Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.01.1924, Blaðsíða 16

Símablaðið - 01.01.1924, Blaðsíða 16
12 SÍMABLAÐIÐ íbúaljöldi í íbúafjöldi á Fjöldi talsíraa þúsundura hvern lalsím i Cuba ............................... 42,000 3,000 71 Vestur-Indíur....................... 12,500 — — Mið-Ameríka......................... 17,000 — — Samtals: 15,559,000 14,6000 94 Bandaríkin hafa lang flesta talsíma, eða 1 síma á hverja 7,4 íbúa. New- York borg ein heíir nú liðlega eina miljón síma, og í Suður-Ameríku eru alls 325,500 símar, en í Ástralíu, með eyjum, 389,000 Molar. íslenzkir símamenn eiga oft við mikla erfiðleika að slríða við símaviðgerðir, sérstaklega á vetrum, því víða er langt á milli stöðva, og í vondum veðrum og vetrarhörkum er það kalt verk og erfitt að gera við símabilanir. En símamenn okkar eiga aðallega að stríða við veðráttuna, og er því ekki úr vegi að bera saman störf þeirra og símamanna í heitu löndunum, t. d. í Abysiníu í Afríku, og erfiðleika þá, sem þar eru við að hata símann i lagi. þar eta skorkvikindin staurana og í- búarnir stela ofl krókunum og nota þá í ýms áhöld. Aparnir róla sér á þráð- unum og fílarnir klóra sér upp við slaurana og fella þá oft. Langvarandi rigningar grafa undan staurunum og frumskógurinn vex svo ört, að stöðugt þarf að hafa menn til að fella ungu trén, sem vaxa undir þráðunum. Alslaðar er eitthvað að. Páfinn hefir látið byggja loflskeyla- slöð í Valikaninu, í þeim tilgangi að víð- varpa blessun sinni til ótal áheyrenda. t Bandaríkjunum eru að eins 6% af ibúum jarðarinnar, en þar er þó fram- leitt 24°/o af allri hveiti framleiðslu heimsins, 67% af bómullarframleiðsl- unni og 68% aföllum talsímum heimsins. * * * Bandaríkin eiga met á mörgum svið- um og hafa síðasta ár bætt við sig einu enn, því þar mun hafa verið meiri kjaftagangur en í nokkru öðru landi í heiminum, í það minnsta ef dæma má eftir símtalafjöldanum þar. Opinberar skýrslur frá Washington áætla, að fram hafi farið í Bandaríkjunum árið 1923, 24 biljón símtala. Þetta er ekkert smá- ræði. Lo/tskeytastöðuar á Grœnlamii. Að því er »BerIingske Tidende« segja, helir nú verið gerður samningur milli Græn- landsstjórnarinnar og »Dansk Radio A/S« um byggingu fjögra loftskeytastöðva á Grænlandi. Efni til stöðvarinnar er danskt og vinna eingöngu danskir menn að smíði þeirra. Aðalstöðin verður í Julianehaab. — Verður þar 5 kílovalts ljósbogasenditæki af Poulsens-gerð, lil þess að annast sambandið við Reykja- vík og Thorshavn. Stöðvarnar í Godt-

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.