Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ2005 Fyrst og fremst DV Útgáfufélag: 365 - prentmiðlar Ritstjóran Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason Fréttastjóran Kristján Guy Burgess Óskar Hrafn Þorvaldsson DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 - Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot 550 5090 Rltstjórn: ritstjorn@dv.is Auglýsingan auglysingar@dv.is. Setnlng og umbrot: 365 - prentmiðlar. Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og úr gagnabönkum án endurgjalds. Karen Kjartansdóttir heima og að heiman Framkvæmdir fíiíerÍíugurlmonn- um. Meðaljón hefst handa við að koma , garðlnum [ stand, gerirsérferðí stórmarkað fram- kvæmdamannsins og leggur penlnga I flottustu garðáhöld sumarsins. Skyndilega er gengið til atlögu við allt þaö sem setiö hefur á hakanum flangan tíma, þetta sem hefur þótt til óprýði en vaninn hefur kennt okkur aö loka augunum fyrir. Þetta er tfmi til að klambra saman palli með vinum og ættingjum, berja sér svo á brjóst að hætti kari- manna og skála að hætti stór- menna f útlöndum. (su,ims«ka!l heillandi en karimenn sem geta spýtt í lóf- ana og komið hlutunum f verk. Þegar lof- að er bót og betrun og haflst handa við eitthvaö nýtt og fallegt getur maður fljótlega fyrirgefiö það sem liöiö er. Athafnamennimir og fjöl- skyldufeöumir Bush og Blair eru eins og svo margir aðrir enn á ný komnir f sumarskap. Þeir hafa brett upp ermamar og segjast ólmir vilja takast á við verkefril sem alltof lengi hafa þurft að bfða. Þetta eni engir smámenn og það eru engin smáverkefrii sem bfða. Nú á vfst að redda þriðja heiminum. Lengi höftjm við beðið eftir þessum fréttum en nú er að sjá hvaö gerist og hvemig það veröur gert. Hvaðsvo? Eg man þegar ná- granni minn smfð- aöi pall og eitt- hvað sem eflaust hefur átt að vera trjáhýsi. Það var í hita sumarsins 2003, heitara sumri man fólk vart eftir. Ná- grannl minn góður hófst handa við framkvæmdir viö sitt hæfi. Meiri menn réðust á verkefrii sem margir muna eftir og kallað hefur veriö frelsun frösku þjóð- arinnar. Þótt ekki sé langt um liöið hefur pallurinn þvf miður funað og ég ætla rétt að vona að krakkagríslingarnir hans fari nú ekki að taka upp á því aö klifra upp f þetta kofarekald sem klambraö var saman f einni af hrfslum garðsins. Ég veit ekki hver næstu skref þessa ágæta en ónaglfæra granna mfns verða en ég veit að stórmenn- inn úti f heimi ætla ekki að ráð- ast á garðinn þar sem hann er lægstur að þessu sinni frekar en fyrri daginn. Leiðari Mikael Torfason Sent merlcir einfaldlega að lántalcandi sem tólc20 milljónir fyrir einu ári oggreiðir tœpar 90 þásund krónur á mánuði slculdar ná 20,5 milljónir. Lánlausu bankastj óramir IHelgarblaði DV var úttekt gerð á húsnæðismálum bankastjóranna. __Þeir bjóða okkur almenningi ýmis kostakjör. Vilja að við tökum stærri og stærri lán hjá þeim til að fjármagna húsnæðiskaupin. Eru í bullandi samkeppni við Ibúðalána- sjóð ríkisins sem neyddist til að lækka vextina hjá sér tíl að mæta