Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Qupperneq 16
1 6 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ2005
Sport DV
Wenger hefur
áhugaá
Torres
Arsenal hefui áhuga á sófcnar-
manninum Femando Torres sem
leikur með Atletico Madrid.
Torres er einn besti \inur Jose
Reyes sem sífellt fmnur sig betur
og betur f herbúðum
Arsenal, Reyes hefur
V;> beðið Arsene Wenger
1Mb IU11 a& láta Torres
W ekH fara framhjá
(4 |*| 17\V sérefmögu-
’ 1 1 I # leifci verðtrr að
fcrœkjaí
’ harm. Þá
:V\\ I % hefur
I % ■ I • % heyrst af
1 | || » áhugafrá
•, Chelsea
en það
þarfefckiað
koma á óvart.
^ JoseMour-
' s inho, frsun-
f kvæmdarstjóri
/ , Chelsea, er víst
/ að fcanna
möguleikana
á því að fá
Torres fyrst
Ijóst er orðið að haim fær ekfci
Samuel F.to’o. Ef eitthvað er til í
þeim sögusögnum að Rettl Mad-
rid ætli sér að kaupa franska
sóknarmanninn Thierry Henry
fyrir háar fjárhæðir er ekki ólíldegt
að Arsenal komi með risatilboð í
Torres.
Kezman vtll
f á tæklf æri
Serbneski framherjinn Mateja
Kezman, sem er á mála hjá Chel-
sea. segist orðirm leiður á óviss-
unni um hvar hann muni leika á
næstu ieiktíð. .,Ég vona að mín
mál fari að slcýrast. Ég ætlast ti!
þess að mér sé gerð grein fyrir
hlutverki mfnu hjá félaginu, því
frá þeim fæ ég laun. Ég vonast til
að fá að spila, en Mourinho hefur
lokaorðiö um það." Kezman sagö-
ist vona að geta svnt sitt rétta
andlit á næsta tímabili, hvort sem
það yröi með Chelsea eða ein-
hverju öðru félagi. „Þegar ég lék
með PSV Eindhoven, þá skoraði
ég helling af mörktmi og sýndi úr
hverju ég er gerður. Ég þarí að fá
tækifæri til þess að svna hvað ég
get.“
Bellamy
afturtil
Newcastle
Craig Belianry á að mæta aftui
til æfinga með Newcastie þami 4
júlí. Bellamy var hjá Glasgow
Celúc á síðasta tímabiii en skosk;
liðiuu hefúr enn ekki tefcist að ná
samkomulagi við Newcastie um
endanleg fcaup á homun og þá
liefur ekkert annað lið sýnt virki-
leg;m álmga á að borga uppsett
verð fyrir hann. Litlar likur eru
allavega á þvi að harm leiki aftur
ijTir Newcastle þvi ekki hefur íár'
iö leynt aö samskipti hans við
framkvæmdarstjór-
aim Graeme i .
Soimess em
, , . . i- ■. ...
ekki ems og
best verður á
kosið. I>rátt fyr-
Beilamy að mæta #
ótrauður 4. júlf. // M
Ýmsir leikmenn if -
hafa verið orð- *•*!
aðir við
Newcastle að &
undanfömu og , L \ j
þar á meðal er lll & §
Mark Viduka, *■ J
sóknarmaður IS
Middlesbrough. tjf,
LANDSBANKADEILDIN
í gær var tilkynnt að Tryggvj Guðmundsson, leikmaður FH, hefði verið valinn
bestur í fyrstu sex umferðum Landsbankadeildarinnar af fjölmiðlum og öðrum. FH
og Valur sópuðu að sér flestum verðlaunum á athöfninni í gær.
Tryggvi Olt vanmetið
að vera sóknarmaður
Knattspyrnusambandið veitti
viðurkenningar fyrir fyrstu sex
umferðirnar í Landsbanka-
deild karla í Iðnó í gær. Tíu að-
ilar mynda nokkurs konar val-
nefnd og þarf ekki að koma á
óvart að flest verðlaun runnu
til FH og Vals, í úrvalsliði um-
ferðanna voru fjórir úr hvoru
þessara liða. Þá var Willum
Þór Þórsson, Val, kjörinn þjálf-
ari umferðanna og Tryggvi
Guðmundsson, leikmaður FH,
valinn besti leikmaðurinn.
„Þetta hefur farið betur af stað en
ég bjóst við og hefur verið virkilega
gaman. Það eru mörg dæmi um að
menn hafa komið heim úr atvinnu-
mennskunni og bara skitið upp á
bak, ég var alveg staðráðinn í að
koma ekki heim í eitthvert sumarfrí
bara heldur til að sýna hvað ég get
og það hefur tekist hingað til, von-
VIÐURKENNINGAR
Besti leikmaðurinn: Tryggvi Guðm.
Besti þjálfarinn: Willum Þór Þórsson
Besti dómarinn: Kristinn Jakobsson
Uö umferða 1 til 6:
Bjarni Þórður Halldórsson Fylkir
Guðmundur Sævarsson FH
Auðun Helgason FH
Atli Sveinn Þórarinsson Valur
Bjarni Ólafur Eiríksson Valur
Matthias Guðmundsson Valur
Helgi Valur Danfelsson Fylkir
Guðmundur Benediktsson Valur
Jón Þorgrímur Stefánsson FH
Tryggvi Guðmundsson FH |
Guðmundur Stelnarsson Keflavík
andi heldur það þannig áfram.
