Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Qupperneq 21
DV FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 2 7 Les aldrei leiðbeiningar „Ég er svolítið tækjafrík," segir Hólmfnður Anna Baldursdóttir, skrifstofustjóri Sameinuðu þjóð- anna. „Nýjasta tækið mitt er iPod- inn minn en ég á einnig minidisc- spilara, sem er í miklu uppáhaldi, digital-myndavél og vídeóupp- tökuvél. Draumatækið mitt núna væri góð fartölva," segir Hólmfríð- ur Anna og viðurkennir að hún sé tiltölulega fljót að tileinka sér tæknina og sé frekar tæknivædd og noti til dæmis frekar dvd-spilarann en gamla góða vídeótækið. „Nýji iPod-inn var bilaður þegar ég keypti hann í Bandaríkjunum og ég er búin að standa í miídu stappi að fá honum skipt en ég er viss um að hann verður uppáhaldstækið mitt þegar ég fæ hann aftur í hend- urnar. Hann er ótrúlega flottur, lít- ill og bleikur." Hólmfr íður Anna segist kunna á öil tækin sín enda fikti hún sig alltaf áfram þegar hún fær nýtt tæki í hendurnar. „Ég þykist alla- vega kunna á þetta en held að ég sé með „read the fucking manual syndrome" sem lýsir sér í þvf að ég les aldrei leiðbeiningarnar heldur fikta 'mig bara áfram. Annað tæki sem er í miklu uppáhaldi hjá mér er blenderinnn minn. Hann er mikið notaður og ég lfki honum við internetið. Ég veit ekki hvernig líf mitt væri ef ekki væri fyrir blender- inn.‘‘ Reyni að fylgjast með „Uppáhaldstækið mitt er líklega tölvan mín, hún er allavega það nauðsynlegasta fyrir mig,‘‘ segir Kristín Rós Hákonardóttir sund- drottning og nemi. Kristín Rós seg- ist nota tölvuna mikið bæði fyrir skólann og sjálfan sig. Þar að auki á hún digital-myndavél sem hún kann ekkert of vel á og hefur afnot af gömlum dvd-spilara sem for- eldrar hennar eiga. „Draumatæki mitt þessa dag- ana er iPod. Ég er náttúrulega mik- ið á ferðalagi vegna sundsins og það væri gott að geta sett alla geisladiskana á einn stað í staðinn fyrir að þurfa að ferðast með þá alla. Ég veit samt ekki hvort ég muni kaupa hann á næstunni. Ég er ekkert hrædd við nýja tækni og er vön að fikta mig bara áfram. í dag verður maður líka að vera dug- legur að tileinka sér tæknina og þá sérstaklega þegar kemur að tölv- um. Þar er alltaf verið að bæta og endurnýja og ég reyni að fylgjast með.“ Síminn og fartölvan í uppáhaidi „Ég held að ég sé ekkert svo voðalega tæknivædd," segir Stella Rósenkranz danskennari en skiptir um skoðun þegar hún er búin að telja upp tækin sem hún á. „Ég á náttúrulega síma, fartölvu, digital- myndavél, dvd og gsm-síma með myndavél svo kannski, við nánari athugun, er ég miklu tæknivæddari en ég hélt,“ segir hún hlæjandi. Uppáhaldstækin hennar Stellu eru síminn hennar, nýjasti Sony Ericson-síminn, og fartölvan. „Það var löngu kominn tími til að skipta um síma og þá kom ekki annað til greina en að kaupa þann besta, þessi er mjög fallegur og ég er mjög ánægð með hann. Ég kæmist ekki af án símans og fartölvunnar. Maður reynir náttúrulega að nýta sér tæknina því hún færir manni byr undir báða vængi. Ég held að mér hafi tekist að fikta mig í gegnum öll þessi tæki mín enda þarf maður að kunna á það sem maður á. Ef ég væri föst á eyðieyju þá held ég að ég myndi helst vilja taka með mér símann og fartölv- una, þótt tölvan myndi lítið nýtast þar sem það væri örugglega engin nettenging. En ég gæti spilað kapal og stytt mér stundir.“ Digitalið er prump „Ég get ekki sagt að ég sé tæknivædd enda hef ég ekki enn náð að eignast tölvu,“ segir Inga Sólveig Friðjónsdóttir ljósmynd- ari. „Myndavélin mín er í uppá- haldi hjá mér en ég nota alltaf þessa gömlu góðu en ekki digital- vél. Ég held að digitalið sé algjört prump og efa að það eigi eftir að lifa. Það er endalaust verið að breyta þessari tækni og þetta er tómt drasl sem bilar svo ef maður vill fá eitthvað sem endist þá mæli ég með manual." Inga Sólveig segist kunna eitt- hvað á tölvu og er nýbúin að panta sér eina slíka. „Ég hef lengi þrjós- kast við. enda finnst mér svo frekt að ædast til að allir eigi tölvu. Mað- ur er alveg út úr kortinu nema vera tengdur netinu og getur meira að segja ekki keypt miða á tónleika nema hafa aðgang að tölvu,“ segir Inga og bætir við að hún hafi loks látið undan og pantað sér tölvu svo hún getí verið í sambandi við um- heiminn. Aðspurð hvert uppáhaldstækið hennar er segir hún að sér þyki vænt um flest tækin sín. „Mér þyk- ir voðalega vænt um myndavélina mína, sjónvarpið mitt, hljómflutn- ingstækin, bassann og bassamagn- arann. Ég held ég kunni á öll þessi tæki nema kannski vídeóið enda verður maður að kunna á það sem maður kaupir sér. Ég keypti mér líka dvd-spUara en hann skemmd- ist eftir litla notkun sem mér finnst fulllélegt." indiana@dv.is Nokkrar konur og tækin Tækninni fleygir stöðugt fram. Þær tölvur sem voru flottastar í fyrra eru úreltar í ár. Sumir eru fijótir að tileinka sér nýja tækni á með- an aðrir vilja helst stöðva tímann. DV Magasín ræddi við nokkrar konur og athugaði hversu tækni- væddar þær eru. §£\ f' í* Stella Rosenkranz „Ég á náttúrulega síma.fartölvu digital-myndavél, dvd og gsm-síma með myndavél svo kannsk!, við nánari athugun, er ég miklu tækni- væddari en eg hélt," segir hún hlæjandi. Inga Sólveig „Ég hef lengi þrjósk- ast við enda finnst mér svo frekt að ætlast til að allir eigi tölvu." Kristín Rós „Ég er ekkert tlrædd við nýja tækni og er SaSea v°n að fikta mig bara áfram. Hólmfrfður Anna „Ég veit ekki hvernig llf mitt væri ef ekki væri fyrir blenderinn."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.