Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Page 32
32 MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ2005
Menning DV
Menn, ísbirnir og hreindýr til umfjöllunar hjá
Hafnarfjarðarleikhúsinu
Um mörk mennskunnar
„Þetta eru tvö stutt leikrit eöa ör-
verk eftir Sigurbjörgu Þrastardótt-
ur rithöfund. Mjög skemmtileg
verk og ýmsu er velt upp. Hvað
gerist þegar ísbjörn og stelpa eru
föst á umboðsskrifstofu?" segir
Elma Lísa Gunnarsdóttír, leikkona
sem nú æfir sem mest hún má með
Hafnarfjarðarleikhúsinu.
Frumsýning verður á miðvikudag-
inn og er það Hilmar Jónsson sem
leikstýrir. Annað verkið heitir „ís-
björn óskast" og hitt „Hreindýr".
Fólk og dýr virðast þannig vera
umfjöllunarefnið. Eima Lísa segir
athyglisverðar spurningar af
heimspekilegum toga vakna og
þarna sé meðal annars ver-ið að
kryfja hvar mörk mennskunnar
•iggja.
Sýningin er í tengslum við menn-
ingadagskrána Bjarta daga sem
haldnir eru ár hvert í Hafnarfirði.
Að sögn Elmu Lísu hefur verið æft
stíft, hratt og örugglega. „Þetta er
frekar hrá sýning og minna lagt í
umgjörðina. Hér er það innihaldið
sem skiptir máli. Bara aftur til upp-
runans."
Aðeins verða þrjár sýningar á
þessu verki en leikarar eru Elma
Lísa, Jón Páll Eyjóifsson og Erling
Jóhannesson.
Elma Lísa upplýsir að þegar hafi
verið lögð drög að verkefnadag-
skrá Hafnarfjarðarleikhússins fyrir
næsta leikár en þrjú verk verða
sett upp næsta vetur.
Bókin á náttborði
fótboltakappans
Röddin eftir Arnald
Tryggvi Guðmunds-
son, FH
„Auðvelt að svara
því. Röddin eftir
Arnald Indriða-
son. Ég átti hana
alltafeftir, hana
og Kleifarvatn
sem er svo næst á
dagskrá. Búinn að lesa
allt annað eftir hann. Arnaldur er brill-
ant. Klassabækur sem hann skrifar.“
Da Vinci lykillinn
Auðun Helgason, FH
„Bókin á náttborðinu, eða
reyndar I kassanum,
og hefur verið þar
lengi, í margar vik-
ur, er þessi frægi
lykill;Da Vinci lyk-
illinn. Ég hefstað-
ið í flutningum, við
erum að koma okkur
fyrir, og konan skilur
ekki að ég sé ekki búinn að rífa upp
kassann og Ijúka lestrinum þvl ég er
kominn ansi langt. Allur eltingarleikur
er að klárast og spennan í hámarki. Ég
ætla að klára hana á allra næstu dög-
um. Ég les ekki mikið en maður tekur
skorpur."
Queer Eye for the
Straight Guy-bókin
Björgólfur
Takefusa, Fylki
„Ég náttúrulega
les mestmegnis
skólabækur. En
það hittist
reyndar þannig
á að Queer Eye for
the Straight Guy-bók-
in er á náttborðinu einhverra hluta
vegna. Ég hefekkert lesið í henni en var
gefin hún affrænda mínum og mág-
konu. Skilaboð? Þá hvort ég eigi að vera
eitthvað meira metrósexúal? Ég vona
ekki. Ég er ánægður með minn fótbolta-
stíl."
Da Vinci lykillinn
Gylfi Einarsson,
Leeds
„Ohhh, bíddu við.
Ég er ekki að lesa
neina í augnablik-
inu.Ensíðastabók-
in sem ég las var Da
Vinci Code. Mér fannst
hún helvlti góð og bíð spenntur eftir
myndinni. Ég les mikið I kringum jólin.
Og efég grip I góða bók læt ég hana
ekki frá mér fyrr en hún er búin. Mér
finnst gaman að lesa ævisögur og
svona en það er engin I sigtinu núna
sem er."
Digital Fortress
Brynjar Björn
Gunnarsson,
Watford
„Ég byrjaði fyrir
löngu á Digital
Fortess eftir Dan
Brown og hún erí
gangi hjá mér núna.
Reyndar langt síðan ég
opnaði hana. Ég las þetta írútunum á
tímabili. Iútileikjum og á hótelum.
Annars er ég ekki duglegur við að lesa.
Já,já, Dan Brown er góður. Ég heflesið
Da Vinci Code. Hún var mjög góð og
athyglisverð."
Gísli Örn Garðarsson leiðir lesendur DV í allan sannleika um Cirkus Cirkör, ein-
hvern öflugasta sirkus heims sem verður með sýningar í Borgarleikhúsinu alla
þessa viku. Þar þrífast allra þjóða kvikindi undir sænskum fána.
Smlmr sirkus s ksims-
mæMarSa kmr
„Já, Cirkus Cirkör var okkur innan handar við uppfærsluna á
Rómeó og Júlíu. Og svo núna Voyzek," segir Gísli öm Garðarsson
hjá leikhópnum Vesturporti sem heldur betur hefur verið að slá í
gegn að undanfömu, einmitt með sirkusskotnum leiksýningum.
