Freyr

Årgang

Freyr - 01.03.1944, Side 10

Freyr - 01.03.1944, Side 10
36 FRE YR á dráttarvagninum og bílum beitt fyrir, af bryggjunni upp brekkusneiðinginn upp í þorpið, samdægurs og grafan var sett á land.Skall þar hurð nærri hælum, því að um að nóttina gekk í stórhríð svo að olli tjóni bæði á skepnum ,og mannvirkjum. Grafan komst þannig á land í Dalvík síð- asta daginn sem fært var og þyngsti hluti hennar upp í þorpið síðasta daginn sem sú gata var fær, með slíkan flutning, þá um langt skeið, því svo merkilega hagar til á Dalvík, að þótt verið sé að byggja þar góða bryggju, mikið mannvirki, er sennilega hvergi verri bílvegur í Svarfaðardal, en af bryggjunni og upp í þorpið, má það heita vegleysa á slíkum stað. Laugardag- innn 25. sept., þegar hríðinni slotaði var mokuð braut og aðrir hlutar gröfunnar fluttir af bryggjunni. Unnið var að sam- setningu gröfunnar þann dag, sunnudag og mánudag, og á mánudagskvöld ók Eirík Eylands henni í ófærð fram að Skáldalæk, og var gengið þar frá gröfunni 28. sept., en það er rétt við túnið á Skáldalæk, sem ráðgert er að byrja að grafa á vegum Fram- ræslufélags Svarfdælinga, þegar fært verð- ur næsta vor. Að samsetningu gröfunnar á Dalvík, unnu þeir Eirík Eylands, Árni G. Eylands og Jón Kristjánsson frá Svartárkoiti, er unnið hafði um sumarið við skurðgröfuna á Staðarbyggð. Auk þess voru menn frá Dalvík til aðstoðar. Þess skal þakksamlega getið, að margir Dalvíkingar réttu óbeðið rösklega hendur til hjálpar, þegar átaka þurfti við, við flutninga upp af bryggjunni á Dalvík, og við samsetninguna. Sökum þess, hvernig til tókst með tíðar- far og færð, varð þetta allt tímafrekara, dýrara og harðsóttara en þurft hefði að vera í sumartíð, en illt þótti að hverfa frá hálfnuðu verki, en því er þetta rakið hér og skýrt, að þess er vænst, að Svarfdæling- ar, er eiga að nota þessa gröfu og njóta fyrstu verka hennar. telji sér þennan erf- iða aðdraganda skurðgröfuvinnunnar þar í sveit, sem fararheill, en ekki ófarnaðar- fyrirboða. Við, sem að þessu unnum, héld- um það vera meira í samræmi við lífs- venjur dalbúa norður þar, að ljúka því, sem lokið varð í haust, heldur en að hverfa frá ógerðu og bíða betri tíma. * * * Þess ber að gæta um þessar nýju gröf- ur að tölur þær, sem tilgreindar eru hér að framan, gefa í raun og veru enga sæmi- lega hugmynd um það hver afköst þeirra muni reynast né hvað muni kosta að grafa með þeim. Reynslutími þeirra tveggja véla, sem teknar voru í notkun, er svo skammur, að byrjunar erfiðleikanna gætir mjög, þar við bætist óhagstætt tíðarfar og skamm- degi. Æfing og reynsla vinnuárið 1944, leiðir hið rétta í ljós. JARÐÝTAN TD 9. Verkfæranefnd stóð að kaupum á þrem- ur dráttarvélum á árinu. Eru það stærri og meiri vélar en áður hafa verið notaðar við jarðvinnslu hér á landi, allar af gerð- inni International Tractractor TD 9. Eins og nafnið bendir til eru þetta vélar, sem ganga á skriðbeltum. Þær eru með diesel- vélum, 4 strokka, dráttarafl 38.88 hestöfl og fullt afl 45.91 hestöfl. Þyngd 4850 kg. og breidd 6 fet. (183 cm). Breidd skrið- beltanna er 16 þuml. Með tveimur af þessum vélum fylgdu ýtur (Bullgrader) af gerðinni Bucyrus Erie 10 feta (ensk). Ýtan er þannig gerð, að auk þess, sem hægt er að beita henni þvert fyrir dráttarvélina, er hægt að skástilla ýtublaðið, bæði til hægri og vinstri eftir vild, svipað og á veghefli. Ýtnni er lyft og beitt með vökvaþrýst-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.