Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1944, Síða 11

Freyr - 01.03.1944, Síða 11
FREYR 37 4. mynd. TD 9, meö ýtu, að jafna skurðruðninga i Garðaflóa. Ljósm.: Á. G. E. ingi. Þyngd hennar er 2100 kg. Vegur því TD 9 með ýtu af þessari gerð 6950 kg. Aðra þessa vél keypti Vélasjóður með það fyrir augum, fyrst og fremst, að nota hana til þess að jafna skurðruðninga þar sem skurðir eru grafnir með skurðgröfum. Þegar um stóra skurði er að ræða, svo að úr hverj- um lengdarm., sem grafinn er, koma 4—5 rúmm. af ruðningi, er bersýnilegt, að það er ókleift að dreifa ruðningnum með hand- afli, og verður óhemju dýrt, jafnvel þótt hestafl sé notað við þá vinnu. Einnig kem- ur til greina að jafna skurðruðninga með það fyrir augum, að gera þá að ræktunar- vegum. Ein af þessum þremur dráttarvélum fór að Loftsstöðum í Flóa, hún var án ýtu. Aðra fékk Sigfús Öfjörð í Noröurkoti í Flóa, með plóg og herfi, og er fyrsta ýtan kom, er ætluð var Vélasjóði til hinna umræddu tilrauna, fékk Sigfús hana einnig, sökum þess, að þannig stóð á störfum, að hann gat notað hana fyrr en Verkfæranefnd hent- aði að hefja tilraunir sínar. Er Sigfús hafði notað ýtuna litla hríð, tók Verkfæranefnd við henni og flutti hana til Akraness ásamt dráttarvél Vélasjóðs, sem áður var komin, en Sigfús fékk síðar aðra ýtu til eignar og umráða. Dráttarvélin og ýtan var flutt til Akra- ness 4. og 6. ágúst, en vinna með ýtunni hófst 11. ágúst. Var fyrst unnið lítilsháttar við götugerð í kaupstaðnum, en laugardag- inn 14. ágúst var tekið til við skurðruðn- ingana í Garðarflóa. Alls voru jafnaðir þar ruðningar, sem voru tæpir 5 km. á lengd. Mest allt var jafnað þannig, að það verði ræktunarvegir. Mun óvíða þurfa neinna verulegra, frekari aðgerða við áður en veg- irnir verða malbórnir. Ennfremur var nokk- uð af ruðningnum jafnað til ræktunar. Tveir menn unnu með ýtunni til skiptis, Guðmundur Runólfsson frá Hvanneyri og Eirík Eylands. Sökum þess, að hér var um ný vinnubrögð og um æfingar að ræða, er vart hægt að tilgreina ákveðin dagsafköst við starfið, en ekki mun of í lagt að telja dagsv. 500 m, er ruðningur er jafnaður sem vegur. Greinilega kom í ljós, að óráðlegt er að jafna ruðninga eða dreifa þeim skömmu

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.