Cirkus Cirkör sýnir 99%
UNKNOWN á Stóra sviði Borgarleik-
hússins aUa næstu viku og byrjar
veislan annað kvöld. Þessi sirkus var
reyndar hér á ferð árið 2001 í Laugar-
dalshöll og þá mætti hvorki meira né
minna en eitt prósent þjóðarinnar.
Þannig að fyrirbærið er ekki óþekkt
hér á landi.
„Óviðjafnanlegt undraferðalag
um leyndardóma heilans - fjölleika-
hús, ópera, söngleikur, dans, leikhús
og miklu meira en það - enda eiga
gagnrýnendur ekki nægilega sterk
orð til að lýsa upplifuninni," segir
Sigrún Valbergsdóttir hjá Borgarleik-
húsinu og sparar hvergi til þegar hún
lýsir dásemdum Cirkus Cirkör.
Sirkus á heimsmæli-
kvarða
Gísli Örn dregur svo
sem ekki úr þessum há-
stemmdu lýsingarorðum og
segir þarna meistara
Gísli Örn Garðarsson Þekkir
vel til Cirkus Cirkör en sirkus-
inn var Vesturporti innan
handar með uppfærsluna á
Rómeó og Júlfu og nú
á ferð. „A heimsmælikvarða. Algjör-
lega. Sá sem hefur gaman af sirkus
ætti ekki að láta þetta fram hjá sér
fara. Ég ætla í það minnsta. Eg hef
ekki séð þessa tilteknu sýningu. Sum
atriðin sem maður sér hjá þeim eru
eins og þau verða best á þessu sviði.
Þetta fyrirbæri er svona evrópska út-
gáfan á Cirque du Soleil eða Sólar-
sirkusnum í Kanada sem er stærsti
sirkus í heimi - veltir miiljörðum."
Cirkus Cirkör er staðsettur í Sví-
þjóð, siglir undir sænskum fána, en
þarna eru allra þjóða kvikindi að
sögn Gísla Arnar. „Þetta virkar eins
og leiklistarskóli og menn sækja
þangað í nám. Mér skilst að nú orðið
geti menn útskrifast með háskóla-
próf í sirkusfræðum.Og þangað
sækja margir sem eru mjög
færir fyrir. Svo eru alltaf ein-
hverjar sýningar í tengslum
við þetta dæmi allt."
Einstök atriði alveg
mögnuð
Gísh Örn segir Cirkus Cir-
kör með mjög góða að-
iöu í Svíþjóð
enda styrktir
Cirkus Cirkör Gisli Örn segirsum atriðihjá þessum sirkus það besta sem sjáistá þessu sviði.
veglega af rikinu. Þetta er tíu ára
fyrirbæri sem vaxið hefur gríðarlega
hratt. List Cirkus Cirkör eru skil-
greind sem nýsirkus. Gísli Örn segir
eitt áberandi einkenni þess að í slík-
um sirkusum séu engin dýr.
„Menn eru settir í afgerandi bún-
inga og tengja sig leikhúsi með
ýmsum hætti, til dæmis með lýsingu.
Svo er reynt að búa til konsept í
kringum sjóið. En það sem ég hef
séð, til dæmis hjá Sólarsirkusnum,
þá hefur þeim tekist mjög misjafh-
lega upp. Einstök atriði eru alveg
mögnuð en rauði þráðurinn getur
týnst niður. Stundum skilur maður
ekki alveg hvað verið er að fara. En
engu að síður er þetta það besta sem
gerist í sirkus."
Gísli Örn segir alia hópa, hversu
færir sem þeir eru, gera misjafhar
sýningar. „En Cirkus Cirkör hefur
verið mjög lofaður fýrir það sem
hann hefur gert."
Mikiö fjör við opnun í vinnustofu Tolla
Tolli mokar út málverkum
Sveinn Rúnar Hauks-
son Þessi dáði heimilis-
læknir lét sig ekki vanta.
Á föstudaginn var Tolh með opnun í vinnu-
stofu sinni risastórri úti á Seltjamamesi. Opn-
unin er í tengslum við menningardaga Seltjarn-
amesbæjar og í boði Bónuss. Það eitt segir sitt.
Opnunin var ákaflega alþýðleg, troðfuht af fólki
og mikil stemning. Einar Már Guðmundsson
flutti ljóð, Bubbi Morthens sté á stokk og heiðr-
aði stóra bróður og síðan léku Papamir af miklu
fjöri. „Alveg yndislegir," sagði Bubbi sem söng
hástöfum og dansaði með vinum sínum í þjóð-
lagarokksveitinni. í stað rauðvínsglundursins
sem einkennir myndlistaropnanir var boðið
upp á kók, snakk og ídýfur. Enda Tohi gegnheih
AA-maður og Bakkusi var ekki boðið. Einar
Kárason rithöfundur, sem þarna var staddur,
sagði í samtali við blaðamann að það væri
dæmigert fyrir Toha að þrátt fyrir fjölda gesta
var þar fátt manna úr „intelhgensíunni" svokall-
aðri. Og við fjölmörg verkanna var kominn lítilL
rauður punktur sem þýðir selt verk. Tolli bók-
staflega mokaði verkunum út, seldi og seldi.
Ánægður listamaður Kajak
ferð Tolla um Vestfirðina er
augljós áhrifavaldur og féllu
verkin I góðan jarðveg.
Litagleði og landslag Eitt
verkanna á sýningunni. Rauðu
deplarnir við myndirnar voru
margir og Tolli seldi málverk í
stórum stíl.