Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Síða 23
E>V
Starfsnám
byggt á áratuga reynslu
SIMI 554 3200
sjónmælíngar & linsumátun
II
lóntæknistofnun
NAM
SKEIÐ
umgjörð + hert plast
Eg féll fyrir tuttugu
árum yngri manni
uvélanámskeið
al
Nánari upplýsingé
hjá Iðntæknistofnun í síma 570 710p,
897 0601 og á vefsíðu www.iti.is <
SM ARATORGI
S í MI 56 4 3 2 □ □
- við hliðina á Húsasmiðjunni
Sjónmælingar
í Hamraborg 10
sími 554-3200
Þegar ég giftist manninum mínum
var það fyrir mér það sem oft er kallað
hentugleikahjónaband. Ég var aldrei
ástfangin af honum en hann var vel
stæður og gat búið mér gott heimili.
Við eignuðumst fljótlega böm og ég
var alla tíð heimavinnandi, var ekkert
menntuð og hafði h'tið verið á vinnu-
markaðniun. Maðurinn minn átti sitt
eigið fyrirtæki og þénaði vel. Ég ein-
angraðist mikið. Mitt líf snerist um að
þjóna manninum og sjá um bömin.
Ég var aldrei neitt sérstaklega ham-
ingjusöm en leið samt bærilega, böm-
in mín þrjú veittu mér mikla gleði og
ég taldi sjálfri mér í trú um að það væri
það eina sem ég væntí af lífinu.
og ánægð en það er eitt sem skyggir á.
Sonur minn hefur aldrei talað við mig
aftur eftír að hann vissi að ég ætlaði að
vera með unga manninum og giftast
honum. Ég veit að einhveijum kann
að þykja ég harðbijósta, að velja kær-
asta fram yflr bamið sitt, en ég hef alla
tíð gert það sem öðrum þóknast og
mér fannst hreinlega vera kominn
tími til að ég hugsaði um það sem mig
virkilega langaði til að gera. Ég vona
að sonur minn eigi eftir að átta sig á
þessu þegar fram h'ða stundir en í dag
verð ég að sætta mig við að fylgjast
með honum úr fjarlægð.
Eignaðist loksins eigið líf
Maðurinn minn var h'tíð heima en
ætlaðist til að ég væri alltaf tilbúin
með mat hvenær sem hann kom heim
og væri tilbúin að sofa hjá honum
þegar honum hentaði, hvenær sem
það var SQlarhringsins. Ég hafði aldrei
mikinn áhuga á kynlífi með honum en
ég hélt að það væri bara svoleiðis, ég
hélt að konan ættí ekki að fá ánægju
úr kynlífinu. Bömin okkar uxu úr grasi
og áður en ég vissi af voru stelpumar
flognar úr hreiðrinu og sonur minn
var einn eftir heima, hann var töluvert
yngri én dætumar. Hann var mikill
mömmustrákur og við eyddum mikl-
um tfrna saman, hann skammaðist
sín aldrei fyrir mig eins og oft gerist
með krakka og við vorum bestu vinir.
Maðurinn minn var minna og minna
heima með árunum og mig grunaði
sterklega að hann stæði í framhjá-
haldi en satt best að segja var mér al-
veg sama, það þýddi að ég þurftí ekki
að sofa hjá honum eins oft. Þó að ég
hefði einangrast töluvert áttí ég mín
áhugamál sem ég gat sinnt af kost-
gæfrú eftír að bömin urðu stór. Ég fór
á alls kyns námskeið og fann mig alg-
erlega þegar ég fór
á námskeið í list-
málun. Ég var ein
af þeim elstu á
námskeiðinu en
passaði ótrúlega vel í hópinn, ég hafði
ekki skemmt mér svona vel síðan ég
var unglingur, frjáls og kát. Eftír síð-
asta tímann á námskeiðinu var haldið
lokahóf þar sem við hittumst heima
hjá einu okkar og borðuðum osta og
drukkum rauðvín.
Alsæl með nettan móral
Ég hafði tekið eftir því að einn af
strákunum var búinn að gefa mér
hýrt auga allt kvöldið og eftir því sem
ég drakk meira því opnari varð ég.
