Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Side 23
DV Sport
r
Carlsbergmótinu í Toyotamótaröðinni lauk í gær
Ragnhildur Sigurðardóttir úr
Golfklúbbi Reykjavíkur og Heið-
ar Davíð Bragason úr golfklúbbn-
um Kili sigruðu á Carlsbergmót-
inu í Toyotamótaröðinni í golfi,
sem fram fór í Vestmannaeyjum
um helgina. RagnhOdur hafði þó
nokkra yfirburði en átta höggum
munaði á henni og Önnu Lísu Jó-
hannsdóttur sem varð önnur.
„Þetta gekk vel hjá mér og ég er
auðvitað ánægð með þetta. Ég var
stöðug og náði að spila f/
hringina án þess að gera þ
mörg mistök. Sérstak-
lega var síðasti hringur-
inn góður hjá mér, en
þá spilaði ég á einu
höggi undir pari.“
Samtals lék Ragn-
hildur á sex högg-
um yfir
pari
vall-
arins
var töluvert á undan næstu kepp-
endum. Á eftir Önnu Lísu í öðru
sæti var Tinna Jóhannsdóttir á
sautján höggum yfir pari og
fjórða varð Þórdís Geirsdóttir á
tuttugu og þremur höggum yfir
pari.
Heiðar Davíð sagðist að vonum
ánægður með sigurinn. „Ég var að
spila gott golf og náði að vera jafn
og fínn í púttunum, en þau voru
svolítið að stríða á fyrstu hringj-
unum. Ég reyndi að laga það
áður en ég lagði af stað í
síðasta hringinn. Aðstæð-
urnar voru líka
svolítið erfiðar,
eins og alltaf
hér í Eyjum, en
þetta var mjög
gaman og
von-
ég byggt á þessu á næstu mótum.“
Heiðar Davíð endaði á fimm
höggum undir pari vallarins sem
verður að teljast góður árangur.
Sigurpáll Geir Sveinsson, úr
Kili, var í öðru sæti sex höggum á
eftir Heiðari og Magnús Lárus-
son, sem spilaði vel framan af en
gaf svo eftir á síðasta hringnum,
varð þriðji. -mh
i
högga forskot d næsta keppanda. Heiöar Davio
lauk keppni áfimm undir part.
íslensku atvinnukylfingarnir í eldlínunni
Birgir Leifur og Ólöf María að spila vel
Birgir Leifur Hafþórsson og Ólöf María Jónsdóttir, íslensku at-
vinnukylfingarnir, voru í eldlínunni um helgina, en Birgir
Leifur varð í 30. sæti á móti í Esbjerg í Danmörku og Ólöf
María í 41.sæti í Frakklandi.
Birgir var sáttur með spila-
mennsku sína. „Ég var ánægður
með mína spilamennsku. Ég var
nokkuð stöðugur og náði að spila
vel við hrikalega erfiðar aðstæð-
ur, en það var mjög hvasst og
rennslið á flötunum mikið."
Birgir sagðist vera á góðri leið
núna, en hann hefur komist í
gegnum niðurskurðinn á öllum
mótunum sem hann hefur
tekið þátt í að undanl
„Þetta lítur vel núna.
renni bara að taka e
högg í einu og hugsE
um sjálfan mig. Það
hentar mér best því
það er ekki hægt að
vera velta sér upp
úr því hvernig
keppninautarnir
leika."
Ólöf María spil-
aði síðasta hringinn
á pari og lauk keppni
á fimm höggum yfir
pari. „Ég er ánægð
með að komast í
gegnum niðurskurð-
inn, því það er það
sem maður reynir
alltaf að gera. Ég
var líka
nokkuð
sátt við spilamennsk-
una í heild
sinni
lægð síðustu tvær vikur. Von-
andi verður þetta til þess að
ég kemst á beinu brautina."
' ASkRiFT; 515 6100 | WWW.ST002.iS | SKÍFAN i OC VODAFONE
Eftir margra mánaóa vinnu, rifrildi. tár
og gleði ráóast úrslitin í The Block.
Hver skilar af sér fallegustu íbúðinni?
THE BLOCK — URSLIT
í kvöld kl. 21:20