Dagblaðið Vísir - DV - 13.06.2005, Qupperneq 39
IW Síðasten ekkisist
MÁNUDAGUR 13. JÚNÍ2005 39
Endurskoðun stjórnarskrárinnar
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
Tilkynnir um ákvörðun slna að stað-
festa ekki fjölmiölafrumvarp rlkis-
stjórnarinnar. Líklegtþykir að breyt-
ingar á stjórnarskrá snúi að
embætti forsetans.
DV-mynd G/AI
Pólitískt ástand mála hjá Fram-
sóknarflokknnm og Halldóri Ás-
grímssyni persónulega er heldur
bágborið þessa dagana. Ekki er þó
öll von úti enn. Endurskoðun stjóm-
arskrárinnar átti að vera Framsókn-
arflokknum lyftistöng og rós í
hnappagat Halldórs Asgrímssonar;
undir hans forystu skyldi stjómar-
skráin endurskoðuð. Enn er von í
þessu efni, þó að fyrri tilraunir til
endurskoðunar gefi ekki tilefni til
bjartsýni. Heildarendurskoðun
stjórnarskrárinnar hefur aldrei verið
til lykta leidd og margendurtekin
endurskoðun á kaflanum um kjör-
dæmaskipan og kosningar hefur
verið illa unnin. Takist endurskoð-
unin verður það Framsóknarflokkn-
um til framdráttar, mistakist hún
verður það enn eitt dæmið um mis-
heppnaða forsætisráðherratíð Hall-
dórs Ásgrímssonar. Hér er því til
mikils að vinna.
Umræðan að byrja
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra er formaður stjómarskrár-
nefndar, en í henni sitja fulltrúar
allra flokka. Stjómarskráin er of mik-
ilvæg til að stjómmálamenn makki
um hana bak við luktar dyr og því
var það góðs viti að stjómarskrár-
nefndin bauð á laugardaginn full-
trúum frjálsra félagasamtaka til að
Birgir Hermannsson
skrifar um áform yfir-í
valda um að breyta
stjómarskránni.
Kjallari
Það er Ijóst að sjálf-
stæðismenn vilja af-
nema málskotsrétt
forsetans
leggja orð í belg. Ýmis sjónarmið
komu þar fram og ljóst að umræðan
er rétt að byrja. Það er ekkert laun-
ungarmál að endurskoðunin nú er
til komin vegna pólitískra deilna um
synjunarvald forsetans og forseta-
embættið almennt. Miðað við um-
ræðuna á laugardaginn verður
nefndin einnig að h'ta til mannrétt-
indakafla stjómarskrárinnar og gera
á honum einhverja bragarbót, þó að
það hafi ekki staðið til í upphafi.
Þetta flækir auðvitað máhð, en hjá
því verður ekki komist. Staða þjóð-
kirkjunnar er einnig mál sem ekki er
hægt að ýta á undan sér endalaust,
þó strangt til tekið sé hægt að breyta
þessu sérstaklega og án tillits til ann-
arra þátta stjómarskrárinnar. Kjör-
dæmaskipan og ójafn kosningarétt-
ur landsmanna er brýnt úrlausnar-
efni, enda nýtur núverandi skipan
lítils stuðnings annarra en þing-
manna úr landsbyggðarkjördæm-
um.
Þjóðaratkvæðagreiðslur
Ekki er að búast við neinum rót-
tækum breytingum á stjómskipun
landsins við þessa endurskoðun. Þó
að margir vilji skerpa á þrískiptingu
ríkisvaldsins er hklegra að þingræðið
verði fest í sessi með núverandi
formi. Staða ríkisstjómarinnar verð-
ur skýrð og gert ráð fyrir að hún njóti
stuðnings á Alþingi. Ekki er heldur
að búast við róttækum breytingum á
stöðu forsetans, þó að orðalagi verði
breytt verulega. Sjálfsagt verður rifist
um orðalagið, en forsetaembættið á
sér mikinn stuðning meðal almenn-
ings og því verður ekki breytt svo
auðveldlega. Skipun Hæstaréttar-
dómara er hitamál, en Framsóknar-
flokkurinn og stjómarandstaðan em
augljóslega ósátt við núverandi skip-
anmála.
Það sem valda mun mestum deil-
um er spumingin um þjóðarat-
kvæðagreiðslur, en þar sitja deilur
síðastiiðins sumars í mönnum. Um
þjóðaratkvæðagreiðslur var htið rætt
á fundinum á laugardaginn, en þó
kom þar fram hefðbundin tortryggni
margra stjómmálamanna við slíkar
atkvæðagreiðslur. Það er ljóst að
sjálfstæðismenn vilja afnema mál-
skotsrétt forsetans, þó að ekki sé
nægilega ljóst hvað þeir bjóði í stað-
inn. Um þetta verður deÚt í nefiid-
inni og fróðlegt að fylgjast með því
hvaða afstöðu Framsóknarflokkur-
inn tekur í málinu. Málamiðlun get-
ur ekki orðið nema með verulegri
rýmkun á rétti almennings til að
kreíjast atkvæðagreiðslu.
