Freyr - 01.03.1944, Side 6
32
FREYR,
Árin 1942 og ’43 hafa alls verið grafnir
42.472 rúmm. Kostnaður við gröftinn hefir
orðið kr. 0,76,2 að meðalt. á rúmm. + leiga.
Aðalskurðurinn í Staðarbyggðarmýrum
verður allur 8.327 metra langur, af þeirri
vegalengd er búið að grafa 5.090 metra,
eftir eru ógrafnir 3.237 metrar. En rúmmál
hins ógrafna hluta aðalskurðar er hlut-
fallslega minna, heldur en þess hluta, sem
búið er að grafa. Þá er einnig eftir að grafa
annan skurð vestar í mýrunum. Lengd
hans verður 5.320 metrar, og áætlað rúmmál
18.428 rúmmetrar.
Ef enginn óhöpp koma fyrir, verður
greftri aðalskurðar lokið næsta sumar, en
varla er hægt að gera ráð fyrir því, að það
takist að ljúka greftri vestari skurðsins
líka.
FLOTGRAFAN í ÖLVESI.
Vinnan hófst 18. júní, varð eigi byrjað
Framræslu og áveitufélag Staðarbyggðar, því að
samkv. samningi um leigu á gröfunni, fellur ekki
leigugjald á allt, sem grafið var síðastliðið sumar.
Um kostnaðarliðinn: Vírar, er þess að geta, að all-
mikið mun vera til af vírum til næsta árs.
fyrri sökum all-mikillar viðgerðar á gröf-
unni, er Landsmiðjan hafði með höndum.
Vinnu var hætt 6. nóvember. Tveir menn
unnu með gröfunni. í júní, júlí og ágúst
var unnið 12 tíma á dag, en hinn tímann
10—11 tíma.
Á þessu tímabili eru 122 virkir dagar-.
Unnið var að greftri meira og minna í 99
daga, en 23 dagar gengu frá vegna bilana.
Grafnir voru 1.554 lengdarmetrar af skurði,
sem er um 8 metra breiður og 2 metra djúp-
ur, eða alls um 24.864 rúmm. Meðal afköst
á dag, þá daga sem unnið var að greftri,
hafa því orðið 24.864:99 = 251 rúmm.
Reksturskostnaður gröfunnar þetta sama
tímabil varð sem hér segir:
Vinnulaun.................... kr. 14.865,35
Olíur ....................... — 726,36
Viðgerðir*) ...............6.887,63
Flutningar (á olíu o. fl.) .... — 492,60
Annar kostn. (stjórn ferðir
sími o. fl.) .............. — 1.240,00
__________ Alls kr. 24.211,94
*) Aðalviðgerð á gröfunni fór fram vorið 1943.
Greiddi ríkissjóður vegna hennar kr. 17.300,10, auk
þess er greitt var af Áveitufélaginu.
1. mynd.
Flotgrafan í Ölvesi 1943
Ljósm.: Á. G. E