Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Page 22
22 MÁNUDAGUR 13. JÚNl2005 Sport DV Þaö er mikil spenna hlaupin í Formúlu 1 eftir keppni helgarinnar í Kanada. Stiga- hæsti ökuþórinn, Fernando Alonso, tókst ekki að ljúka keppni en Kimi Raikkonen fagnaði góðum sigri. Þá minnti Michael Schumacher allrækilega á sig. WARSTEINER Kimi Raikkonen tókst að bæta fyrir ófarirnar frá síðasta kappakstri, er hann missti niður forystu sína í Nurburgring á síð- asta hring vegna bilun í hjólabúnaði. Þá tókst Femando Alonso að hirða öll stigin á meðan Finninn fljúgandi sat eftir með sárt ennið. Nú snemst leikar við, Alonso helltist úr lestinni en Raikkonen fagnaði sigri. Ferrari-menn vöknuðu til lífsins og luku keppni í öðm og þriðja sæti. „Þetta var frá- bær sigur af því að Renault tókst ekM að hala inn nein stig," sagði Raikkonen, hæstánægður eftir kappaksturinn. Þar með minnkaði Alonso í 22 stig en hann varð að hætta vegna bilunar í fjöðrunar- kerfi eftir að hann hafði ekið á vegg er hann leiddi kappakstur- inn. Þá var fé- lagi Raikkonen hjá McLaren, Juan Pablo Montoya, sýndur svarti fáninn sem þýðir að hann var dæmdur úr leik. Yfirgaf hann viðgerðarsvæðið á ólöglegan máta á meðan öryggisbíllinn var í brautinni. Var Montoya þá með for- ystu í kappakstrinum og því vonbrigðin mikil hjá honum. Á síðustu hringjunum tókst Raikkonen að halda aftur af Michael Schumacher sem reyndi btlU •Sáé-' hvað hann gat að komast fram úr Finnanum. Hinn ökumaður Ferrari, Rubens Barrichello, var ekki langt undan en hann færðist upp í þriðja sætið er Jarno Trulli hjá Toyota hætti vegna bilunar í hemlunarkerfi Toyota-bifreiðar sinnar. í næstu sætum á eftir komu Felipe Massa hjá Sauber, Mark Webber hjá Williams og Ralf Schumacher, Toyota. Var þetta þriðji sigur Raikkonen á tímabilinu og var sigri hans í gær fyrst og fremst því að þakka að hon- um tókst að forða vandræðin sem hrjáðu helstu keppinauta hans. Bretinn Jenson Button var á ráspól við upphaf kappaksturins en hann klessukeyrði bíl sinn með þeim afleiðingum að öryggisbílinn kom inn á brautina og hrinti af stað mikilli at- burðar- rás á viðgerðarsvæðinu. Raikkonen kom með sinn bíl inn og einum hring síð- ar var röðin komin að Montoya. En honum lá svo mikið á að komast aft- ur á brautina og halda þar með góðri stöðu sinni að hann hunsaði rauða viðvörunarljósið á brautinni sem bannaði honum að aka inn á hana. Var hann í kjölfarið dæmdur úr leik. eirikurst@dv.is Efstu þrír Kimi R aikkonen fagnor sigrinum ásamt Michael Schumacher og Rubens arnc pho(os/AFp mestu sætum á eftir. ______________________— Línur teknar að skýrast á EM í kvennaknattspyrnu á Englandi Þrjár skandinavískar þjóðir í undanúrslitum Þjóðverjar unnu auðveldan sig- ur á Frökkum í gær á Evrópumót- inu í kvennaknattspyru sem nú stendur yfir á Englandi. Inka Grings skoraði fyrsta markið um miðbik seinni hálf- leiks. Renate Lingor skoraði síðan úr vítaspyrnu eftir að brot á Inku Grings, og skömmu síðar innsigl- aði Sandra Minnert sigurinn með marki úr aukaspyrnu. Norsku stúlkurnar skelltu þeim ítölsku í miklum markaleik. Lise Klaveness kom Noregi yfir í fyrri hálfleik en Melania Ganni- adini jafnaði fljótt með góðu marki. Marit