Almenningur er vakandi!
Eftir atburði síðasthðins sumars
er ljóst að almenningur skilur mikil-
vægi málskotsréttarins og mun ekki
sætta sig við aö hann verði afhuminn
nema auðvelt verði að knýja fram at-
kvæðagreiðslu um mál með öðrum
hætti. Það er einnig ljóst að veruleg-
ur stuðningur er við þjóðaratkvæða-
greiðslur og aukið vægi þeirra í ís-
lenskum stjómmálum. Stjómar-
skrámefndinni dugir því ekki að ná
málamiðlun innbyrðis ef sllk mála-
miðlun hefur htinn hljómgrunn
meðal almennings. í staðinn fyrir
málamiðlun sem ailir geta staðið að
gæti því þurft að koma til uppgjörs í
nefndinni um ákveðin atriði. Hér
mun reyna á Framsóknarflokkinn.
Stendur hann sig eða stendur hann
sig ekki?
Sandkorn
Kristján Guy Burgess
• Formaður einka-
væðingamefndar,
Jón Sveinsson, lög-
fræðisérfræðingur
Halldórs Ásgríms-
sonar og Framsókn-
arflokksins var
spurður að því á
fundi fjárlaganefndar í síðustu viku
hvort hann hefði vitað af því að
Skinney-Þinganes hefði verið helm-
ingseigandi að félaginu Hesteyri
sem var notað í
flétm S-hópsins til
að eignast Búnaðar-
bankann. Jón sagð-
ist ekki hafa vitað
annað en tilkynnt
var tii nefndarinnar.
Það hlýtur að þýða
að kínamúrar á lög-
fræðistofu hans séu sterkir því lög-
maður Hesteyrar og Skinneyjar-
Þinganess, Garðar Garðarsson, rek-
ur stofu með Jóni.
• Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
virðist í miklum ham þessa dagana
og hefur ákveðið að hefja kosninga-
baráttuna tíman-
lega. Til marks um
það hefur flokkurinn
þegar tryggt sér
þjónustu eins besta
ljósmyndara lands-
ins,AraMagg, tilað
taka myndir af fram-
bjóðendum. Þetta er
lúmskur leikur því í síðustu kosn-
ingum notaði R-hstinn Ara til að
taka myndir af sínum frambjóðend-
um með góðum árangri.
• Á föstudagskvöldið safnaðist fína
fólkið á íslandi saman á tískusýn-
ingu Mosaic í
Skautahöhinni í
Laugardal. Ekki
sáust öh frægu nöfn-
in sem búin voru að
boða komu sína en
engu að síður var
mikið af lykilfólki úr
breskum tískuheimi. Dóttir Ringos
Starr, Lee var þama en hvorki Dav-
id Beckham né Victoria kona hans
létu sjá sig, ungum aðdáendum
sem biðu fýrir utan, til mikilla von-
brigða.
' ■
I
Hægur f.æ9ur
<-“)vindur vmJur
■S Ámcrgurti
' Ýv,,\ \ ♦ *
-s.S. ''J ' . ,,
' ^ ****
Ch
Njótum góðviðrisins því á
morgun kemur lægð úr
austri. Þó er útlit fyrir að
fólk á vesturhelmingi
landsins sleppi við
rigninguna enn um sinn.
Athygli vekur að leita þarf
norður á Raufarhöfn til að
finna lægri hita á Islandi en
er í Kaup-mannahöfn.
r+15
Hæ
vindur
Hæaur
vindur
(^'’VÍtagur
vindur
■y
j Hinn
J|Igg§JggJl
V
\Qd>
Hægur
vindur
+14
lægur
vindur
Hægur . " > 'y
vindur
12 París 21 Alicante 27
15 Berlin 15 Mílanó 22
19 Frankfurt 20 NewYork 21
16 Madríd 25 San Francisco 21
17 ■ : : 23 Orlando/Flórída 32
Sólarupprás
(Reykjavík Reykjavlk s
0259 2358
• Forstjóri Mosaic,
Derek Lovelock var
þarna ásamt Jóni
ÁsgeiriJóhann-
essyni. Lovelock
ferðaðist um á fín-
um bíl með skyggð-
um rúðum, sem
þýddi að hann vakti athygli ljós-
myndara sem héldu að David Beck- »
ham væri í bflnum.
Á föstudaginn hófst
eltingarleikur sem
endaði við KB banka
þegar ljósmyndar-
inn komst að því að
ekki var frægari
maður en Lovelock í
bflnum. m
• Á föstudaginn,
þjóðhátíðardaginn,
fer Sirkus í loftið. Þá
birtist nýtt tímarit
sem Sigtryggur
Magnason og Anna
Margrét Bjömsson
ritstýra. Þá hefjast
líka útsendingar sjónvarpsstöðvar
sem Ámi Þór Vigfússon hefur verið
að undirbúa. Kvöldþátturinn sem
Guðmundur Stein-
grímsson verður í
aðalhlutverki, fer þá
líka af stað og verður
spennandi að sjá
hvernig þátturinn
rennur ofan í lands-
menn.