Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 15

Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 15
FRE YR 9 FRA MJGLKXJREFTIRLITI RIKISINS: Leiðbeiningar um meðferð mjólkur VORUVONDUN er það atriði, er mestu varðar í allri framleiðslu. Það hefir þrá- sinnis komið í ljós — bæði hér og erlendis — að hvenær sem vörugæðin hafa aukizt hefir salan og aukizt stórum. Þetta á ekki síður við um mjólk og mjólk- urafurðir. Svo að unnt sé að framleiða góða vöru, verður að vanda til hráefnis í upphafi. — Til þess að fá úrvals mjólkurafurðir, verð- ur mjólkin að vera fyrsta flokks vara, er nota á til vinnslu. Þar kemur til kasta mjólkurframleið- enda. Því aðeins geta mjólkurbúin (sam- lögin) framleitt úrvals mjólk og mjólkur- afurðir, að mj ólkin sé með ágætum, er hún berst til þeirra frá framleiðendum. Framleiðsla matvöru — hvaða nafni sem hún nefnist — verður að líta vel út, vera hrein, vel lyktandi og bragðgóð. Hún verður að falla kaupendum í geð; hún verður að vera góð vara, úrvalsvara. Eins og mjólk kemst næst því að vera hin fullkomnasta fæða fyrir mannlegar verur, er hún einnig hin ákjósanlegasta fæða fyrir flestar tegundir gerla. Gerlar berast víða að og á marga vegu í mjólkina: með ryki og öðrum óhreinindum, einkum af höndum, júgrum og mjólkur- ílátum. Þá er hin mikilvæga spurning: Hvernig við megum sigrast á þeim? Nú er það ekki eins erfitt viðfangs og mœtti. Ráðstafanir í þá átt eru aðallega tvenns konar: 1. að varna gerlum að komast í mjólkina. 2. að stöðva vöxt og viðgang þeirra gerla, sem hafa komizt í hana. Þessi meginatriði skulum við athuga nánar: FULLKOMIÐ IIREINLÆTI. Fyrra meginatriðið: að varna gerlum að komast í mjólkina, er í því fólgið að við- hafa fullkomið hreinlæti við mjaltir, með- ferð mjólkur og mjólkuríláta. — Þess vegna er bezta vopnið gegn gerlum fullkomið hreinlæti. Hafið ávallt í huga, að um leið og óhreinindi komast í mjólkina, er ógæf- an vís. Þótt unnt sé að sía frá hin grófari óhreinindi þá verður það þó ekki fyrr en þau hafa blandast — að einhverju leyti — í mj ólkina. Við skulum því athuga hinar helztu hreinlætisráðstaf anir: 1. Fjósin skulu vera björt og loftgóð. Nauðsynlegt er að kalka þau einu sinni á ári. Saurslettur um veggi og aðra staði skal fjarlægja sem oftast. 2. Básar og flórar skulu vera vatnsheldir. 3. Safnþróm, mykjuhúsum og votheys- gryfjum skal vera þannig fyrir komið, að ekki berist þaðan óþefur i'nn í f jósið. 4. Salerni eða kamar skal ekki vera í beinu sambandi við fjósið. 5. Ræsta skal f jósið, bursta og þrífa kýrn- ar vel fyrir mjaltir. Sérstaklega skal gæta þess, að ekki berist í mjólkina ryk eða önnur óhreinindi, meðan á mjöltum stendur. Öll fjósaverk skulu af hendí leyst eigi síðar en stundar- fjórðungi fyrir mjaltir.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.