Símablaðið - 01.01.1924, Blaðsíða 6
2
SÍMABLAÐIÐ
hún í slíkum tilfellum, gæti að mestu
annast skeytaafgreiðsluna við útlönd.
Að skilyrðið fyrir því, að bj'gðar yrðu
stöðvar á heppilegum stöðum úti um
Loftskeytastöðin í Iteykjavik.
land, væri að fyrst yrði bygð loftskeyta-
miðstöð fyrir alt landið.
Loftskeytastöðin í lteykjavík.
Stjórnarráðið samþykti að leitast yrði
fyrir um lilboð í byggingu Ioftskeytastöðv-
arinnar i Reykjavík, og alt var gert til að
flýla málinu, en stríðið tafði það á marg-
an hátt. í júlímánuði 1916 var þó gerður
samningur við Marconi félagið um bygg-
ingu 5 Kílowalla neistaslöðvar af nýjuslu
gerð, og var þá um leið byrjað á bygg-
ingu stöðvarhússins á Melunum. Bæjar-
stjórn Iét af hendi, með góðum skilmál-
um, 250x80 metra Ióð undir slöðina.
Næsta sumar var húsið komið upp
og möstrin reist. 3. ágúst 1917 kom
verkfræðingurinn Leary frá Marconi
félaginu, en þá var öllum frágangi
mastranna lokið. Snemma á árinu
1918 var stöðin fullgerð og hún afhent
landssimanum 8. maí sama ár, og
rúmum mánuði síðar, 17. júní, var
stöðið opnuð til almenningsnota. Hér
fer á eftir lausleg lýsing af henni:
Möstrin eru 2, úr stáli, 253 ensk fet
á hæð og vegalengðin milli þeirra er
200 metrar. Loftnetin eru tvö, annað
úr fjórum þráðum, hitt, frá syðra
mastrinu, skáhalt að stöðvarhúsinu,
— sem er mitt á milli mastranna —
úr 2 þráðum. Jarðsamband stöðvar-
innar er tveir hálfhringir úr 60 járn-
plötum og auk þess fjöldi járnþráða,
sem grafnir eru í jörðu milli mastr-
anna.
Árið 1918 voru sendi- og móttöku-
tæki stöðvarinnar eins og hér segir:
Aðal aflvaki slöðvarinnar var 15 ha
3, sylindra olíu og benzínmótor með
rafkveikju, áfastur við 7,5 kw. 11H/iso
rakstraums rafall, sem hleður 270
amperstunda rafgeymi. Frá rafgeyminum
er rekinn rafhreyfill, sem er áfastur við 5
kw. 5°/5oo volta riðstraumrafal. Frá þess-
um rafal eru svo senditækin rekin. Pau
eru: spennir 500/7500/15000 volta, sem
síðar hlaða þéttir, og þaðan er hring-
rásin yíir neistabrautina og loftnets-
spennirinn. Neistabrautin er svo-kölluð
hverfineistabraut, og »gefur báan tón«,
ef svo mætti að orði kveða.
Inni í móttökuherberginu er svo
morselykillinn, sem yfir raíliða rýfur