Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl2005 Fjölskyldan DV Hávaxinn og með húmor „Draumaprinsinn minn er hár og með húmor," segir Elín Anna Steinarsdóttir, fótboltastulka og tískugúru, „og það er egt að hlæja með honum. Skemmtilegur strákur. Itiitið er svo bara plús." Aðspurð hvort hún sé með strák í sigtinu segir Elín „Nei, ég er einhleyp. Hafði það stórum stöfum: EINHLEYP," og hlær dátt. Draumaprinsinn ) Reynslu- skilnaður Skilnaður er neyðarúrræði í hjónabandi sem ekki gengur upp. Það er engu að síður afdrif- arík ákvörðun sem hefur áhrif w. á mun fleiri en ; 4- bara hjónin , ) tvö. Hjón sem ,N ganga í gegnum erf- iðieika og eru að \ / íhuga að leggja árar í bát geta gengiö í gegnum „reynslu- skilnað" í stað þess að fara alla leið. Annar aðillinn flytur út og er samskiptum haldið í algjöru lág- marki. Þetta gefur báðum aðilum tækifæri til að skyggnast inn í framtíðina og prófa að standa á eigin fótum. Mesti kosturinn við reynslu- skilnað er að sjálfsögðu að auð- velt er að skipta um skoðun. Hægt er að prófa skilnaðinn í einhvern tíma, ganga í gegnum hjónabandsráðgjöf og síðar sætt- ast. Einnig er hægt að prófa reynsluskilnaðinn og síðar meir ganga i gegnum lagalega skilnað- inn. Þetta getur bæði sannfært hjónin um að skilnaður sé rétta ákvörðunin, en einnig getur þetta leyft hjónum að átta sig á því að tími sé kominn til þess að fara í hvort í sína áttina. Ólæsi gríðarlegt meðal arabískra kvenna Samkvæmt skýrslu sem UNICEF vann í samvinnu viö Arabarikin er helmingur arabískra kvenna ólæs og yfir 10 milljónir barna ganga ekki í skóla. Minnst skólaganga mun vera i Egyptalandi, írak, Marokkó og Súdan. í skýrslunni kemur einnig fram að fram- farir hafi orðið í þróun á rétt- indum barna og verndun þeirra en betur má ef duga skal og stúlkur hafa sérstaklega setið á hakanum til þessa. Vegna þess hve margar konur eru ólæsar aftrar það þeim frá því að hafa aðgang að mikilvægum upp- lýsingum um meðgöngutengda heilsu sem hefur leitt til mikils barnadauða, og má nefna að af hverjum þúsund fæddum börnum látast sextiu þeirra fyrir fimm ára aldur á móti sex í iðnríkjum heims. Sæl Valgerðurí Ég byrjaði að spila golf fyrir tveimur árum til að geta eytt tómstundum mínum með manninum mínum. Mér hefur fundist mjög gaman og við höfum bæði verið virk í fé- lagslífiklúbbs- ins. Vandamál- ið er, að maður sem ég starfa með í skemmti- nefnd, er sífellt með „góðlátlegar" at- hugasemdir um frammistöðu mína, údit og skoðanir - eða m.ö.o. að reyna að vera fyndinn á minn kostnað. í fyrstu fannst mér þetta í Iagi og reyndi að hlæja með, eins og allir hiiúr, en nú er þetta orðið alveg óþolandi. Ég hef orð- að þetta við suma meðlimi klúbbsins, meira aö segja mann- inn minn, og fæ alltaf sama svar- ið: ,Æ þú veist hvemig hann Gummi er." Sjálfur segist hann bara vera að djóka og að ég verði að læra að taka gríni. Á ég virki- lega að þurfa að hætta í ein- hveiju sem er skemmtilegt af því að einhver annar er óþolandi? Með kveðju, Húmorslaus Komdu sæl „Húmorslaus" Ég sé ekki betur en að þú verðir fyrir einelti af hendi þessa tiltekna manns. Að þú skulir hafa þolað hon- um það í talsverðan tíma ber frekar vott um að þú takir lífinu af mátulegri alvöm en húmorsleysi. Einelti felur í sér síendurtekna, lítilsvirðandi og særandi framkomu, t.d. á vinnustað, í skóla eða félagasamtökum. Birtingar- myndir þess em margvíslegar. í þínu tilviki virðist gerandinn telja sig hafa „skotveiðileyfi" á þig og geta „skotið" á þig síendurteknum niðrandi at- hugasemdum, háði og glósum, undir því yfirskyni að vera fyndinn og skemmtilegur. Það sé ekkert athuga- vert við hegðun hans. Hinsvegar hljóti að vera eitthvað að þér, þar sem þú kunnir ekki „að taka gríni". í öðr- um tilvikum er fólk sniðgengið, fryst úti, baknagað og jafnvel kaffært í verkefnum. Einelti á sér því ekki ein- göngu stað hjá börnum, eins og sum- ir vilja halda, heldur hka í samskipt- um fiillorðinna. Andlegt ofbeldi klætt í trúðs- búning Þér er augljóslega