Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ2005 Menning UV Menningarlegt karaókí „Menningarlegt karaókí? Algjörlega og mjög metnaðarfiillt. Þetta var alveg brjálað og við unnum farandbikar sem stendur héma í andyrinu. Fólk lagði allt sitt í þetta; blóð, svita og tár,“ segir Svan- borg Sigurðardóttir í bókabúð Pennans Eymundsonar í Austurstræti. Hún er kampakát og má vera það því í glæsi- og æsÚegri karaókíkeppni sem haldin var um helgina á ölveri sigraði bókabúð Pennans Eymundssonar í Austurstræti kollega sína £ versluninni við Laugaveg. Keppnin fór þannig fram að hvor verslun um sig lagði til ein sjö söngatriði, enda margt hæfileikafólk í þessum versl- unum. Beta rokk hlaut til dæmis sérstök verðlaun fyrir framkomu. Hún tók lagið „Eye of the Tiger“ og mætti í hnefaleika- búningi til að flytja lagið. Maríanna Lúthersdóttir þótti besti söngvarinn. „Hún var stórkosdeg og söng lagið „I've never been to me" - mjög hjartnæmt lag sem býður uppá mikla túíkunarmögu- leika sem hún nýtti sér til hins ítrasta, enda leikkona. Lagið var upphaflega flutt af söngkonunni Charlene," segir Svanborg sem sjálf lét ekki sitt eftir liggja í keppninni og söng dúett ásamt Þor- gerði Elínu. í dómnefnd sátu þau Egill öm Jóhannsson, Óttarr Proppé, Drífa Hilmarsdóttir og Erla Brynjarsdóttir. ■fc Æ r* Vörður Ljóðið sem DV býður fram í dag, með góðfúslegu leyfi útgef- anda, er eftir Njörð P. Njarðvík og er að finna í nýlegri ljóðabók hans sem kom út nú í vor. Hún ber titilinn: Aftur til steinsins. Njörður er doktor í íslensk- um bókmenntum og hefur verið prófessor við Háskóla íslands í allmörg ár. Hann hefur samhliða þeim starfa sínum fengist jöfnum höndum við að rita fræðibækur, sögur, leikrit og ljóð. Ljóð Fræðileg Qölskylda Það er bemlmis afbrigði- legt að hlusta á sígilda tónlist fyrir hádegi." Beethoven í botn Þriðji hluti. Sónötur fyrir fiðlu og pianó nr. 81 G-dúr, 9 í A- valdsdóttir V. og Gerrit ™ Schuil. Tón- leikasalurinn / 29. mai. Tónlist Tvíburabræðurnir og systir þeirra öll í Skír Út er kominn Skímir - Tímarit Hins íslenska bókmenntafélags. Að vanda kennir ýmissa grasa í ritinu en það sem mesta athygli vekur er ef til vill að Skímir birtir þrjár greinar sem ritaðar em af systkin- um: Þær em eftir tvíburabræðurna Armann og Sverri Jakobssyni auk greinar eftir Katrínu litlu systur þeirra. Sagnfræðingurinn Sverrir ritar grein sem heitir „Austurvegsþjóðir og íslensk heimsmynd - uppgjör við sagnfræðilega goðsögu". Ar- mann, sem er íslenskufræðingur, kemur svo í kjölfarið með grein sem ber yfirskriftina „Sinn eiginn smiður -Ævintýrið um Sverri kon- ung“. Og þar á eftir kemur síðan Katrín bókmenntcúræðingur með grein sem heitir: „Merk- ingarlausir fslendingar". Undir- titill er: Um samfélag og þjóðerni í sögum Arnaldar Indriðasonar. Allar eru greinarnar hinar áhugaverðustu. Þannig kemst til að mynda Katrín að þeirri niður- stöðu að í glæpasögum Arnaldar sé íslenskt þjóðerni merkingar- laus stimpill sem enginn skilur lengur; „innantóm tákn, lauslega tengd við stað þar sem framin eru ömurleg og subbuleg morð." En það má sem sagt ljóst vera að ekki skortir fræðileg umræðuefni þegar þau þrjú koma saman í fjölskyldu- boðum. Foreldrar þeirra eru Signý Sig- greinar ihinum nýja Skírni og Ijóst má vera að ekki skortir fræðileg umræðuefni þegar blásið er til fjölskylduboða. urðardóttir sálfræðingur og Jakob Armannsson aðstoðarbankastjóri en hann er látinn. Elsta systirin í systkinahópnum er svo Bergljót Njála kennari, en hún var að þessu sinni ekkert að skipta sér af útgáfu Skímis. Njörður P. Njarðvfk Sendinýverið frá sér ljóðabókina,Aftur til steinsins“ en þar er að finna ljóðið,Vörður“. Vörður Enn ganga vörðurnar yfir heiðina þótt leiðin sé fáförul og ekki margir sem telja sig þurfa leiðsagnar þangað sem förinni er heitiö Þær þokast upp úr dalbotninum feta sig meðfram gilskorningum stika svo fram klifið og stefna rakleitt inn (þokubakkann Þær kæra sig kollóttar þótt úr þeim hrynji steinn og steinn þvf erindið er brýnt: að varöa leið Attunda fiðlusónata Beethovens er sú glaðlegasta og