Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Side 26
Lífíðjyv
v
1
Ragnhildur verslunareigandi, Dagbjört hönnunarnemi, María
skrifstofustjóri og Dísa auglýsingasölukona kynntust í gegnum
verslunina Noa Noa en þær hafa allar unnið þar á einum eða
öðrum tímapunkti. Þær eru á misjöfnum aldri og umgangast
ekki hver aðra alla jafna en það er eitt sem tengir þær órjúfan-
legum böndum; verslunarferðir! Blaðamaður DV fór á stúfana
til að fræðast meira um verslunarhegðun þessari kvenna.
2. Hvað gefurðu
henni/honum oft blóm?
a. Vikulega.
b. Mánaðarlega.
c. Einu sinni á ári.
3. Hvar vilfu aðhann/hún
biðji þín?
a. Yfir eðalvíni á Grillinu.
b. Á Vitabar.
c. Fyrir framan Bæjarins bestu.
4. Hvað fyndist þér góð
valentinusargjöf?
a. Skartgripir og
kvöldverður á fín-
um stað.
b. Konfekt og
kort.
c. Kort.
5. Hvað er það róman-
tiskasta sem þið gerið
saman?
a. Syndið nakin í
tunglsljósi.
b. Farið í bíó.
c. Horfið á sjón-
varpið.
Stelpumar eru svo sætar að bjóða
mér á ferðafund með mat og tilheyr-
andi. Ég hringi bjöllunni heima hjá
Dagbjörtu og hún kemur niður til að
opna fyrir mér. Hinar eru ailar mætt-
ar og ég hef smá áhyggjur af því að
þetta gæti orðið vandræðalegt.
Það er nú öðru nær og eftir stutta
viðkynningu dembum við okkur í
spjall en stefnan er fljótt tekin á ferð-
imar.
Þessar árlegu ferðir em hugsaðar
sem verslunarferðir fyrir jólin svo það
er ærið verkefni að skrifa lista og
muna eftir gjöfum handa öllum.
Passa vel saman
„Við eigum bara svo vel saman
sem ferðafélagar," segir Ragnhildur
aðspurð hvers vegna þær halda hóp-
inn. Hinar taka undir og segjast
skemmta sér rosalega vel saman og
gætu ekki hugsað sér betri ferðafé-
laga.
„Þetta árið verður stefnan tekin á
Orlando," segir Dísa en María er ný-
búin að kaupa hús þar svo þær þurfa
ekki að borga fyrir gistingu og sam-
kvæmt Maríu þýðir það bara eitt;
„meiri peningar til að kaupa gjafir fyr-
ir".
Síðustu þrjú árin hefur verið farið
til Dublin en eins og stelpumar orða
það þá var orðið ekkert eftir til að
kaupa þar, því þær em svo duglegar
að versla og því fannst þeim kjörið að
velja annan stað fyrir næstu ferð.
Reglulegt klúbbastarf
Það er meira fyrirtæki en maður
heldur að vera í ferðaklúbbi og stelp-
umar hittast reglulega út ailt árið.
Ferðafundir em haldnir um það bil
fjómm sinnum yfir árið og þá hittast
þær alltaf með pakka og matur er á
boðstólum. Þær em greinilega mjög
skipulagðar því þær em varla stignar
útúr vélinni á Keflavíkurflugvelli þeg-
ar búið er að panta aðra ferð.
Síðast vom þær búnar að panta
fyrir Dísu án þess að hún vissi og var
svo bara boðuð á ferðafund, segja
stelpumar hlæjandi.
Ragnhildur Jónsdóttir, Dagbjört
Jónsdóttir, María Richter og Her-
dfs K. Hervinsdóttir A góðri
stundu heima hjá Dagbjörtu.
1. H vað finnst þér vera rómantískt
kvöid?
a. Kvöldverður á matsölu-
stað, síðan út að dansa.
b. Að fara saman á krá.
c. Að fara saman á
landsleik.
Taktu pxó
Sokkar Dísa keypti sér helling afsokk
uw I einni ferðinni en mundi svo að
húngengur ekki í sokkum.
Ferðamistök ^
Það em ófá ferðamis- v ; ;
tökin sem orðið hafa hjá
stelpunum og ég fæ þær til aðl fy
segja mér frá þeim ffægustu.
María tapaði sér í jólakort-
unum eitt árið og gerðist sek
um að kaupa 100 stykki í einni
ferð og Ragnhildur er jólapappírs
sjúk. Stelpurnar em samt fljótar að
benda á að Dísa eigi eflaust metið því
í eitt skiptið keypti hún heilan haug af
sokkum á góðu verði en þegar versl-
unarvíman rann af henni áttaði hún
sig á því að hún gengur ekki í sokkum.
„Ragnhildur er samt með
skemmtilegan varíant," segir Dísa.
„Hún kaupir oftast ekkert fyrstu dag-
ana og hugsar sig mikið um en mætir
svo síðasta daginn með svo stóran
kirkjukertastjaka undir hendinni, að
hann þarf helst sitt eigið sæti í vél-
inni."
Hefðir
í hverri ferð er haldið náttfatapartí
á öðm hvoru herberginu og þar veður
allt í sælgæti og mat. „Það dettur ailtaf
ein í átið í hverri ferð," segir Dagbjört
og viðurkennir að það sá vafasami
heiður hafi fallið henni í skaut í
síðustu ferð.
„Brunch" er
önnur hefð og er
hann líka haldinn
inni á herbergi og þá er haft mik-
ið fyrir að velja þema og allar
skreytingar og matur verða
að vera í stíl við það.
Þær skiptast Kka á pökk-
um en þeir mega ekki vera
dýrir svo það skapast ákveðin keppni
um að gefa flottasta pakkann fýrir
minnsta peninginn.
Þar sem stelpumar em f fullri
vinnu við að versla hafa þær stundum
ekki orku til að fara út á h'fið og segjast
þær þá stundum sofha með mufiins í
munnvikunum og tískublað undir
kinn.
Þær em allar sjúkar í bananakokk-
tefi og eiga það til að sniglast inn á
flott hótel erlendis til að komast í tæri
við mjöðinn góða og vona að hægt
verði að hafa upp á honum í Orlando.
„En ef ekki þá finnum við ömgglega
einhvem nýjan drykk," segir Dísa að
lokum og um leið kallar Dagbjört á
okkur að koma að borða.
ragga@dv.is
Erturóman
r