Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst MÁNUDAGUR 13.JÚNÍ2005 3 Spurning dagsins Hververður næsti borgarstjóri í Reykjavík? „Ekki neinn úr sviðsljósinu" „Þeir verða að sanna sig, karlarnir. Það á ekki að vera neinn úr sviðsljósinu, þvíþað vantar öflugan og kiáran mann íþetta starf' Árni Vigfússon, fyrrum bygginga- < meistari. „Gísii Marteinn. Égheftrúá honum." Sólborg Valdimars- dóttir, hús- móðir. „Ég heflitla skoðun á því, í fljótu bragði." Einar Ólafs- son, sérfræð- ingur hjá Landsbank- anum. «f ■* „Dagur B. Egg- ertsson. Og bara afþví að hann ersvo S •; 'M sætur." Erna Borg- þórsdóttir. förðunar- fræðingur. 0X.Jr „Ég er bara ekki alveg inn í þessum mál- um. Steinunn Valdís er samt örugglega fín." Hafþór Snær Þórsson, nemi. Skyndimyndin er að þessu sinni tekin af húsi í Hhðarási í Garðabæ en þar er heldur betur vetrarlegt um að litast. „Saga Film er að gera auglýsingu fyrir Wolkswagen í Þýskalandi," seg- ir Ólafur Aðalgeirsson sem er „location manager." „Hugmyndin var að sýna mann sem kemur út á morgni dags og fer að skafa snjóinn af bílnum sínum,“ segir Ólafur en snjórinn var innflutt- ur frá Bretlandi. „Við urðum að nota breskan innfluttan gervi- snjó enda myndi íslenski snjórinn hverfa strax í þessum hita.“ Nú fer að líða að prófkjörum innan flokka í borgarpólitíkinni. Reykvíkingar virðast ekki vera allir sammála um hver eigi að stýra borginni, en sumir virðast ekki kippa sér upp við það. Gamla myndin í dag er tekin afStein- grímiJ. Sigfússyni alþingismanni spila fótbolta íjúni árið 7999. Myndin er tekin i Hljómskálagarðinum þarsem herstöðv- arandstæöingar voru saman komnir til að mótmæla heræfíngu sem fara átti fram á túninu.„Ég man eftir þessu," segir Steingrímur.„Við ætluðum að koma i veg fyrir að þyrlurnar myndu lenda á túninu og eyddum þvi meiripartinum aftveimur dögum þarna og það ánægjulegasta var að heimsveldið og hernaðar- sinnar gáfust upp og hættu við að lenda," segir Stein- grimur og bætir við að þyrlur hefðu átt að lenda á Hljómskálatúninu og her- menn úrþeim hlaupa upp að bandariska sendiráðinu. „Þetta var ein afþessum fáránlega heimsku heræfíngum sem okk- ur fannst ekkert sniðug enda átti herinn lítið erindi inn i Hljómskálagarðinn. Við tókum okkurþvi saman, grasrótarhreyf- ing undir forystu herstöðvarandstæö- inga, og til okkar streymdi fólk og úr þessu varð því hin besta skemmtun. Þarna var fólk að leika sér saman i fót- bolta og spjalla saman og ég held að okkur hafí meira að segja tekist að koma Ögmundi Jónassyni i fótboltann. Við skiptumst á að vera á túninu iþann tíma sem æfingin átti að vera en svo þegar sá tími var búinn var þetta búið. Þá kom hallærisleg skýring að þeir hefðu breytt áætluninni. Þeir viðurkenndu að sjálf- sögðu ekki að þeir hefðu efístupp." Hvalreki Að eitthvað sé mikill hvalreki fyrir ein- hvern merkir mikið happ eða mikill fengur fyrir viðkomandi. Líkingin erdregin afþví að það þótti mikil björg í bú þegar hval rak á fjörur. Málið „Það er stórlega ofmetið að . vera með tveimur stelpum í \ einu. Það verður alltaf \ vandræðalegt því einhver verður alltaf útundan. / Þess vegna er málið að / vera með þrem stelpum í einu, þá hafa allir nóg að gera." Ofurtöffarinn Tommy Lee ÞÆR ERU MÆÐGUR Mezzó-sópraninn & menningarmálastjórinn Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzó-sópran hefur fengið mikla athygli upp á síðkastið fyrir sína sterku og gullfallegu rödd. Hún hefur unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir söngsinnog tvisvar spilað með Sinfóníu- hljómsveit Islands. Henni hefur vegnað vel um víða veröld og er búsett i Madrid ásamt eiginmanni sinum, Francisco Javier Jauregui, gítarleikara. En þau spila mikið saman og héldu síðast tónleika hérá landi rétt fyrir jól fyrir fullu hús. Móðir Guðrúnar er Signý Pálsdóttir, menningarmála- stjóri Reykjavikurborgar. Signý vann lengi vel i Þjóðleikhúsinu og var leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar í fjögur ár. Það mámeð sönnu segja að þær mæðgur lifí fyrir menninguna. ÞJÓÐ VERÐURTIL - MENNING OG SAMFÉLAG í 1200 ÁR Grunnsýning sem veitir innsýn í sögu þjóðarinnar frá landnámi til nútíma. Mynd á þili. Sýning um íslenska myndlistarmenn fyrri alda. Ljósmyndasýningar. Safnbúð. Veitingastofa. f.-l ÞJÓÐMINJASAFN ÍSIANDS Opnunartfmi: National Museum ofJceland www.thjodminjasafn.is Suöurgötu 41 / 101 Reykjavík Fyrsta fimmtudag í mánuði kl. 10-21 Sími: 530 2200 Ókeypis á miðvikudögum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.