Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Side 32
32 ÞRIÐJUDACUR 12. JÚU2005 Menning DV Patti Smith Mikils metin I Frakklandi Patti fær kross Patti Smith tók um helgina á móti heiðursviðurkenningu franska ríkisins fyrir framlag sitt til tónlistar nútímans. Það var menningarráðherra Frakka, Renaud Donnedieu de Vabres, sem afhenti Smith viðurkenning- una í París á hljómleikum til styrktar alnæmisrannsóknum á sunnudagskvöld. Ráðherra kvað Smith vera einn áhrifamesta lista- mann samtíðar okkar úr hópi kvenna. Smith fagnaði viður- kenningunni og sagði hana styrkja sig og að hún myndi leggja harðar að sér í framtíðinni. Smith hefúr verið á tónleika- ferðlagi um Evrópu. Hún er fimmtíu og átta ára gömul og hef- ur síðustu árin hresst upp á feril sinn með tónleikahaldi, nýjum diskum og nýju efni. Hún hefur nú í undirbúningi safn cover-laga eftir höfunda á borð við Dylan og Piaf auk laga úr safni Grateful Dead. Smith er væntanleg hingað til lands í byrjun september og mun þá halda eina tónleika í Sjálfstæð- ishúsinu við Austurvöll á vegum Event. Er miðasla þegar hafin á hljómleikana. Bók um hryðju- verk stöðvuð í kynningu Eftir atburði síðustu viku ákvað bókaútgáfan Chatto og Windus að draga bók af markaði sem tjallar um hermdarverk í London. Sagan er eftir Cris Cleave og er bréf til Osama bin Laden frá konu sem misst hefur eiginmann og son í sjálfs- morðsárás á Arsenal-leikvanginn í London. Bókin kom út í síðustu viku og voru meðal annars auglýsinga- spjöld um hana uppi í neðanjarð- arlestarkerfinu í London. Þau voru tekin niður en enn má sjá þau víða á lestarstöðvum segir í frétt frá BBC. Reynt var að stöðva kynningar á bókinni í dagblöðum um helg- ina. Leiksýning sem fjallar um við- brögð við hermdarverkum og er í gangi á Royal Court hefur ekki verið stöðvuð. Fjórar íslenskar myndir á Nordisk Panorama Metaðsókn var að Nordisk Panorama-hátíðinni sem verður í Bergen í september. Alls sóttu framleiðendur 360 verkefna um að vera með í samkeppni hátíðarinnar sem er í tveimur deildum; heim- ildamyndum og stuttmyndum. Há- tíðin var sem kunnugt er haldin hér í fyrra og sló aðsókn hér öll met fyrri hátíða. Forvalsnefndir tilkyrmtu um helgina hvaða stuttmyndir og heimildamyndir ganga til keppninnar og eru ijórar íslenskar myndir með. Síðasti bærinn, Slavek the Shit og Töframaðurinn munu keppa við 37 aðrar stuttmyndir. Af- rica United er í heimildamynda- flokknum og verður gaman að sjá hvemig henni reiðir af í keppni við 19 myndir frá hinum norðurlönd- unum. Um 200 myndir hafa verið skráðar á markaðinn sem rekinn er í tengslum við hátíðina. Hún stend- ur í fjóra daga og er búist við góðri þátttöku víða að úr Evrópu. Þetta er í sextánda sinn sem hátíðin er hald- in og þar koma fram bæði stutt- myndir og heimildamyndir sem eru að hefja feril sinn um söluhátíðir hausts og vetrar. Ólafur Jóhannesson kvikmynda- gerðarmaður Keppir viö nokkra helstu kvikmyndageröarmenn Norðurlanda á Nordisk Panorama I september í Bergen Annað kennimark í Norðurmýri er í hættu. Nýlega gengu Reykjavíkurborg og rík- ið frá samningi sín á milli um sölu á Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg, stóru og sérstöku húsi, sem hefur ekki verið nýtt til fulls um árabil. „Heilsuvemdarstöðin við Bar- ónsstíg var sérhönnuð sem heilsu- gæsluhús og mér finnst dapurlegt að hún skuli ekki nýtt sem slfkt,“ segir Pétur Armannsson, deildarstjóri hjá Listasafni Reykjavíkur. „Húsið er að- gengilegt bæði fyrir akandi umferð og gangandi vegfarendur. Það er mjög vel hugsað sem heilsugæslu- hús og nú á að selja það. Mér finnst umhugsunarvert hvað