samkeppninni. Það er auðvitað með ólfldndum hvemig rfldð er sffeUt að keppa við einkafr amtakið og stend- ur sig yflrleitt verr. í úttektinni í Helgarblaðinu kom í ljós að bankastjóramir em með lít- ið sem ekkert áhvflandi á sínum eignum. Auðvitað em þeir á háum launum og hafa eftú á að borga húsnæði sitt út í hönd. En einhverjir þeirra vom með lán sem hvfldu á eignunum. Mesta athygU vakti að það vom önnur lán en þeirra eigin á eignunum. Nema hjá bankastjómm KB-banka. Þeir hafa trú á nýju Iánunum sínum. I dag er Uka komin ágætisreynsla á þessi lán. Þau em yfirleitt auglýst með 4,15% föstum vöxtum. Það er auðvitað langt frá því að vera það sem fólk greiðir raunverulega í vexti. Ef reiknaðir em út raunverulegir vextir frá því í fyrrasumar - sem er um það leyti sem bankamir hófu samkeppni við íbúðalána- sjóð - og fram á vorið nú í ár kemur fljót- lega í ljós að engin lánastoftiun býður í raun 4,15% ívexti á lánum sfnum. Þessi lán em verðtryggð og því er miklu nær að segja að sfðan bankarnir mddust inn á íbúðalánamarkaðinn hafa landsmenn flestir verið að greiða rúm 8% í vexti af íbúðalánum sínum, sem merkir einfaldlega að lántakandi sem tók 20 milljónir fyrir einu ári og greiðir tæpar 90 þúsund krónur á mánuði skuldar nú 20,5 milljónir. Eftir tíu ár verður sú tala komin upp í tæpar 26 milljónir ef verðbólgan helst svipuð. Eftir 20 ár verður lánið komið upp í 30 milljónir og eftir 30 ár verður það í 27 milljónum og af- borgun á mánuði eitthvað nálægt 300 þús- und krónum. Þetta hefði eflaust litið verr út ef bankam- ir hefðu ekki komið inn á markaðinn. íbúðalánasjóður var með hærri vexti áður auk verðtryggingar. En guð forði okkur firá því ef verðbólgan hækkar um örfá prósentu- stig. Þá horfum við einfaldlega fram á fjöídagjaldþrot fjölskyldna á íslandi. Nafnlausar dylgjur í Lögmannablaðinu lOmann- eskjur sem gætu tekið við af Gísla Marteini Gísli Marteirm Baldursson ætlar að verða borgarstjóri og verður ekki með þátt á laugardagskvöld- um næsta vetur... HÉRAÐSDÚMSLÖGMAÐURINN Guð- rún Björg Birgisdóttir ritar langa grein um fjölmiðla í nýútkomið Lögmannablað sem hún ritstýrir sjálf. Við skrifin sest hún í stól blaðamanns og víkur mörgum orð- Fyrst og fremst um að vinnubrögðum fjölmiðla, sem henni virðist þykja miður góð, eftir því sem hægt er að lesa úr óljósum ásökunum hennar og þeirra nafnlausu heimildarmanna sem hún kallar til. „ÉG VAR (AÐALMEÐFERÐ (opinberu máli um daginn í Héraðsdómi Reykjavíkur. Það var lokað þing- hald en dyrnar inn í þingsal voru opnar þar sem við vomm að bíða eftir saksóknara. Skyndilega kom blaðaljósmyndari í gættina og tók myndir. Síðan hljóp hann í burtu á harðaspretti," skrifar Guðrún í grein sinni. Þar er hún ekki að vísa í eigin orð, heldur vitnar hún beint í ónefndan heimildarmann úr lög- mannastétt. Sjálf segir Guðrún DV skera sig úr í umfjöllun sinni, „þar sem allt virðist leyfilegt", og að aðr- ir fjölmiðlar „virðist stundum" eiga það til að taka upp stíl blaðsins. GUÐRÚNHNYKKIRÁ gagnrýni sinni á fjölmiðla