áhyggjulausasta af öllum. Fyrsti kaflinn hefur sterkan pastoraleblæ, menúettinn er af- skaplega þokkafullur og Vínarlegur og það er jafnvel eitthvað sígauna- legt við lokakaflann með sfnum hringdanslegu tóntegundaskiptum. Eins og oft áður í þessari tónleikaröð átti píanóleikarinn það til að vera of hávær og jafnvel hrjúfur. En alls ekki alitaf. Að öðru leyti var sónatan ágætlega spiluð með miklum sjarma í menúettinum og dillandi fram- skriði £ lokakaflanum svo hann varð svo ómótstæðilegur og það hefði al- veg mátt spila hann aftur sem auka- lag. Áhorfendur standa á öndinni Hin fræga Kreutzersónata er lfk- lega mesta fiðlusónata Beethovens og Tolstoj nefndi eina af skáldsögum sínum eftir henni. Fyrsti og sfðasti kaflinn, sem eru eins konar taran- tella, eru stormasamir og kraftmiklir, en hægi kaflinn tilbrigði við Ijóðrænt stef. Flutningur þessa verks var ef til vill sá besti í tónleikaröðinni. Inn- gangurinn að fýrsta kaflanum var magnaður og gaf tóninn fýrir það sem í vændum var. í hæga kaflanum var samleikurinn frábær og sú tilfinn- ingalega dýpt sem Ieynist undir snjöllum tilbrigðunum kom fagur- lega fram. Síðasti kaflinn var gríðar- lega öflugur og æsandi í leiknum svo áheyrendur stóðu á öndinni en það gerist bara á góðum tónleikum. Síð- asta sónatan, sem er ljóðræn ger- semi, hljómaði hins vegar fremur köld þótt hún væri á margan hátt fal- lega leikin í öllum línum og hending- um. Það vantaði bara þennan háljóð- ræna gæfúmun í þessu afar við- kvæma og vandflutta verki. daga að vori. Og þótt tónlistarfólki þyki sjálfsagt að æfa sig á morgnana, er það nú einu sinni svo að fæstir eru í skapi til að hlusta á og melta al- varlega tónlist á morgnana. Slík nautn er síðdegisgaman eða kvöld- skemmtun. Gönguferðir, kirkjusetur og skokk eru hins vegar morgun- vænar athafnir á sunnudögum og líka það að liggja í leti og láta sig dreyma um betri tíð með blóm í haga. Það er beinlínis afbrigðilegt að hlusta á sígilda tónlist fýrir hádegi. Vonandi verður þessi fáránlegi tón- leikatími ekki að íslenskum tískufar- aldri. Svo mælir hinn djúpviti en músikmorgunfúli tónrýnir DV! Sigurður Þór Guðjónsson Fáránlegur tónleikatími Það var sól og vaknandi vor alla þessa þrjá sunnudagsmorgna þegar tónleikaröðin fór fram. Konsertamir voru allir vel sóttir enda voru þeir óneitanlega mikilsháttar viðburður í tónlistarlífinu. Samt sem áður er þetta afleitur tónleikatími, klukkan ellefu á sunnudagsmorgni. Dæmið af undirrituðum gefur hugmynd um hvers vegna. Klukkan var vel farin að ganga tvö þegar tónleikunum lauk. Þegar undirritaður hafði lokið við að háma í sig dýrindis krásir og gat far- ið að ffla heiminn og njóta h'fsins saddur og sæll í sólinni var klukkan orðin hálf þijú. Þessi tónleikatími kemur einfaldlega í veg fyrir að fólk geti notið dýrmætra Dreifingin og innflutningurinn farin en útgáfuréttindin ekki. Óttar Felix selur „Nei, ég er ekki búinn að selja útgáfuna, ég held henni og út- gáfuréttindunum. Aftur á móti seldi ég dreifinguna og innflutninginn. Það heitir Sonet dreifing og er á sama stað og áður,“ segir Óttar Fel- ix Hauksson, athafna- og tónlistarmaður. Sá sem keypti heitir Ásvaldur Friðriksson. „Hann og hans fjölskylda keyptu en Ásvaldur var sölustjóri hjá mér." Þetta þýðir þá að Óttar Felix er eftir sem áður útgefandi og vemdari tónlistarsnillinga á borð við Hljóma, Róbem'nó, KK og Magga og fleiri. „Ég er með um það bil 200 tftla sem ég á útgáfu- réttinn á og telst því handhafi næst stærstu útgáfuréttinda á landinu. Sena ein er stærri." Athafiiamaðurinn hefur nú söðlað um, er orðinn fram- kvæmdastjóri sölu- sviðs hjá Frjó - sem dreifir stoðvörum til fslenskra grænmetis- bænda. Að auki er hann sestur í stjórn skáksambandsins sem varaforseti, tók við af Hrafni Jökuls- syni þar, auk þess að vera svo for- maður Taflfélags Reykjavíkur. „Það er elsta og virðulegasta tafl- félag landins. Já, skákin er farin að taka aukinn tíma frá mér.“ Óttar Felix Hauksson Útgáfuréttindin íhans eigu eru önnurstærstu á íslandi á einni hendi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.