ekkert skemmt, að minnsta kostí ekki lengur. Mér finnst þú sterk að orða þessa fram- komu mannsins í samræðum þínum við þá sem vinna með ykkur í félaginu. Fómarlömb eineltís þjást oft í þögn. Mér finnst aftur á mótí verra að þú fáir ekki stuðning, ekki einu sinni hjá manninum þínum. Sumum líðst ahskyns framkoma, þótt hún getí verið í senn særandi og niðrandi, vegna þess að þeir klæða andlegt ofbeldi sitt í trúðsbúning. Af- skiptaleysi annarra, svo að ég tali ekki um hvatningu, með því að taka undir og hlæja með, brýtur fórnarlambið niður lflca. Þeir gerast þannig þátttak- endur í athæfi sem þeir em ef til vill ekki sammála í hjarta sínu en em til- búnir að líta framhjá, e.t.v. af ótta við að verða teknir fyrir sjálfir, vera ekki álitnir hluti af hópnum eða til að forðast átök. Þeir sem sleppa finnst þeir út- valdir Ég þekki annað dæmi. 20 ára stúd- entar hittust og ræddu m.a. um gömlu kennarana sína. Umræða um einn þeirra varð mér sérlega minnisstæð. Sá þóttí klár og fyndinn en hafði að reglu að taka suma nemendur fyrir. Frá þessu var sagt í gamansömum tóni. Þeir, sem höfðu sloppið við einelti kennarans, töldu sig á einhvem hátt í hópi „útvaldra" og verðugri fyrir vikið. Þó var vitað að einhverjum skólafélaga þeirra hafði Uðið reglulega iila á skóla- göngu sinni út af andstyggilegri fram- komu kennarans. í sumum tilvikum átta gerendur sig ekki á afleiðingum gerða sinna, í öðr- um tilvikum er tilgangurinn augljós, þ.e. að hefja sig upp á kostnað fómar- lamba sinna og rýra sjálfstraust þeirra. Grín sem yfirvarp árásarhneigð- ar Þeir sem verða fyrir langvarandi of- beldi geta farið að efast um dómgreind sína, sérstaklega þegar enginn f um- hverfi þeirra er tilbúinn að styðja hann. Þú ert vænd um húmorsleysi þegar þú kvartar undan „djókinu". Samt er grín- ið ekki annað en yfirvarp árásarhneigð- ar. Það er ekki ætlað tíl að gieðja - og allra síst þig. Þér finnst eðlilega ranglátt að óþverraleg framkoma félaga þíns í goh- klúbbnum skuh þurfa að bitna á þér en ekki honum og jafnvel verða til þess að þú hrekist úr einhverju sem þér finnst skemmtilegt. Þarf að stöðva einelti og áreitni Ég legg eindregið til að þú reynir að ræða þetta við manninn sjálfan af ákveðni og ef þörf krefur fáir tíl liðs við þig framámenn félagsins til að taka upp umræðu um eineltí í félagahópnum. Ekki gefast upp og ekki taka trúanlega þá skýringu að þú hafir einfaldlega ekki húmor. Upplýstu viðkomandi hinsveg- ar um að þú hafir ekki smekk fýrir ein- eltí og áreitni í nokkurri mynd. Slflca framkomu þurfi að stoppa strax! Eineltí vegur að innstu gildum og lýðræðislegum réttindum allra. Sér- hver maður á rétt á að vera óáreittur og öruggur fýrir ofbeldi og niðurlægjandi hegðun. Elcki er óllklegt að þú eigir þér liðsmenn í golfklúbbnum sem hafa þagað en eru tilbúnir að beita sér um leið og þú beinir kastljósinu að vandan- um. Kveðja, Valgerður Fjölskyldusamtök gagnrýna hamborgarakeðju Skyndibitakeðjan Carl Jr’s hefúr verið mikið gagn- rýnd fyrir nýjustu auglýsingu sína af samtökum for- eldra í Bandarflcjunum. í auglýsingunni sést hótelerf- inginn Paris Hilton í agnarsmáu bikini við að þvo bfl og tyggja hamborgara um leið. Auglýsingin hefúr verið kölluð klám og hefúr fýrirtækið verið sakað um ábyrgðarleysi gagnvart almenningi. Hamborgarakeðjan Carl Jr’s er þekkt fýrir sínar róttæku, hægrisinnuðu skoðanir gegn fóstureyðing- um. Þetta kemur fram í annarri auglýsingu fyrirtækis- ins fyrir jalapeno hamborgara. Þar sést mannsfóstur Paris Hilton Auglýsir hamborgara afmikl- um móð. hóta móður sinni að það muni rífa út leg hennar ef hún hættí ekki að borða sterka hamborgara. Ekki aðeins hafa fjölskyldusam- tök og femínistar í Bandarfkjunum mótmælt auglýs- ingunni heldur hafa auglýsingastofur furðað sig á henni. „Talandi mannsfóstur eru óhugnanleg. Hvers vegna skyldi einhver verða svangur af því að horfa á talandi mannsfóstur?" er haft eftír starfsmanni auglýs- ingastofu þar vestra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.