Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1944, Blaðsíða 3

Freyr - 01.03.1944, Blaðsíða 3
I MflNfl-ÐflRBLfl-Ð UM LflNDB Ú N A£> Nr. 3 Reykjavík, marz 1944 XXXIX. árg. Skurðgröfurnar Skýrsla um rekstur véla á vegum Vélasjóðs sumarið 1943 Aðalverk Verkfæranefndar ríkisins á ár- inu 1943, var að annast rekstur Vélasjóðs og hafa umsjá með vélum þeim, er hann á og flestar eru reknar af fyrirtækjum, er hafa þær á leigu. Vélasjóður á nú 6 vinnufærar skurð- gröfur, einn dráttarvagn og eina dráttar- vél með ýtu. Árið 1943 var unnið all-mikið með 4 gröf- um, mjög lítilsháttar með þeirri 5. og ekk- ert með þeirri 6., sökum þess að hún komst ekki á vinnustað fyrri en vetur gekk í garð. Alls voru grafnir skurðir sem eru 13,8 km á lengd og 88.894 teningsmetrar að rúm- máli. Verður hér sagt nokkuð frá rekstri hinna einstöku véla. AKRANES. („Cub“ númer A 3287). Vinna hófst laugardaginn 22. maí og var hætt fimmtudaginn 28. okt. Unnið var að framræslu í Garðaflóa til 7. ágúst. Þá var vélin notuð í sex daga við malarmokstur og vegagerð. Mánudaginn 16. ágúst var aftur farið að vinna að skurðagerð í Innsta- Vogi og unnið þar til 27. okt. Loks var unn- ið tvo daga að malarmokstri 27. og 28. okt. Að því búnu var skurðgrafan léð til notk- unar við kennslu á dieselvélanámskeiði, er haldið var á Akranesi. Á tímabilinu 7. júní til 31. júlí var unnið bæði dag og nótt í tveimur 10 tíma vökt- um. Tveir menn unnu ávalt með vélinni á hvorri vakt, en auk þess var alltaf einn aukamaður, er vann að því að laga skurð- ina o. s. frv. Á tímabilinu 22. maí til 28. okt. urðu með þessu móti 183 vinnudægur. Af þeim var unnið að greftri meira eða minna 143 dægur. Sá tími, sem nýttist ekki við gröft skiptist þannig: Bilanir ............. 17 dægur Flutningar .......... 12 — Mokað möl............. 8 — Frí................... 3 — Alls 40 dægur Alls voru grafnir 6.513 lengdarmetrar af skurðum, sem eru 29.355 rúmmetrar.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.