öllum stend- ur á sama um húsið." Pétur er ekki sáttur við hinn nýja samning og fyr- irætlanir stjórnvalda að setja húsið á markað. Heilsuvemdarstöðin var reist af Reykjavíkurborg á ámnum 1949 til 1955 og þótti mikið skart fyrir borg- ina á sínum tíma. Húsið var tekið í notkun f mars 1957 en hlutar þess höfðu verið nýttir fyrir þann tíma. Það var ein þeirra bygginga sem Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík taldi djásn í krúnu sinni frá langri stjómartfð í Reykjavík. Það vom arkitektamir Einar Sveinsson og Gunnar H. Ólafsson sem hönnuðu húsið og hefur það jafnan verið talið með glæsilegri húsum borgarinnar. Þegar Borgar- spítalinn tók til starfa fjaraði undan starfsemi í húsinu og loks var það orðið leiguhúsnæði sem ríkið hafði umsjá með. Samningur borgar og ríkis, sem undirritaður var þann 30. júní, var endapunktur á langri deilu milli ráðuneyta og ráðhúss um hús- ið, en rfkið hefur samkvæmt heim- ildum ekki greitt leigu fyrir notkun þess um árabil. Pétur bendir á að á sama tíma og borgaryfirvöld stefna að þéttingu byggðar á svæðinu með Sæbraut- inni og vestur á Slippsvæði, íVestur- bæ og Þingholtum, skjóti það skökku við að Heilsuvemdarstöðin skuli ekki notuð til þess sem henni var ætlað í upphafi: Heilsugæslu fyrir borgarbúa í elsta hluta borgar- innar. Friðunarsamtök hafa látið óvissa framtíð hússins afskiptalausa og í borgarstjórn hefúr hjáróma rödd Ólafs Magnússonar ein mótmælt söluhugmyndum um húsið. Heilsu- gæsla á svæðinu norðan Hring- brautar að Snorrabraut er nú þjónað frá Vesturgötu 7 en Hlíðahvefinu úr Drápuhlfð. Stjómsýsla fyrir Heilsu- gæsluna er staðsett í Heilsuvemdar- stöðinni auk nokkurra deilda sem þjóna landinu öllu; lungna- og berklavarnadeild, miðstöðv- um tannvemdar, mæðraskoðunar og heilsuverndar barna. Munaðarleysingjasaga kemur á íjalirnar í Austurbæ á sunnudag Annie og ævintýri hennar Það er barnungt fyrirtæki sem verður fyrst til að koma söngleik á sviðið í Austurbæjarbíói nú þegar framtíð hússins er ráðin. Félagið heitir Andagift og hefur kallað til sín hóp fæmstu manna til að setja söngleikinn á svið en forsýningar hefjast nú í vikunni og verður frumsýning á sunnudag. Sagan af munaðarleysingjanum Annie er sprottin upp úr krepp- unni. Harold Gray teiknaði um ára- tugaskeið strípu fyrir dagblöð vest- anhafs sem sögðu frá rauðhærðri stelpu sem lætur aldrei bilbug á sér finna. Myndasagan var afar vinsæl þegar í upphafi, ekki síst fyrir að hún lýsti þolgæði og bjartsýni ungrar söguhetju þegar bölmóður ríkti vestanhafs. Söngleikurinn var gerður eftir sögunni 1977 og hefur verið settur upp víða um heim utan Bandaríkj- anna, t.d. í Noregi, Svíþjóð og London. Sagan er skemmtileg spennusaga með hamingjuríkum lyktum og tónlistin í anda krepp- unnar með léttu djassívafi. Sagan gerist í New York-borg, á kreppuárunum, í kringum 1930. Annie er 11 ára stúlka, ákveðin og hugrökk. Hún býr á munaðarleys- ingjahæli en foreldrar hennar skildu hana eftir á tröppum hælis- ins með brotið silfumisti um háls- inn sem ungabarn. Munaðarleysingjaheimilið rek- ur drykkfelld kona harðri hendi. Annie er samt bjartsýn og hana dreymir um betra líf. Hún tekur að sér flækingshund og lendir í mörg- um ævintýmm. Söngleikurinn var kvikmyndað- ur 1982 með breska leikaranum Al- bert Finney, Carol Bumett, Bema- dette Peters, Tim Curry og fleiri nafntoguðum listamönnum undir leikstjórn Johns Huston. Fyrirtækið Andagift ehf. setur sýninguna á svið en leikstjóri er Viðar Eggertsson. fslensk þýðing á lausu og bundnu máli er í höndum Gísla Rúnars Jónssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.