Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1944, Side 5

Freyr - 01.03.1944, Side 5
FREYR 31 þar sem þeir reyndust enn ófærir, var þar frá horfið og grafan flutt lengra fram- eftir, um 660 metra, og byrjað að grafa þar á færu landi við hæl 309, í landi Ytri- Tjarna. Hófst gröftur þar 15. júlí. Jafnframt þessu var handgrafin 1 metra breið rás gegnum hið ógrafna haft, 660 m, svo að nokkuð gæti grynnt á vatni í skurð- inum fyrir framan það. Grafið var með gröfunni áfram frameft- ir, gegnum lönd jarðanna Ytri-Tjarna, Háagerðis, Syðri-Tjarna, Hóls, Ytra-Lauga- lands og suður í land Syðra-Laugalands, að lengdarhæl 519 (5.190 m frá ósi aðal- skurðar), þar var hætt 23. september. Um leið og grafið var gegnum lönd Laugalandanna, var grafinn lítill þver- skurður úr aðalskurðinum alveg upp að brekkunum fyrir neðan Laugaland, lengd hans er 200 metrar. Þegar hér var komið var afráðið að hætta greftri frameftir, flytja gröfuna norður á bóginn aftur og reyna að grafa haftið í Bjarkarkílum. Var byrjað að flytja vélina 27. sept. og unnið að því í tvo og hálfan dag. Miðvikud. 29. sept. þótti sýnt, að ekki yrði aðhafst frekar við gröft sökum ótíðar og vatns í mýrunum, og var þvi gengið frá vélinni þar sem hún var stödd á fitinni fyrir neðan Ytri-Tjarnir. Á tímabilinu 1. júní til 15. ágúst var unnið bæði nótt og dag, í tveimur 10 tíma vöktum. Unnu ávalt 2 menn á hverri vakt. Prá 16. til 24. ágúst unnu 3 menn við gröf- una, skiptust á og unnu alls 15 klst. á sólarhring, eftir það voru aðeins 2 menn við gröftinn. Á tímabilinu 1. júní til 29. sept., urðu með þessu móti 170 vinnudægur. Af þeim tíma var unnið að greftri meira eða minna í 124 dægur, en 46 dægur nýttust ekki við gröft af eftirtöldum ástæðum: Bilanir............ 18 dægur Flutningur ........ 16 — Óveður.............. 6 — Vatnavext'r ........ 2 — Veikindi ........... 3 — Frí ................ 1 — Tafir alls: 46 dægur Auk þess telst til að af þeim 124 dægr- um, sem unnið var að greftri, nemi tafir vegna smábilana alls 9 dægrum. Alls var grafið sem hér segir: 1. Aðalskurður, frá hæl 159 til 243 = 840 lengdarmetrar, 5.880 m3 2. Jódísarstaðaskurður, 900 lengdar- metrar, 2.960 m3 3. Aðalskurður, frá hæl 309 til 519 = 2100 lengdarmetrar, 18.490 m3 4. Laugalandsskurður, 200 lengdar- metrar, 350 m3. Alls 4040 lengdarmetrar, 27.680 m3 Meðalafköst á vinnudegi, er unnið hefir verið að greftri, hafa því orðið: 27.680:124 = 223 rúmmetrar. En ef miðað er við allan tímann, 170 vinnudægur, sem þó kemur í raun og veru ekki til greina, koma 162,8 rúmmetrar á dægrið.*) Kostnaður við gröftinn hefir orð ð: Vinnulaun............ kr. 16.27o,00 Olíur ..................— 1.627,30 Vírar ..................— 2.610,45 Annar kostnaður .... — 300,00 Alls kr. 20.812,75 Hefir því kostað kr. 0,75,2 að grafa rúm- metrann -J-leiga fyrir skurðgröfuna, sem sumarið 1943 er reiknuð kr. 0,50 á grafinn rúmmetra. Allur kostnaður við gröftinn verður því kr. 1,25,2 á rúmmetra.**) *) Þess má geta, að mestu afköst við gröftinn, á 10 stunda vinnudegi, voru 420 rúmmetrar. **)Þetta kemur þó ofurlítið öðruvísi út fyrir

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.