Christensen, Solveig Gulbrandsen og Dagny Mellgren bættu við þremur mörkum fyrir Norðmenn og staðan því orðin vænleg fyrir norsku stúlkurnar. Ganniadini náði að minnka mun- inn fyrir ítali áður en Klaveness skoraði fimmta mark norsku stúlknanna með frábæru lang- skoti. Elisa Camporese náði síðan að klóra í bakkann fyrir ítali, en lengra komust þær ekki. Norsku stúlkurnar fóru áfram upp úr riðl- inum ásamt Þjóðverjum, en þær komust áfram með fullt hús stiga. Svíþjóð og Finnland komust áfram upp úr A-riðli og Þjóðverj- ar og Norðmenn upp úr B-riðli. Skandinavíuþjóðirnar hafa sýnt það og sannað að þær standa flestum öðrum þjóðum fram í kvennaknattspyrnu. Þrjár þjóðir af fjórum sem eru í undanúrslit- unum eru Norðurlandaþjóðir. Finnar hafa komið liða mest á óvart en þeir komust áfram á kostnað Dana sem fyrirfram voru taldir með eitt af betri liðum í keppninni. Norðmenn áfram Norsku stúlkurnar fagna sigrinum á Itölum Igær. Nordic Photos/Getty Jón Oddur vann á opna breska Hlauparinn Jón Oddur Halldórsson sigraði um helgina í 100 og 200 metra hJaupi á opna breska frjálsíþróttamótinu fyrir fatlaða í Englandi. Kom hann í mark á 13,58 sekúndum í 100 metrunum og 28,03 sekúndum f 200 metra hlaupinu. Þá tók Baldur Baldursson þátt í kúluvarpi og hafnaði hann í 2. sæti í sínum flokki, kastaði 10,10 metra. Hann varð einnig í fjórða sæti í 100 metra hlaupi á 14,09 sekúndum. Þátttaka þeirra í mótinu var liður í undirbúningi þeirra fyrir Evrópu- meistara- mót fatlaðra sem fer fram í Espoo í 1 Finnlandi W um miðjan ágúst. Þar hefur Jón Oddur tvo titla að verja. "V V \Æ «S Sheringham elstur í úrvalsdeild Teddy Sheringham hefur ffamleitt samning sinn við West Ham um eitt ár til viðbótar og því Ijóst að hann snýr aftur í keppni þeirra bestu í Englandi á næstu leiktíð. West Ham unnu sér sæti í úrvalsdeildinni núna í vor, með sigri á Preston í úrslitaleik umspOskeppninar um siðasta lausa sætið. Sheringham spiiaðj ekki í leiknum en skoraði 20 mörk á leiktíðinni. Hann er 39 ára gamall og spannar atvinnumannaferill hans tvo áratugi. Hann hefur , • - - leikið með Millwall, | ^ V Nottingham Forest, P Manchester United1 A og Tottenham í efstu deild í Englandi. Hann Smicer á leið til Bordeaux Tékkinn Vladimir Smicer, sem leikið hefur með Liverpool undanfarin misseri, er á leiðinni til Bordeaux í Frakklandi ef marka má breska {jölmiðla. Þessi 32 ára landsliðsmaður fékk að vita í vor að hann væri ekki í framtíðaráætlunum liðsins en hann var í liði Liverpool sem vann meistaradeild Evrópu nú í vor. Samkvæmt fregnum mun hann gangast undir læknisskoðun í dag og ef hann stenst hana skrifar hann undir tveggja ára samning. Benitez reyn- ir við Reina Rafael Benitez, stjóri Liverpool, hefur viðurkennt að hann hafi áhuga að fá Jose Reina, markvörð Villareal, til Uðs við félagið. Talið er að Liverpool þurfi að borga átta milljónir punda fyrir Reina, sem er 22 ára gamall. Hann mun þó þurfa að hafa hraðar hendur því Liverpool hefúr leik í meistaradeild Evrópu þann 6. júlí næstkomandi. Ef Reina gengi til liðs við Liverpool yrði hann sjötti Spánverjinn tíl að ganga til liðs við félagið síðan Benitez tók við því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.