Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Side 16
76 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 Sport DV Fimmta árið í röð eru Safamýrarpiltar í fallsæti þegar átta umferðir eru eftir af úrvalsdeild karla. Fram tapaði sínum fjórða leik í röð í Landsbankadeildinni á sunnudagskvöldið og hefur aðeins fengið tvö stig í síðustu sjö leikjum. Sama Fr ofl vanalega Þegar Ólafur H. Kristjánsson tók við Fram fyrir ári var staðan ekki góð í Safamýri. Ráðning Rúmenans Ions Geolgau hafði litlu breytt fyrir Framliðið sem líkt og árin á undan var komið djúpt á kaf í harða fallbaráttu Landsbankadeildarinnar. Ólafi tókst hinsvegar að rífa Framliðið upp á ný og það bjargaði sér frá falli í lokaum- ferðinni sjötta árið í röð. Undir stjóm Ólafs komu Framarar inn í þetta sumar fullir bjartsýni og náðu sex stigum úr fyrstu þremur leikjunum en það virðist þó vera erfitt að kenna gömlum hundi að sitja. Eftir íjögur töp í röð er liðið á kunnuglegum slóðum á ný og þarf því enn á góðum endaspretti að halda til þess að vera áfram í hópi bestu liða landsins. Markaskorun Framara hefur verið af skornum skammti í undanfömum leikjum. Liðið skoraði sex mörk í fyrstu tveimur heimaleikjunum þar sem Andri Fannar Ottósson skoraði þijú mörk og var funheitur í framlínu liðsins. Síðan þá hefur sóknarmönn- um liðsins verið nánast fyrirmunað að skora mörk og liðið hefur aðeins skorað fjögur mörk úr 61 skoti í síð- ustu sjö leikjum sínum í Lands- bankadeildinni. Þetta gerir aðeins 6,6% skomýtingu og 157,5 mínútur á miili skoraðra marka og það bendir margt til þess að stærsta vandamál Framliðsins liggi í sóknarleiknum enda er eitt af þessum íjórum mörk- um sjálfsmark andstæðinganna. Ríkharður Daðason hefur aðeins skorað tvö mörk í allt sumar og meiðsli Andra Fannars em líka áfall þótt hann hafi ekki verið búinn að skora í 415 mínútur þegar hann meiddist á ökkla gegn Keflavík á dög- unum. Aðrir leikmenn en þeir Ríkharður og Andri Fannar hafa ekki skorað fleiri en tvö mörk í Lands- bankadeildinni Slæmt gengi Safamýrarliðsins hefur kannski læðst aftan að hinum almenna knattspymuáhugamanni sem hefur kannski verið upptekinn framan af sumri af einstakri sigur- göngu FH-liðsins, endurkomu Vals- manna i hóp bestu liða eða skelfilegu gengi KR-liðsins. Voru í 4. sæti í júní Framliðið var í 4. sæti Lands- bankadeildarinnar eftir markalaust Gengur illa að skora R Ikharður Daðason, fyrirliði Framara, hefur aðeins skorað 2 mörk 110 deildarleikjum liösins I sumar. DV-myndHeiða m jafntefli við Skagamenn 11. júní. Það mátti sjá á viðbrögðum stuðnings- manna félagsins við fréttum af gangi mála í leik FH-inga á sama tíma að hugurinn í Safamýri var kominn í toppbaráttuna, þangað sem Framlið- ið ætíaði sér að vera í fyrsta sinn i miklu meira en áratug. Málin þróuð- ust þó ekki eins og óþolinmóðir stuðningsmenn liðsins vonuðust til og eftir sjö leiki í röð án sigurs og fjóra tapleiki í röð hefur Framliðið hrunið niður töfluna og er nú komið í fall- sæti um mitt mót fimmta árið í röð. Framundan er því óvenjulegur fallbaráttuslagur milli Reykjavflcur- veldanna Fram og KR á Laugardals- vellinum á sunnudaginn kemur. Lið- in fengu aðeins sex stig samanlagt úr 4. til 9. umferð og hafa bæði sigið niður töfluna eftir góða byijun. Biðlar tii stuðningsmanna Ólafur H. Kristjánsson hefur biðl- að til Framara um meiri stuðning og það er full þörf á að Framarar fái fleira fólk í stúkuna í Laugardalnum enda er ströng fallbarátta framundan þar sem hróður og ffamtíð félagsins er enn að veði. ooj@dv.is Int er vill Figo Framtíð Luis Figo er ennþá óljós, en Real Madrid og Liver- pool hafa ekki enn komist að samkomulagi um hvort Liverpool þurfi að borga fyrir leikmanninn. Inter Milan hefur einnig sýnt Figo áhuga og mun gera honum samn- ingstil- ./ ’•. Moratti, forseti Inter Milan, er ■/ þess að borga tvær milijónii pundafyrir / S&' Figooggetur w alveg sætt sig WL- við þær kröfur sem for- w “ ■ ráðamenn Real Madrid hafa sett fram. Figo hefúr hins vegar þegar samþykkt samnings- tilboð Liverpool og segir það draum sinn að leika með félaginu á næstu leiktíð. Baráttunni um Figo er því ekki lokið, þó lfldegast þyki að hann fari í Liverpool. Celtic á eftir Japana Japanski landsliðsmaðurinn Shunsuke Nakamura er sterklega orðaður við Celtic þessa dagana, en Nakainura hefur spilað vel fyrir lið sitt Reggina á Ítalíu. Spænsku félögin Atíetico Madrid og Deportivo La Conma hafe einnig fylgst grannt með honum undanfama mánuði. Peter Lawwell, stjórnarformaður Celtic vonast tii þess að geta gengið frá kaupunum sem aUra fyrst. „Naka- mura er frábær leikmaður sem myndi nýtast liði okkar vel. Það er vonandi hægt að ganga frá félags- skiptunum sem allra f>Tst.“ Naka- mura sjálfur segist þó vonast tii þess að geta spilað á Spáni sem aUra fyrst. „Það yrði virkilega skemmtUegt að fara tfl Spánar að spUa, og vonandi geri ég það ein- hvern tíma á ferli mínum.“ Grikkir ætla sér EM 2012 Evrópumeistarar Grikkja leggja nú ofurkapp á að fá að haida Evr- ópumótið í knattsp\Tnu árið 2012 en lokafresturinn tU að sækja um mótið er nú að renna út. Grikkir ætla að eyða um 115 miUjónum evra, eða um 9 miUjörðum ís- lenskra kióna, í sex af átta leik- vöUum sem hýsa munu mótið en margir þeirra voru notaðir á Ólympíuleikunum í fyrra. Aðeins tveir leUcveUir eru þegar tUbúnir, Ólympíuleikvangurinn og Karaiskaki-vöUurinn í Piraeus í nágrenni höfuðborgarinnar. UEFA mun skoða öU tilboðin sem koma inn og tilkynnir svo í nóvember hvaða þrjú lramboð munu fá eitt ár tU að vinna sér nægilegt fy'lgi tU að halda Evrópu- mótið 2012. Azerbaidjan, Ítalía, Rúmenía, Rússland og Tyrkland ætla öU að bjóða sig i fram auk þess sem ji Króatía/Ungverja- 7 L*\ land og Pól- O ' J land/Ukraína /’,. ætla að fá að A halda mótið i I saman.Næsta 'Öky-s Evrópumót Má , ^ , %\ fereinmitt Mm M í 1 framí |f »-1 Svissog " Í X Austurríki , ,fjá§ ^ F 2008. Wil ll

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.