Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 Fréttir DV Hraðakstur við Borgarnes Tveir voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Borgarnesi í gær. Að sögn lögreglunnar var ekki um neinn ofsaakst- ur að ræða heldur voru bfl- arnir rétt yfir mörkunum. Annars er tíðin róleg þar vestra. Lögreglan á Akranesi átti náðugan dag í gær og engin mál komu upp í umdæmi hennar þrátt fyrir að fylgst hefði verið með umferð um göngin og meðfram Akraf- jalli. Útilokuð frá húsakaupum Jóna S. Stefánsdóttir og Stefán Úlfarssson vilja fá að bjóða í íbúðarhúsið á Ketilstöðum III á jafn- ræðisgrundvelli við aðra. Jörðin og húsið eru í eigu ríkisins og á forræði landbúnaðarráðuneytis- ins. Sveitarstjórnin vill fá að að kaupa Ketilstaði in af ráðuneytinu til að selja ábúandanum á Ketil- stöðum II sem vill stækka lönd sín. Sveitar- stjórnin telur það hags- muni Mýrdalshrepps að styrkja búskapinn á jörðinni og að eðlilegt sé að íbúðarhúsið fylgi með „með tilliti til eðli- legrar framþróunar og nýliðunar". Fréttir Stöðvar2eða Sjónvarpsins? Kristján Gunnarsson, forseti Starfsgreinasambandsins. „Ég vel Sjónvarpiö alltaf. Þaö er dreiöanlegra, finnst manni. Þetta er svona íhaldssemi. Ég horfí oftastábáöa fréttatlm- ana, en horfí skarpar á RÚ V. Þaö er einhver trauststilfinn- ing sem maður hefur. Reynsla mín afþeim er meira meö þeim hætti. Mér fínnst vanta stööugleikann I Stöö 2. Línurit I því hvernig þeir taka á mái- um er eins og Tröllaskaginn. Annaöhvort taka þeir allt of mikiö á eöa oflltiö.“ Hann segir / Hún segir „Ég reyni nú yfírleitt að horfa á hvort tveggja. Ég kann vel viö báðar fréttastofurnar, en mér finnst þær ólíkar. Mér fínnst aö RlkisútvarpiÖ sé nú alltafbara Ríkisútvarpiö. Þetta eru gömlu góöu fréttirnar og ég treysti þeim mjög vel. Mér þykir meira hjá Stöð 2 að kylfa ráöi kasti hvað veröur ofan á. Jafn- vel ekki s vo mikil yfírvegun. “ Eiginmaður Önnu Þorsteinsdóttur ljósmóður, Óskar heitinn Guðjónsson, dó með kvalafullum hætti á hafi úti árið 1997 þegar skip Samskipa, Dísarfell, sökk í sjó. Sjópróf í málinu sýndu að skipið var hálfgert manndrápsfley og stefnan byggist á því. Ekkja í mál viö Samskip Bftip kvalafullan „Málið var að skipið var ekki í standi“ eiginmannsms 72 ára gömul ekkja skipverja af Dísarfellinu sem fórst í mars 1997 hefur höfðað mál á hendur Samskipum vegna dauða eigin- manns síns. í ljós hefur komið að fjölmargt var að skipinu þegar það sökk. Ekkjan krefst tæplega 17 milljón króna skaðabóta frá Samskipum. Tveir menn létust með Dísarfellinu 9. mars 1997,185 kílómetra suðaustur af Homafirði, en 10 var bjargað af þyrlu Landhelgisgæslunnar. Dæla lak í ljós kom í skýrslu sjóslysanefndar að botn skipsins var hættulega tærður, viðvörunarkerfi vegna leka var ónógt, bilun var í dælukerfi og meira að segja lak dæla. Auk þess vom lestar ekki vatnsþéttar, gámar vom lausir og óheppilega sldpulagðir, röng vinnu- brögð vom viðhöfð við dælingu úr lest- um og neyðarkall var sent of seint. Til að bæta gráu ofan á svart virkuðu björgunarbátamir ekki og fengu eftir- litsaðilar ákúrur sjóslysanefndar fyrir það. Óskar Guðjónsson, 59 ára gam- all matsveinn, er sagður hafa bent á að eitthvað væri í ólagi við skipið. Hann var í sinni síðustu ferð þegar