Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2005, Page 37
DV Lífíð
FIMMTUDAGUR 3. MARS 2005 37
Það stendur mikið til hjá Hr. Rokk, meistara Rúnari Júlíussyni. Hann verður sex-
tugur 13. apríl og ætlar að halda upp á daginn með nýrri sólóplötu og stórtónleik-
um í Stapanum.
Stella biiin að
láta skíra
Fatahönnuðurinn Stella Mc-
Hljómar 2004
Hættiraftur.
brögðunum. „Það er
langþægilegast að Gunnar geri
bara sínar sólóplötur sjálfur,"
segir Rúnar. „Þetta hefur verið
alltof mikið „home alone-
dæmi" og það er varla hægt
að kalla þetta Hljóma-plötur.
Það vantar allan band-fíling í
þetta og ég er hálfsár því við byggð-
um jú Hljóma-nafnið upp allir sam-
an. Þetta er svona álíka og ef Paul
McCartney gerði sólóplötu og kali-
aði það Bídaplötu. Svo eru líka sum-
ir meðlimir farnir að reskjast og
hættir að þola álagið sem fylgir
þessu."
En er þá ekki bara kominn tími á
kombakk hjá Trúbrot?
„Það er nú varla hægt því lykil-
menn þess bands, Gunnar Jökull og
Karl Sighvatsson, eru fallnir frá. En
það var vissulega skemmtilegra
band, meiri samvinna og djamm, en
ekki bara einn maður sem öllu réð.‘‘
Rúnar Júl skíptt
it íyrlr Hjílm
Rúnar Júl lætur ekki deigan síga
þótt sjötugsaldurinn blasi við. Þvert
á móti, hann brettir upp ermarnar
og er þessa dagana að klára nýja
sólóplötu. Hún heitir Trúbrotin 10,
en síðasta plata heitir Trúbrotin 13.
„Já, það eru þremur færri trú-
brot,“ segir Rúnar. „Það er alveg nóg
að hafa tíu lög á plötu.“
Gott er að gefa
Það er hin ofurvinsæla reggae-
sveit Hjálmar sem spilar undir hjá
Rúnari á nýju plötunni. „Þeir báðu
um að vera með og auðvitað vildi ég
það,“ segir rokkarinn. „Ég var reynd-
ar byrjaður á plötunni en byrjaði
bara upp á nýtt þegar þeir komu
inn.“ Meðlimir úr Hjálmum spiluðu
með Rúnari á plötunni Það þarf fólk
eins og þig árið 2003, en þá plötu
telja margir með betri verkum Rún-
ars. Útgáfa Rúnars, Geimsteinn, gaf
Hjálma-plötuna vinsælu út svo
tengslin eru mikil.
Vitanlega verður reggae-tónlist á
nýju plötunni, en ltka „blús og
gömlu dansarnir", eins og Rúnar
kallar það. Platan kemur út á afmæl-
isdaginn hans 13. apríl og þá um
kvöldið verður efnt til stórtónleika í
Stapanum. „Það verður frítt inn,“
segir Rúnar, „enda er yflrskrift tón-
leikanna „Gott er að gefa“. Ég er ekki
alveg búinn að negla niður dag-
skrána en ætli maður spili ekki nýja
efttið í bland við gamalt og fullt af
fólki mun koma fram, fjölskyldu-
meðlimir jafnt sem vinir og fyrrver-
andi samstarfsmenn."
Hljómar „home alone-dæmi"
Gullaldarsveitin Hljómar kom
óvænt fram á sjónarsviðið fyrir
nokkrum árum og gerði tvær nýjar
plötur í fyrra og 2003. Það er kergja í
Rúnari vegna kombakksins og hann
segir að ekki sé grundvöllur fyrir
frekari Hljómamennsku nema
breytingar verði á vinnu-
Rúnar Júl St-
ferskur og bráð-
um sextugur.
HjálmaMð-
stoða Rúnará
nýrriplötu.
m
v
Cartney hefur látið nefna son sinn
Miller Alasdhair
James Willis. Ekki
er vitað af hverju ^
Stella og eigin-
maður hennar,
Alasdliair Willis,
völdu nafnið Mill-
er. Breska blaðið
People heidur því
fram að þriðja
nafnið sé komið
úr fjölskyldu Pauls
McCartney. Sonur
Stellu fæddist á
föstudaginn í síð-
ustu viku.
Williams vill
leika homma
Grínistinn Robin Wilhams er
svo áfjáður í að leika samkyn-
hneigðan útvarpsmann í væntan-
legri kvikmynd sem á að heita
The Night Listener að hann hefur
samþykkt að taka á sig mikla
launalækkun. Williams fær ekki
nema jaöivirði fjögurra milljóna
króna fyrir leikinn. í myndinni
leikur hann útvarpsmann sem
vingast við helsta aðdáanda sinn í
gegnum síma. Sandra Oh úr
Sideways og Toni Collette eru
einnig orðaðar við myndina en
tökur hefjast síðar í mánuðinum.
Hvetur Pete til
að hætta neyslu
Rokkstjarnan Ozzy Osboume
hefur hvatt rokkarann Pete
Doherty til að hætta að neyta
krakks og heróíns áður en hann
hreinlega deyi. Sjálfur gat Ozzy
hætt ffkniefnaneyslu með hjálp
konu sinnar Sharon. Segir hann
jafnframt að það hafl verið hræði-
lega erfitt. Hann hafi ekki notað
heróín mjög lengi en nógu erfitt
hafi samt verið að hætta því. Ozzy
segir að hann sé nú kannski ekki
sá besti til að gefa ráð varðandi
þetta og segir að Pete eigi að
njóta þess að vera til og skemmta
sér. „Hann verður að hætta áður
en það er of seint,“ segir Ozzy.
Jude Law Er orðinn vanur
ágangi fjölmiðla eftir fjöl-
mörg ár í sviðsljósinu. Kærast-
an Sienna hefur hins vegar
ekki enn vanist athyglinni.
Stórborgarlífið á ekki við Jude Law og Siennu Miller
Jude flytur út í sveit
Jude Law og Sienna Milier ætia
að flytjast út í sveit til þess að forð-
ast kastljós fjölmiðlanna. Þessu
heldur móðir Siennu fram. Stjörnu-
parið, sem gengur í hjónaband á
næsta ári, er að sögn orðið hund-
leitt á því að búa í London og getur
ekki beðið eftir því að setjast að í
rólegheitunum sem fylgja bresku
sveitalífi.
Jude og Sienna búa í glæsihýsi
Judes í Primrose Hill-hverfinu í
London. Þar verða þau sífellt fyrir
áreiti fjölmiðla og hafa einfaldlega
ekki geta vanist því. Búist er við því
að þau flytji síðar á árinu.
„Athyglin sem þau fá í augnablik-
inu er alveg fáránleg og Sienna hefur
átt sérstaklega erfitt með að takast á
við hana. Þetta hefur ekki verið eins
erfitt fyrir Jude sem hefur verið fræg-
ur í langan tíma," sagði Jo, móðir
Siennu, í nýlegu viðtali.
„Sem móðir vil ég vemda Siennu
eins og ég get. Þau ætla að flytjast út
í sveit.“
Jude og Sienna Flytja
út f sveit sfðar á árinu.