólafur Ólafsson lagði þar fram töflu sem sýndi svart á hvítu hve jað- arskattar fara illa með ellilífeyris- þega. Skattbyrði þeirra sem safnað hafa sér einhverjum hfeyri eykst eft- ir því sem greiðslur úr lífeyrissjóði eru hærri. „Ef við tökum dæmi af einhleyp- um manni sem fær rúmar fjörutíu og fimm þúsund krónur úr lífeyris- sjóði og þiggur síðan skertan lífeyri frá Tryggingastofnun, kemur í ljós að hann greiðir rúm 67% af tekjun- um úr lífeyrissjóðnum í skatta. Eftir því sem lífeyrisgreiðslur eru hærri, því hærra hlutfall þeirra fer í skatta. Þetta má allt sjá í samantekt Einars Árnasonar hagfræðings sem reikn- aði þetta út fyrir Félag eldri borg- ara,“ segir Ólafur. Landlæknirinn fyrrverandi bend- ir á að það sé til lítils að greiða í líf- eyrissjóð ef skatturinn hirðir það aht þegar menn ætía að fara að njóta þeirra fáu aura sem menn leggja fyr- ir til ellinnar. Óþekkt í nágrannalöndum „Þetta er náttúrlega með eindæmum og þekkist hvergi í nágrannalöndum okkar,“ bendir Ólafur á og tekur annað dæmi af einhleypri manneskju sem hefur greitt lengi í lífeyrissjóð og fær greitt úr honum liðlega 138 þúsund á mánuði. Sú manneskja greiðir rúm 75% af lífeyrissjóðsgreiðslum sínum í skatta. Á það skal bent að á meðan viðkomandi manneskja var á vinnu- markaði og greiddi í sjóðinn tók skatturinn sinn toh af þeim tekjum sem aflað var og þar með af því sem greitt var í lífeyrissjóðinn. Aðbúnaður aldraðra til skammar „Það er tU skammar hvernig búið er að öldruðum hér á landi og ætla mætti að stjórn- völdum þættí nóg hvernig að þeim er búið þegar þeir veikjast. En þeir fá ekki einu sinni að njóta þess sem þeir hafa safnað í gegnum ævina. Það er kominn tími til að menn vakni og þessi mál verði tekin fyrir,“ segir Ólafur GuðmundurÁrni Stefánsson alþingismaður var einn þeirra þingmanna sem voru á fundin- um. Hann tekur undir orð Ólafs og bendir á að það sé einmitt það sem gerist að tekjutengingin við bótakefið sé svo skörp að það geri lífeyrisgreiðslurnar að engu. „Það er augljóst að við svo búið má ekki standa. Við hjá Sam- fylkingunni höfum haldið þessu ffam, það þarf að vinna bug á þessu í áföngum því bótakerfinu er ekki ætíað að skerða megnið af því sem fólk saftiar tíl elli- áranna," segir Guðmundur Árni. bergljot@dv.is „Þeir fá ekki einu sinni að njóta þess sem þeir hafa safnað í gegnum ævina. Það er kominn tími tilað menn vakni." Aldraðir fá ekki aðnjóta þess sem þeir leggja fyrir Ólafur spyr hvort ekki sé nóg að eldra fólk þurfi að hverfa til baðstofumenningar á hjúkrun- arheimilum. Það sé lika hirt af þeim, sem hafi heiisu, það sem þeir hafi safnað í lifeyrissjóð í gegnum árin. AHRIF SKERÐINGA OG SKATTLAGNINGAR I JANUAR 2004 Þrjú dæmi um mánaðargreiðslur frá TR og úr lífeyrissjóði, í öllum tilfellum er um einstakling að ræða: Lífeyrissjóður 0 45.888 91.776 138.455 Grunnlífeyrir 21.249 21.249 21.249 21.249 Tekjutrygging 41.655 41.655 21.175' 0 Heimilisuppbót 17.469 17.469 8.882 0 Tekjutryggingarauki 20.540 0 0 0 Einqreiðslur 3.319 2.464 1.252 0 Samtals frá TR 104.232 82.373 52.558 21.249 Alls 104,232 128.725 144334 159.704 Gr. skattur 38,58% -12.717 -2.166 -28.188 -34.118 Ráðstöfunartekjur 91.515 106.559 116.146 125.586 Auknar ráðstöfunartekjur 15.043 24.631 34.071 Skerðing og skattur 67,2% 73,2% 75,4% Syngjandi sæll og glaður Geðþekkur gítarleikari og dægur- lagaraulari er óvænt lentur á hálu svelli. Félagar hans, sem ekki virðast stöðugir í trúnni, beina að söngvar- anum kastíjósi. Segja hann vera könguló í svikavef. Svarthöfða er brugðið. Svo viU tíl að Guð hefur gríðar- lega velþóknun á okkar manni, algera tröUatrú. Og þetta er gagn- kvæm aðdáun því okkar maður ber óbifandi traust til Guðs sem aUtaf reddar öUu. Það er því ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur þegar Júdasarnir skjótast fram úr skúmaskotum sínum með for- mæfingar á vör. Þeir segja hann vera svikara. Hann hafi sölsað undir sig heUa mublubúð með spænskum innan- stokksmunum án þess að draga upp veskið eins og um hafi verið samið. Einnig hafi hann prangað inn á trú- aðan bílaþvottamann ónýtri þvotta- samstæðu sem aðeins gerði iUt verra - ef nokkuð. Sérstaklega þykir þetta ámæUsvert þar sem bflaþvottamað- urinn mun vera afar hreintrúaður. Hvernig hefur þú það? „Ég hefþaö gott/'segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, tónlistarmaöur og upptöku- stjóri.„Við erum að leggja lokahöndá Eurovision-lagið og ég erá leiðinni tilLondon til að hljóðblanda það. Ég hef trú á þessu lagi. Það er bít í því og það er hægt að dansa við það. Sfðan er ég að fara afstað með Hljóðvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna. Það verð- ur flott dæmi fyrir alla sem vilja læra það sem þarf til taka upp tónlist og vinna hana. “ AUir eiga mennimir þrír trúarlegt athvarf á einum og sama staðnum; sjónvarpsstöðinni sem boðar jöfh- um höndum fjársafnanir fyrir nýjum digitalgervihnattagræjum og hins vegar eld og brennistein á efsta degi og þaðan drjúgan spöi inn í eUífðina. Það er sagt vera mjög óþægUegt fyrir þá sem ekki þykjast aflögufærir um dáh'tínn peningaseðU. Og nú er aUt í hnút. Megabömm- er á Ómega. AUir á mótí öUum. SUfurpeningarnir rúUa um aUa ganga. Það er handagangur í öskjunni. En á mUli þess sem trúbræðumir eltast við aur- inn sitja þeir hm'pnir saman og fara með bænina einu. Ó, elsku besti guð! VUtu koma inn í aðstæður okkar? Reiðufé væri best. Amen. Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.