Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 16

Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 16
10 FREYR 6. Mjaltafólk skal vera yzt klæða í hrein- um slopp og bert upp að olnboga; einn- ig skal það hafa höfuðfat. Fatnað þennan skal ekki nota til annars. Ekki skal geyma föt þessi í f jósinu. 7. Mjaltafólk skal þvo sér vandlega um hendur, áður en mjaltir hefjast, og eftir þörfum meðan á mjöltum stendur. 8. Mjólka skal með þurrum höndum eða nota góð júgursmyrsli. 9. Hreinsa skal vandlega júgrið og í kringum það, áður en kýrin er mjólk- uð. Þvo skal með volgu vatni og þerra vel á eftir. Þetta atriði skiptir miklu máli í framleiðslu mjólkur. 10. Fyrstu boga fbiuiur) úr spenum skal hvorki mjólka saman við mjólkina né niður í básinn og ekki heldur nota þá til að væta hendur eða spena, því að í fyrstu mjólkínni, sem úr spenunum kemur, er oft mikið af gerlum. Nota skal sérílát undir mjólk þessa. 11. Mjólkina skal ekki sía í fjósinu. 12. Nota skal baðmullarfilt í síuna, en alls ekki tusku. Varast skal aö sía mikla mjólk í gegnum sama baðmullarfiltið, því að eftir því sem meiri óhreinindi safnast fyrír í filtinu og meiri mjólk streymir i gegnum það, leysist meira upp af óhreinindum, er berast í mjólk- ina. Bezt er að skipta um baðmullar- filt sem oftast, meðan á mjöltum stendur. 13. Kæla skal mjólkina þegar eftir mjaltir (sjá kæling mjólkur). 14. Aldrci skal hella saman volgri og kaldri mjólk; við það spillíst hún. 15. Aldrei skal geyma mjólk eða mjólkur- ílát í fjósinu. 16. Aldrei skal geyma mjólk eða mjólkur- ílát, þar sem hundar, kettir eða önnur dýr ná til þeirra. 17. Áríðandi er, að mjólkin standi ekki í sólskini. 18. Áríðandi er, aö mjaltastóllinn sé hreinn. 19. Ágætt er að klippa júgrið og kringum það, — því sneggra, því betra. 20. Áríðandi er að eyða flugum og öðrum skordýrum úr fjósinu, því að þau geta borið gerla og sýkla í mjólkina, — svo og rottum og músum eftir föngum. 21. í fjósi má ekki hafa alifugla eða svín. 22. Varast ber að hella saman við sölu- mjólkina mjólk úr kúm fyrstu 5 daga eftir burð. 23. Varast ber að hella saman við sölu- mjólkína mjólk úr kúm, sem eru að verða geldar og eiga það skammt til burðar, að mjólkin hefir fengið ann- arlegt bragð, enda mjólki þær minna en 1 lítra á dag. 24. Varast ber að hella saman við sölu- mjólkina mjólk úr kúm, sem eru haldnar eða grunaðar um að vera haldnar sjúkdómum, er spillt geta mjólkinni, svo sem júgurbólgu. 25. Varast ber að hella saman við sölu- mjólkina mjólk úr kúm, sem við eru notuö lyf, er borizt geta í mjólkina, svo sem júgurbólgulyf. Mjólk úr kúm fyrstu 3 sólarhrínga eftir notkun slíkra lyfja má alls ekki blanda saman við sölumjólkina. 26. Nauðsynlegt er að sótthreinsa fjósin öðru hverju og alltaf eftir sjiikdóms- tilfelli. Ágætt er að nota germidín. Bezt er að láta það í sprautu, t. d. venjulega flugnasprautu, og síðan úða allt fjósið: loft, veggi, bása, flór og gólf.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.