skipið sokk. Óhugur vegna skipsins „Það var voðalega skrítið hversu mikill óhugur var í honum að fara þessa ferð," segir Arma Þorsteinsdóttir, ekkja Óskars. „Það var búið að blunda í honum að hætta á sjónum. Svo var þetta, kvöldið sem þeir fóm, að hann var búinn að fá loforð fyrir vinnu í landi. Hann ætlaði ekki að fara aftur," segir Anna. Fram kemur í stefnunni á hendur Samskipum að skipverjar hafi haft vantrú á skipinu. Meðal annars hafi verið sjóbragð af neysluvatni skipsins. Hroðalegur dauðdagi í stefnunni segir að útgerð skipsins hafi sýnt stórfellt gáleysi. Öskar heiúnn hafi verið munstraður á manndrápsfl- eym, sem eigendum útgerðarinnar hafi verið ljóst að gæti sokkið hvenær sem var eða hafi mátt vera það ljóst. 12 skipverjar fóm í sjóinn í flotgöllum að- faranótt 9. mars 1997 og fiutu miUi hálfsokkinna gáma. Þá ályktun megi draga að Óskar hafi orðið fyrir hroða- legri lífsreynslu fyrir dauða sinn vegna aðstæðna, sem útgerðin áttí sök á, samkvæmt stefnunni. Hann hafi og sannanlega hlotíð kvalafullan dauðdaga, sem hafi verið afleið- ing af vanrækslu stjómenda Samskipa. Óskar er talinn hafa látíst úr hjartaslagi meðan hann beið björgunar í sjónum. Fleiri málaferli „Málið var að skipið var ekki í standi," segir Anna, sem bíður af- stöðu dómara héraðsdóms. Fleiri en Anna standa í mála- ferlum vegna skipbrots Dísarfells- ins. Fjórar til fimm stefnur em ým- ist í undirbúningi eða hafa verið lagðar ff am. Dísarfellið sigldi undir fána smáríkisins Antígua og Barbúda í Karíbahafi. Vegna þess hafði Sigl- ingastofnun Islands ekki skoðun- arskyldu á ástandi skipsins, heldur erlent flokkunarfélagið. Þó ber stofhuninni samkvæmt alþjóðlegum samningum skylda til að kanna ástand ákveðins hluta þeirra skipa sem hingað koma. Öll skip íslenskra fyrirtækja í miUilandasiglingiun em nú undir er- lendum fánum. Allar Norðurlandaþj- óðir, fyrir utan ísland, hafa tekið upp sérstakar skattaíviln- anir fyrir flutninga- sldp til að halda flotanum undir eigin flaggi. Ekki náðist í Ólaf Ólafsson, stjómarfor- mann Samski- pa, vegna málsins. jontr- austi@dv.is Disarfellið Ástand skipsins þegar það sökk hefur verið metið afar lélegt. nrtSKlP Óskar Guðjónsson Matsvemnmn hafði áhyggjur afástandi Dísarfells ins áður en það sökk. Festi gröfuna í Rauðavatni Gröfumaður á hálum ís „Ég var bara að leika mér á ísn- um,“ sagði Einar Árnason en hann lenti í heldur skringilegum aðstæð- um á Rauðvatni síðasta þriðjudag. Þegar ljósmyndara DV bar að garði var grafa sem Einar var á föst í vatn- inu og virtist hann ekki getað losað hana. „Ég var búinn að keyra eith- vað út á ísinn en á bakaleiðinni bro- tnaði hann undan gröfunni með þeim afleiðingum sem gefur að líta á myndunum." Ljósmyndari stóð drykklanga stund og fylgdist með Einari þenja gröfuna í von um að koma henni úr sjálfheldunni en allt kom fyrir ekki. Að lokum gafst hann upp og þáði boð Ijósmyndara um far, lét skutla sér á Bónusvideo í Árbæ. Aðspurður sagðist hann ekk- ert vilja blanda lögreglunni í málið og hugðist bjarga gröfunni upp á eigin spýtur. andri@dv.is EinarÁrnason Áttiivök að verjast i baráttunni viö i isinn á Rauðavatni Öllum brögðum beitt. Komst hvorki lönd né strönd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.