Hann tók mig að lokum á eintal inni
í eldhúsi og sagðist hafa þráð mig frá
því hann sá mig fyrst. Það runnu á
mig tvær grímur þar sem hann var
tuttugu árum yngri en ég og ég að
sjálfsögðu gift kona. Ég neita því þó
ekki að mér fannst hann spennandi
og áður en ég vissi af kyssti hann mig
ástríðufullum kossi og eitthvað inni í
mér bráðnaði. Mig langaði virkilega í
þennan unga mann. Svo fór að við
stálumst út svo lítið bar á og tókum
leigubíl heim til hans. Þar áttum við
lostafyllstu nótt sem ég hafði átt á
ævinni, ég vissi hreinlega ekki að
þetta væri til. Ég skreið heim
eldsnemma, með nettan móral en
alsæl. Maðurinn minn steinsvaf og
ég laumaði mér uppí til hans og
sofnaði með bros á vör.
Daginn eftir vaknaði ég við hann
var að hrista mig til, alveg snarbrjálað-
ur, spurði mig hvar í ósköpunum ég
hefði verið. Ég hafði fá svör á höndum
en stamaði upp úr mér að það hefði
bara verið svo gaman og ég farið um
leið og allir hinir. Hann virtíst aldrei
ætla að róast, varð bara reiðari og
reiðari og það endaði með því að
hann sló mig. Sonur okkur heyrði læt-
in og kom askvaðandi inn í herbergi.
Þegar hann sá föður sinn sitja ofan á
mér með hönd á loftí, tilbúinn til að
slá aftur, rak hann upp skaðræðisösk-
ur og réðist á hann. Þeir veltust um
dágóða stund meðan ég sat í hnipri á
rúminu og kjökraði. Þetta endaði með
því að maðurinn minn lagðist niður
grátandi og sonur minn rauk út, enn-
þá bandillur.
Hann hélt líka framhjá
Ég man satt best að segja ekki
hvað gerðist síðan en allavega hlýt ég
að hafa lognast út af. Ég rumskaði
þegar dætur mínar tvær vöktu mig.
Þá hafði staðið yfir fjölskyldufundur
hjá þeim í meira en tvær klukku-
stundir. Sonur minn hafði rokið
beint til þeirra og sagt þeim að
hverju hann hafði orðið vitni. Ég
kom fram í eldhús og þar sat maður-
inn minn skömmustulegur og horfði
í gaupnir sér. Þau fóru yfir stöðu
mála, sögðu mér frá því hvað hafði
farið þeirra á milli. Maðurinn minn
hafði viðurkennt fyrir börnunum
okkar framhjá-
hald sem hafði
staðið í fjölda ára.
Mér var í raun-
inni sama um það
en við tók erfiður skilnaður og skipt-
ing eigna okkar.
Hvað litla ástarfundinn sem batt
enda á hjónaband mitt varðar þá héld-
um við ungi maðurinn áfram að hitt-
ast í laumi. Ég vildi ekki fyrir nokkum
mun að bömin mín kæmust að því.
Við fórum hægt í sakimar og hittumst
bara heima hjá honum örfá kvöld í
mánuði en tilfinningar okkar til hvors
annars urðu bara heitari og heitari
með tímanum. Á endanum var svo
komið að ég gat hreinlega ekki haldið
þessu leyndu lengur. Ég boðaði dætur
mínar í mat til okkar sonar rrúhs og
bauð líka kærastanum mínum, ég ák-
vað að láta til skarar skríða og kynna
hann fyrir mikilvægasta parti lífs míns,
afkvæmum mínum sem vom nær
honum í aldri en ég sjálf.
Kærastann fram yfir barnið
Ég ætla ekki að fara ítarlega í það
sem gerðist í þessu matarboði, það
er of sárt að rifja orðaskiptin ná-
kvæmlega upp, það sem börnin mín
létu út úr sér við mig, þá sérstaklega
sonurinn, er eitthvað sem ég gæti
aldrei haft eftir. Þetta endaði með
því að ég lá í fanginu á unga kærast-
anum með, að því er virtist þá
óendanleg ekkasog, og börnin mín
voru á bak og burt. Mér fannst
tilveran hrynja, ég þurfti að velja á
milli mannsins sem ég elskaði svo
takmarkalaust og barnanna minna.
Daginn eftir komu dætur mfnar
báðar til mín með fyrirgefningar-
gjöf. Þær höfðu þá rætt saman og
áttað sig á að þær vildu ekki koma í
veg fyrir mína hamingju því ég hafði
fómað svo miklu fyrir þær um æv-
ina.
Ég giftíst þessum unga manni ný-
lega, tveimur árum eftir að ég hitti
hann fyrst. Ég er mjög hamingjusöm
// Lífsreynslusaga
12
950