Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 12

Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 12
6 FREY'R vatna og Svartár, og uppbygging þess hefir síðan orðið fullkomin með gróðrarteppinu, sem vefur landið á hverju sumri. Hér stendur maður enn á Arnarstapa og hefir fyrir fótum sér auðlindir náttúrunn- ar, í hjarta héraðsins. í Reykjarhólnum er jarðhitinn, sem veita mun þægindi og hlunnindi miklu fleirum en þeim, sem nú nytja hann og búa við veginn hérna í Varmahlíð. Hér verða fleiri hús hituð og hér verður meira ræktað við jarðhita, og hér mun iðja verða rekin síðar. En að baki er hiö bezta haglendi fyrir búsmala. Og á flatlendinu milli Húseyjarkvíslar og Hér- aðsvatna og allt til sjávar meðfram Vötn- únum á báða vegu, eru lönd þau, er líka verða ræktuð og máske fyrr en það, sem fyrr var greint. Hér er Hólmurinn víðlend- astur. Ég veit ekki hve stór hann er. Kort herforingjaráðsins sýnir hann um 10 km að lengd frá Vindheimabrekkum út að Affalli, og víða um 3 km á breidd. Ég gizka á að hann sé um 25 ferkílómetrar að flatarmáli, — eða um 2500 hektarar að stærð. .Allt gróið land — hvergi flag, en byggt upp eins og aðrir óshólmar. Allt þetta land bvður hin beztu skilyrði til ræktunar annaðhvort með vatni — með vatni og áburði — eða með áburði einum. Mest af svæði þessu yrði lík- lega áveituland, en nokkur hluti tún, sá hlutinn, sem nú er heilgrösum vaxinn. Víða mun þurfa að þurrka, en hve víða? Það munu áveitufræðingarnir geta ákveðið. Það má auðsætt vera, þegar land þetta er borið saman við ýmiss önnur, sem fjármun- ir og fyrirhöfn hefir verið lagt í til að rækta, að hér er jafn gott eða betra til fram- kvæmda en á mörgum öðrum stöðum. En hitt er líka víst, að aldrei verður af viti eða að gagni að þessu unnið nema með félags- legu framtaki. Svo auðsætt má það vera, að ósennilegt er að nokkur einstaklingur, sem Séð 'úr Vallhólmi til Varmahliðar og Vatnsskarðs. — Ljósm.: G. K.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.