Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Side 15
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ2005 15 Vatnslaust í Sidney Borgaryfirvöld í Sidney hafa sett íbúum strangan vatnskvóta. Vatnsbirgðir borgarinnar hafa sjaldan eða aldrei verið jafii Utlar, 38% af eðlilegu magni. íbú- ar mega ekki þvo bíla sína og aðeins vökva garðana tvisvar í viku. í gær rigndi að vísu í borginni og fagn- aði fólk þá skærum regn- boga. Það rigndi þó ekki nóg til að bæta ástandið. Nakin á móti nautum Meðlimir dýraverndun- arsamtakanna PETA fjöl- menntu fyrir framan spænska sendiráðið í Washington í Bandaríkjun- um á þriðjudag. Allir af- klæddu sig og veifuðu skilt- um tU að mótmæla hinu ffæga nautahlaupi, sem fram fer í Pamplona á Spáni eftir rúmar tvær vikur. Geta eignast börn 45 ára vegna gena Samkvæmt nýrri ísrael- skri rannsókn skipta gen öUu máli varðandi það hvort konur geta eignast börn 45 ára eða eldri. 250 konur voru til rannsóknar. Þær höfðu aUar eignast börn á náttúrulegan hátt eftir 45 ára aldur. Sömu gen fundust í öUum konunum. Þau virðast gera það að verkum að eggjastokkar þeirra eldast hægar. Þær kynsterkustu voru með gen sem vísindamennirnir ráku aftur tU Ashkenazi-kyn- stofnsins. Léttklædd í Rio Breska ofurfyrirsætan Naomi CampbeU vakti mikla lukku og aðdáun við- staddra þegar hún sprang- aði fram paUinn á tískusýn- ingu í Ríó um helgina. Létt- ur klæðnaður eftir hönnuð- inn TNG sá til þess, en þessa dagana fer fram tískuvikan í Ríó. „Bill nauögaði Hillary og Chelsea kom undir.“ Þannig hljóðar staðhæfing í nýrri bók Edwards Klein, Sannleikurinn um Hillary. Bókin hefur sett allt á annan end- ann í Bandaríkjunum. \m Hamingjusom fjölskylda | Samkvæmt heimildum Ed- p wards Klein var getnaður Chelsea Clinton afleiðing m árásar Bills á eiginkonu sina Edward Klein Umdeildasti maöur Banda- rikjanna i dag. f Fyrir rúmri viku ætlaði allt um koll að keyra þegar það spurðist út að í bókinni Sannleikurinn um Hillary eftir Edward Klein væri því haldið fram að Bill Clinton hefði nauðgað Hillary og Chelsea, dóttir þeirra, hefði þá komið undir. Atvikið átti að hafa átt sér stað á Bermúda-eyjum árið 1979. Bókin kom út í Bandaríkjunum á þriðjudaginn var og eru skiptar skoðanir um ágæti hennar. Höf- undurinn hefur mætt í nokkur við- töl til að verja hana, en margir fjöl- miðlamenn neita að tala við hann. Helst er talið að bókin sé upphafið að áróðursherferð á móti Hillary til að koma í veg fyrir gott gengi henn- ar í forsetakosningunum árið 2008. Vilja sniðganga bókina „Við tjáum okkur ekki um skáld- sögur. Sérstaklega ekki bækur sem eru fullar af hrikalegum og haturs- fullum tilbúningi eftir mann, sem er aðeins að skrifa rusl fyrir pen- ing,“ sagði Phillippe Reines, tals- maður Hillary. Talsmaður Bills Clinton tók í svipaðan streng. Sagði að bókin væri rusl. Sagt er að Hillary íhugi að kæra höfundinn og haft er eftir öðrum samstarfsmanni hennar að ásakan- irnar sem koma fram í bókinni séu eins og eftir hægrimann á krakki. Á þriðjudaginn kom síðan fréttatil- kynning ffá skrifstofu HiUary þar sem fjölmiðlar og lesendur voru beðnir um að sniðganga bókina og aUa umfjöUun um hana. Virtur rithöfundur „Ég er ekki að halda þessu fram. Höfum það á hreinu. Bermúda-sag- an flakkaði með vegna þess að Hill- ary talar sjálf um ferðina í sinni bók og notar hana sem dæmi um hversu æðislegt hjónaband þeirra á að hafa verið," segir Klein. Hann segist hafa söguna eftir vini hjón- anna en mörgum þykja vinnu- brögðin sem hann viðhefur vægast sagt ffjálsleg. Hinsvegar verður það ekki tekið af Klein að hann er virtur fjölmiðla- maður. Hefur starfað á ýmsum stöðum á ritstjórnum stórblaða á borð við New York Times, Newsweek og Vanity Fair. Vegna þessa vita margir ekki hvernig á að taka bókinni. Sannleikurinn um Hillary Kom út i Bandarikjunum á þriðjudaginn. Sagt er að Hulary íhugi að kæra höf- undinn og haft er eftir öðrum sam- starfsmanni hennar að ásakanirnar sem koma fram í bókinniséu eins og eftir hægrimann á krakki. WW- Þrjár vikur í útgáfu sjöttu bókarinnar Potter-æðið að bresta á Nú þegar hafa borist tæplega ein og hálf miUjón pantana til bókaverslana Barnes & Nobles og Amazon.com vegna nýju bókarinnar um Harry Pott- er. Hún kemur út 13. júlí og heitir Hálfblóösprinsinn. Bókin hefur verið á met- sölulistum frá því að út- gáfudagur hennar var til- kynntur í desember. Búist er við því að hún eigi eftir að slá öU sölumet. Síðasta bók, Fönixreglan, J.K. Rowling Græðir á tá og fingri. seldist í fimm miUjónum eintaka á útgáfudegi í Bandaríkjunum. í nýju bókinni skrifar höfundur- inn J.K. RowUng um sjötta ár Harrys í Hogwart- galdraskólanum. Ovinur hans, Voldemort, efiist með hverjum deginum og titUpersóna bókarinnar, Hálfblóðsprinsinn er kynntur tU sögunnar. ís- lenska þýðingin kemur síðan út með haustinu. Pólverjar bregðast við gagnrýni Frakka Pólski píparinn svarar fyrirsig „Pólverjar voru búnir að fá nóg af því að vera kennt um. Þetta er góð leið tU að létta á spennunni," segir Elzibieta Janek hjá pólsku ferða- málaskrifstofunni í París. í kosningabaráttu sem leiddi til þess að Frakkar samþykktu ekki stjórnarskrá Evrópusambandsins á dögunum var „pólski píparinn" not- aður sem samnefnari fyrir ódýrt vinnuafl ffá Austur-Evrópu. Ódýrt vinnuafl frá nýjum aðUdarríkjum Evrópusambandsins gæti ógnað frönskum verkamönnum. Eftir þessa neikvæðu umfjöllun brugðu Pólverjar því á það ráð að snúa henni upp í grín og bjóða Frakka velkomna tU landsins. í kjöl- Pólski píparinn „Ég er í Póllandi. Komdu I heimsókn/ segir hinn íturvaxni pípari. farið hefur rignt yfir þá símtölum þar sem Frakkar fagna framtakinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.