Þetta er virkilegur heiður. Það
vill oft vera þannig með okkur sókn-
armennina að ef við skorum ekki,
þá erum við dæmdir lélegir en ef við
skorum, þá erum við bara að vinna
okkar vinnu. Oft á tíðum er það van-
metið að vera sóknarmaður en fjöl-
miðlar eru greini-
lega sáttir við það
sem ég er að gera
og ég kann að
meta það,“ sagði
Tryggvi Guð-
mundsson.
Lítur vel út á hillunni
Bjami Ólafur Eiríksson hefur
vakið mikla athygli fyrir framgöngu
sína með Val það sem af er og vann
sér inn sæti í landsliðshópnum fyrir
skömmu, hann var einn þeirra Vals-
manna sem valinn var í úrvalsliðið:
„Það hefur ekki gengið nægilega
vel undanfarin ár og við verið í
ströggli en nú gengur aUt rosalega
vel og það er gaman að fá að taka
þátt í því. Þessi viðurkenning gefur
mér til kynna að ég sé að gera hlut-
ina rétt og þá heldur maður bara
áfram á sömu braút." sagði Bjarni
Ólafur.
Tveir Fylkismenn voru valdir í
úrvalsliðið, Helgi Valur Daníelsson
og Bjarni Þórður Halldórsson. „Það
er fínt að fá viðurkenningu og það
lítur vel út á hillunni," sagði Bjarni
Þórður sem varið hefur mark Fylkis
frábærlega. „Við emm of óstöðugir
og þurfum bara að klóra okkur í
hausnum og finna út hvað er að. Við
höfum sýnt að við getum alveg tek-
ið þátt í toppbaráttunni en þess á
miUi fer leilcur olckar út í algjöra
steypu eins og í síðasta leik gegn
Fram."
Fleiri áhorfendur
Tryggvi Guðmundsson fer fögr
um orðum um umgjörðina í
kringum íslenska fótboltann
núna og segir hana vera aUt
aðra en hún var þegar
hann fór út.
„Þetta er eins og svart
og hvítt.
Það er algjör sniUd
hvernig þetta er
orðið. Það em
komnir fleiri fjöl-
miðlar í þetta
sem auglýsa
deUdina mjög
vel og allt
batteríið er
orðið stærra,"
sagði Tryggvi.
Geir Þorsteins-
son, framkvæmdar-
stjóri KSÍ, er ánægður
með byrjunina á mótinu.
Knattspyrnan hefur verið
lífleg og meðaltal áhorf-
enda leikja í ár er meiri en
á sama tíma í fyrra.
„Þessi aukning er mjög já-
kvæð fyrir okkur. Við höfúm
það markmið að ná 100.000
áhorfendum á þessa 90 leiki og
ef við höldum áfram á þessari
braut náum við því. Nú fer hins
vegar í hönd mesti sumarleyfis-
tíminn og þá hefur aðsóknin
aUtaf minnkað. Það er verk að
vinna fyrir okkur og félögin að halda
dampinum þessa mánuði sem eru
framundan. Þjónusta við áhorfend-
ur skiptir okkur mUdu máli og á
næstu árum á hún eftir að verða
enn betri,“ sagði Geir Þor-
steinsson.
elvar@dv.is
Tryggvi
Hefur fariö á
kostum í
sumar.
FH-ingurinn Jón Þorgrímur Stefánsson er ánægður með Qöbniðla
Ekkert að
Vængmaðurinn Jón Þorgrímur
Stefánsson hefur verið sterkur
hlekkur í liði FH og var einn þeirra
leikmanna sem valinn var í úr-
valslið umferða 1-6. fón er í miklu
uppáhaldi hjá stuðningsmönnum
FH, Hafnarfjarðarmaffunni, ekM
bara vegna góðrar frammistöðu
heldur einnig þar sem hann hefur
gefið sig út fyrir að vera nokkurs
konar aðdáandi sjálfra stuðnings-
mannanna.
„FH-liðið er að spila þetta vel og
sérstaklega fannst mér þetta
smella saman í síðasta leik, leikur-
inn gegn Val var okkar besti hingað
til og það er komið gott skrið á FH-
liðið," sagði Jón Þorgrímur eftir
verðlaunaafhendinguna í Iðnó í
gær.
því að láta okkur heyra það
„Það er alltaf heiður að hljóta
viðurkenningu af einhverju tagi og
gefur mér aukið sjálfstraust. Ann-
ars tel ég að það hefði verið hægt
að velja nánast hvaða leikmann
sem er úr FH-liðinu, held að það
hafi ekki neinn spilað eitthvað
mikið betur en aðrir. Þetta er
meira sigur liðsheildarinnar svo
maður komi með enn einn frasann
í þessu," sagði Jón en hann var
einn af fjórum leikmönnum
toppliðs FH sem valinn var í
margumtalað úrvalslið.
Jón getur ekki verið ann-
að en sáttur við byrjun
ina í deildinni
enda gengur hon-
um og hans liði
allt í haginn. Þá
segir hann að það sé skemmtilegra
að spila í íslensku
deildinni en oftast
áður.
„Umgjörðin
hefur stórbatn-
að eftir að
Lands-
bank-
inn
tók
við
þessu og hann á alveg heiður skil-
inn. Þá ber að hrósa fjölmiðlum,
það er orðin miklu meiri og betri
umfjöllun um deildina. Þá eru fjöl-
miðlar oft á tíðum skemmtilega
gagnrýnir og það finnst mér bara
mjög skemmtilegt, það er ekkert
að því að láta okkur leikmenn
heyra það ef við stöndum okkur
ekki,“ sagði Jón Þorgrímur.
Jón Þorgrfmur
Stefánsson Hinn
skemmtiiegi kantmaöur
FH-inga segist vera ánægður
meö alla þá gagnrýni sem
hann fær.