Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1944, Qupperneq 4

Freyr - 01.03.1944, Qupperneq 4
Meðal afköst á vinnudægri hafa því orðið 29.355:143 = 205 rúmm. En ef miðað er við allan tímann, nema malarmoksturinn og flutninga vegna hans, koma 171 rúmm. á dægrið. Kostnaður við gröftinn hefir orðið: Vinnulaun....... kr. 31.357,49 Akstur*) ....... — 2.433,64 Olíur .......... — 2.152,93 Vírar .......... — 2.447,53 Annar kostnaður — 2.038,52 Alls kr. 40.430,11 Hefir því kostað kr. 1,37,7 að grafa rúm- metrann -)- leiga fyrir skurðgröfuna, sem er reiknuð kr. 0,50 á grafinn rúmmetra. Allur kostnaður við gröftinn verður því kr. 1,87,7 á rúmmetra. Árin 1942 og 1943 hefir verið grafið á Akranesi: í Garðaflóa 8.554 lengdarm.= 43.010 rúmm. í Innsta-Vogi 2.574 — = 12.262 rúmm. Alls 11.128 lengdarm.= 55.272 rúmm. Allur kostnaður hefur orðið kr. 73.533, 64 eða kr. 1,33 að meðaltali á rúmm. + leiga fyrir skurðgröfuna, sem greidd var 1943, en 1942 var grafan leigulaus samkv. þeim lögum, er þá giltu um lán á skurð- gröfum. Til fróðleiks hafa einnig verið teknar saman sérstakar tölur varðandi skurð- gröftinn í Innsta-Vogi, en þar er um sam- felt ræktunarland að ræða, sem gert er ráð fyrir að undirbúa að fullu til ræktunar eins fljótt og tök eru á. Aðstaða við skurða- gerðina er þar góð, landið liggur meðfram þjóðveginum fyrir norðan kaupstaðinn á Akranesi. Greftri opinna skurða á landi þessu er enn eigi lokið að fullu, 2—3 skurð- ir eru eftir ógrafnir *) Aðallega akstur verkamanna að og frá vinnu. INNSTI-VOGUB Vinnan hófst þar 16. ágúst og var lokið 27. okt. Unnið var eingöngu að deginum, 10 tíma, 2 menn við vélgröftinn og einn aukamaður að laga skurð- ina. Á þessu tímabili eru 63 virkir dagar. Að greftri var unnið meira eða minna í 51 dag. Þeir 12 dagar, sem ekki var grafið skiptast þannig: Bilanir 6 dagar — Flutningur 3 dagar —Frí 3 dagar Grafnir voru 2.574 lengdarmetrar = 12.262 rúm- metrar. Meðalafköst á dag, sem grafið var, hafa því orðið 12.262:51 = 240,4 rúmm., en ef miðað er við allan tímann 12.262:63 = 194,6 rúmm. Kostnaður við gröftinn varð sem hér segir: Vinna .................. kr. 11.113,79 Akstur ................... — 614,11 Olíur .................... — 842,34 Vírar .................... — 566,80 Alls kr. 13.137,04 Kostnaður á rúmmetra hefur því orðið kr. 1,07 (1,07,14) + leiga fyrir gröfuna. Eins og sjá má að nokkru leyti af tölunum, eru skurðir þeir, sem grafnir voru í Innsta-Vogi mjög stórir og djúpir, til þess að vera túnræktarskurðir. Meðalrými pr. lengdarmetra 4,76 m3. í stærsta skurðinum kemst rými pr. lengdarmetra upp í 6,62 m-'!, dýpi 2,70, botnbreidd 1,00 og breidd að of- an 3,90. Flutningur á milli skurða voru litlir og lágu vel við og allmikið af skurðunum var grafið án þess að notaðir væru hlerar undir vélina. STAÐARBYGGÐ („Cub“ númer A 3304). Vinna hófst þriðjudaginn 1. júní, 1.590 metra frá ósi aðalskurðar, þar sem hann stefnir frá Eyjafjarðará skáhalt upp að brekkunum á milli Jódísarstaða og Öngul- staða. Var skurðurinn grafinn upp að brekkunum og inn með þeim að lengdar- hæl 243 (2. 430 m frá ósi), er þá komið að svonefndum Bjarkarkílum, ófæru landi sökum bleytu og foræðis. Var hætt þar 24. júní og grafan flutt norður eftir aftur að þeim stað, er aðalsk. sker merki Jó- dísarstaða og Öngulstaða við lengdarhæl 129, og byrjað að grafa svokallaðan Jó- dísarstaðaskurð, sem er 900 m að lengd. Greftri hans var lokið 8. júlí. Þá var graf- an flutt á ný suður að Bjarkarkílum, en

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.