með því að lýsa blaða- mönnum sem ungum, óreyndum og fávísum. Ekki hefur hún eigin orð fýrir þeim ásökunum heldur vitnar í nafnlausan heimildarmann sem réði af samtali sínu við óneftid- an blaðamann að hann þekkti ekki muninn á Hæstarétti og héraðs- dómi. Strax í kjölfarið kemur bráða- birgðaniðurstaða, með orðum nafnlauss heimildarmanns: „Fjöl- miðlaumfjöllun fylgir mikil áhrif. Því miður hefur það alltof oft kom- ið fyrir að fjölmiðlamönnum er ekki treystandi til að fara með þessa ábyrgð." GAGNRÝNI GUÐ- RÚNAR væri góðra gjalda verð, ef ekki væri fýrir þá átakanlegu staðreynd að í sama mund og hún hamrar á slælegum vinnubrögð- um ijölmiðla Lögmanna- blaðiö . "Í‘'nU „ **„&.*»dilMriíOOS Guðrún Björg Birgisdóttir hefði grein héraðs- dómslögmannsins verið ætluð öðrum fjölmiðlum en Lög- mannablaðinu hefði greinin verið endur- send afritstjóra og höfundur beðinn að endurskrifa hana." þverbrýtur hún þær reglur sem allir fjölmiðlar setja sér. Grein hennar er að öllu leyti byggð á beinum og óbeinum tilvitnunum í nafnlausa heimildarmenn og hennar eigin mati á því hvernig hlutirnir virðast vera. Það er fáheyrt að íslenskt blað leyfi sér að vitna beint í ásakanir óneftidra manna á hendur hópi manna, nokkuð sem á mannamáli er kallað rógburður úr launsátri. ÞRÁTT FYRIR VANGAVELTUR Guð- rúnar um að „allt virðist leyfilegt" á DV nefnir hún í grein sinni að blað- ið hafi sett sér siðaskrá. Þar segi meðal annars: „Bein ræða er aðeins notuð þegar heimild er nafn- greind." Og: „Ritstjóri getur ákveðið í sérstökum tilvikum að vernda nafnleynd viðmælenda, sem talað er við í beinni ræðu, ef öryggi hans er talið ógnað með nafnbirtingu." ÞAÐ SKAL FULLYRT að hefði grein héraðsdómslögmannsins verið ætl- uð öðrum fjölmiðlum en Lög- mannablaðinu hefði greinin verið endursend af ritstjóra og höfundur beðinn að endurskrifa hana með þeim hætti að nafnlausum tilvitn- unum og ásökunum yrði sleppt og sannleikans leitað með viður- kenndum vinnubrögðum fjölmiðla. Þannig mætti meðal annars koma í veg fyrir að allir blaðaljósmyndarar yrðu saklausir grunaðir um að brjóta reglur héraðsdóms. n r»i 1 Jakob Frímann Magnússon Var fastagestur hjó Gísla og vanmetinn skemmtikraftur. 2 Svanhildur Hólm Nýtur sin ekki á Stöð 2 og ætti að fara aftur heim til Loga. 3 Logi Bergmann Hjónaleysin gætu jafnvel séð um þættina saman og tekið viðtöl við önn- ur hjón. 4 Jónas R. Ljóshærður með gleraugu og það eitt ætti að koma hon- um hálfa leið. 5 Hemmi Gunn Ætti i raun að vera með þátt öll kvöld vikunnar. 6 Silvía Nótt Ríkið á hvort eð er Skjá einn og óþarfi að selja Silvíu með Símanum. 7 Jónína Benedikts- dóttir Hún hefur alla vega nóg að segja, konan. 8 Hannes Hólm- steinn Gissurarson í raun ótrúlegt að hann sé ekki löngu kominn með laugar- dagsþátt á RÚV. 9 Anna Kristine Magnúsdóttir fslensk Barbara Walters með sér- stakan áhuga á „venjulegu" fólki. 10 Auðun Georg Ólafsson Ekki úr vegi að bæta honum niðuriæg- inguna í stóra fréttastjóramálinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.