Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2005 3 Starfsfólk Fréttablaðsins lá að sjálfsögðu límt við skjáinn þegar Joseph Ratzinger var kynntur sem nýr páfi eftir stutta kosningalotu. Á meðal þeirra sem fylgdust með var Hafliði Helgason, ritstjóri Markaðarins. Hann sagðist h'tið hafa velt sér upp úr þessu síðustu daga en þó fylgst með með öðru auganu. „Þetta svo sem kemur ekki á óvart þar sem búið var að segja að hann væri líklegastur,“ segir Hafliði. Hann segir það auk þess hafa dregið úr því óvænta að kosningarnar hafi tekið þetta stuttan tíma. Erlendir sérfræðingar hafi bent á að eftir því sem styttri tími liði þeim mun líklegra hefði verið að Ratzinger yrði kjörinn. Aðspurður sagðist Hafliði ekki hafa neina sérstaka skoðun á nýja páfanum, áhuginn á þessum málum væri bara einfaldlega ekki það mikill. En auk hans má meðal annars einnig sjá Jón Óskar Haf- steinsson, myndhstar- og umbrotsmann, og Þórhnd Kjartans- son, blaðamann á Markaðinum. Spurning dagsins Ertu haldin(n) flughræðslu? Líðurillaefflugvélin hristist „Nei, eiginlega ekki. Mér finnst alltaf mikil stemming að fljúga. Það kemur samt fyrir að ég fái í magann efflugvél- in byrjar að hristast eitthvað óeðlilega mikið, það er ekki þægilegt." Hannes Þór Halldórsson, markmað- ur og kvikmyndagerðarmaður. „Kappinn er nú lítið íþví að vera flughræddur, ætli ég sé ekki ofharður fyrir það. Máiið er líka að kelling- arnar eru ekki hrifnar afgæj- um sem eru flughræddir. Ég fer upp í hvaða flugvélsem er.“ Egill Einarsson „Gilzenegger". „Heyrðu, ég hef aldrei verið flughrædd. En eftir að ég eignaðist litlu stelpurnar mín- artvær hefég orðið dálftið flughrædd. Ég hefverið að fljúga á milli Isafjarðar og Reykjavíkur og eryfirleitt með hjartað í buxunum, þetta er eitt- hvað tengt börnunum." íris Björk Árnadóttir, fegurð- ardrottning. „Nei, eiginlega ekki. Hefsamt einu sinni orð- ið hræddurí flugi. Þá varég að fljúga til Spánar í ein- hverju leigu- flugi og var hætt að standa á sama þegar búið var að setja dekkin niður tvisvar á miðju flugi, það var eins og farþegi væri frammí." Kristján Ingi Gunnarsson sjónvarpsmaður. „Nei, ég get ekki sagt það. Já, ég hefalltaf farið upp í hvaða flugvél sem er íhvaða veðri sem er.“ Kristín Ýr Bjarnadóttir fótboltastelpa. Nokkrir (slendingar gengu berserksgang í flugvél lceland Express í vikunni. Margir eru haldnir flughræðslu sem erfitt virðist vera að sigrast á, en sumum er alveg sama. Þrumað yfir lýðnum IJí.L „Hvorki „Jájá, ég man eftir þessu, “ segir Magn- ús Ólafsson skemmtikraftur með meiru. Gamla myndin að þessu sinni er frá þvi i maí á því herrans ári 1978 og er merkileg um margra hluta sakir. „Ég gerði mikið afþessu fyrir Visi á sin- um tíma og þetta var svona svipað og menn eru að gera i sjónvarpi núna: Að plata fólk. Svona eins og Strák- arnir á Stöð 2." Þarna varsem sagt um atferl- iskönnun að ræða og verið 1 A6 vera á felgunni Að vera á felgunni merkir dauða- drukkinn mann. Líkingin er vitanlega dregin afbíl þarsem dekk er farið affelgunni og lætur því ekki vel að stjórn og hefurskerta aksturseigin- leika. Maggi Ólafs sem Kailinn á kassanum '78 Það varð allt vitlaust i þessari könnun Magnúsar, Eddu Andrésdóttur og Ólafs Ragnarssonar; frammlköll og læti. var að kanna viðbrögð fólks við þvi ef kæmi karl á kassa niður á torg og héldi ræðu á kassa. „Eins og var i gamlagamla daga. Þrumað yfir lýðinum. Og það varð allt vit- laust, frammíköll og læti. Ég var þá út- litsteiknari á blaðinu, Edda Andrésdóttir var blaðakona og Ólafur Ragnarsson var ritstjóri. Þetta voru ýms- ar uppákomur sem við bjuggum til og meðal þessi.' Málið Það er staðreynd... að fyrsta pitsan var bökuð af Forngrikkjum sem fyrstir bökuðu stórt, kringlótt, flatt brauð og settu ofan á það ólifu- oliu, krydd, kartöflur og margt annað. ÞAU ERU SYSTKINI Skákkonan & skákmaðurinn Guöfríður Lilja Grétarsdóttir, stjórnmálafræð- ingur og forseti Skáksambands Islands, er systir skákmannsins og stórmeistarans Helga Áss Grétarssonar. Forleldrar þeirra eru Sigrún Andrewsdóttir kennari og GrétarÁss Sigurðs- son viðskiptafræðingur. Guðfríður er fædd áriö 1972 og Helgi Ásser fæddur áriðl977. Bræðurþeirra eru SigurðurÁss verkfræðingur, fæddur 1965,ogAndriÁss viðskiptafræðing- ur, sem fæddur er árið 1969.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.