Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.03.1944, Qupperneq 7

Freyr - 01.03.1944, Qupperneq 7
FRE YR 33 Hefir því kostað tæpa krónu (97,4 aura) að grafa rúmmetrann. í Ölvesinu er nú alls búið að grafa um 10.484 lengdarmetra með þessari gröfu, frá því er hún var flutt þangað haustið 1937. Eftir er ógrafið af aðalskurði þeim, sem nú er verið að grafa, um 2200 metrar. Litlar líkur eru til þess að um frekari gröft verði að ræða með þessari gröfu, þegar greftri hans er lokið NÝJAR GRÖFUR Þess hefir orðið vart, að þeir, sem eru að hugsa. um fiamræslu með skurðgröfum, og þeir eru margir víðsvegar um land, óska eftir sem allra gleggstum upplýsingum um gröfur þær, sem keypt- ar eru, hversu gengur með að koma þeim á vinnu- staði o. s. frv., enda gefur það meðal annars all- góða hugmynd um hvers má vænta um notkun vélanna á hinum ýmsu stöðum og við mismunandi skilyrði. í fyrsta lagi hvort samgönguleiðir og tæki gera fært, að koma þeim þangað sem óskað er. Af þessum ástæðum er eftirfarandi frásögn um hinar nýju vélar gerð nokkru fyllri, en nauðsyn bæri til í venjulegri skýrslu um rekstur vélanna, í von um að það geti orðið til gagns og gamans fyrir les- endur Freys. Á árinu voru keyptar 3 nýjar gröfur amer- ískar, frá Harnischfeger Corp., Milwaukee. Þær eru af gerðinni P. & H. 150, nokkuð stærri heldur en ensku gröfurnár er keypt- ar voru 1942. Skóflustærð þeirra ensku er 8 rúmfet, þyngd 8,8 smálestir, breidd 2 m og lengd á vinnuarmi 25 fet. P. & H. 150 eru með % yard skóflu (13y2 rúmfet), þyngd 10.736 kg. breidd 2,5 m og lengd á vinnu- armi 30 fet. Ensku gröfurnar eru útbúnar með 2 strokka Dorman dieselmótorum 24 hestafla, en P. & H. 150 með 6 strokka Buda- Lanova dieselvélum 55 hestafla. Með gröfunum var keyptur sérstakur flutningavagn er nota má við flutning þeirra á milli vinnustaða. Gröfurnar komu til Reykjavíkur 31. ágúst og var skipað upp 6.—-8. sept.*) ÁRBÆR í ÖLVESI (P. & H. 150, nr. 7567). Fimmtudaginn 9. sept. voru hinir minni hlutir einnar gröfunnar, s. s. vinnuarmur og skófla, fluttir austur í Ölves, og vélin laugardaginn 11. sept. Var grafan sett sam- an undir Ingólfsfjalli, skammt fyrir aust- vegamót Selfossvegar og Grímsnessvegar, 11. og 12. sept. Var hún komin vinnubúin niður í mýrarnar fyrir norðaustan Árbæ á sunnudagskvöld 12. sept. Vinna með gröfunni hófst fimmtudag- inn 16. sept. á vegum Árbæjarfélagsins, en það er félag manna á Selfossi, er á jörðina Árbæ, og hefir undirbúið þar miklar rækt- unarframkvæmdir, og tók gröfu þessa á leigu til þess að hrinda þeim í framkvæmd. Fyrst var grafinn 435 m langur skurður meðfram væntanlegum vegi, frá þjóðveg- inum frá Ingólfsfjalli að Selfossi, heim að Árbæ. Mun ruðningurinn úr skurðinum verða jafnaður með jarðýtu og malborinn sem vegur. Breidd skurðsins er 3 m að ofan og dýpt 2 m. Næst var byrjað að grafa skurð á merkj- um Árbæjar og Hellis, frá Ölvesá í stefnu til fjalls. Á sá skurður að ná alla leið upp að þjóðveginum undir Ingólfsfjalli. Af þeim skurði var búið að grafa um 950 m er vinnu var hætt 24. nóv. sökum frosta. Breidd þessa skurðar er 3,4 m að ofan, 1 m í botn og dýpt 2 m. Lítilfjörlegur merkjaskurður var þarna áður og mikið vatnsrennsli, er var til all-mikils trafala við gröftinn. Að greftrinum unnu tveir menn, Sveinn Jónsson, vélamaður á Selfossi og Sigtrygg- *) Gröfurnar voru pantaðar — frá U. S. A. — 30. júlí 1942, eftir að reynt hafði verið án árangurs, að fá keyptar skurðgröfur frá Englandi, af sömu gerð og þær, sem keyptar voru þaðan vorið 1942

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.