Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1953, Qupperneq 20

Freyr - 01.01.1953, Qupperneq 20
14 FRE YR JÓNAS PÉTURSSON: ItöðM íir Fljólsilal Vetur var all-harðviðrasamur í janúar og gerði þá mörg óvenjuleg ofsaveður, flest af vestri eða norðvestri. Nokkrir smáskaðar urðu af þeim veðrum, en engir stórvægileg- ir. Haglaust eða haglítið var lengst af á flestum bæjum i Fljótsdal nema Valþjófs- stað og Skriðuklaustri. Á Skriðuklaustri voru hagarnir eingöngu að þakka framræsl- um, sem búið var að gera. í febrúar var enn haglítið, vegna storku á jörð, því að alltaf var mjög lítill snjór, en talsvert frost allan þennan tíma. En rétt fyrir 20. febr. breytt- ist tíð, geröi ágæta hláku og varð alautt hátt í hlíðar og hagar upp fyrir brúnir. Úr því mátti heita einmunatíð það sem eftir var vetrar, mjög væg frost, sólskin um daga og lengst af stillur. Gerði þó nokkurra daga norðanhret í byrjun marz. Um sumarmál voru blíðuveður og jörð tók að gróa, svo að ýrnsir bændur töldu lítið vanta á nægan sauðgróður. Aftur kólnaði fyrir apríllokin, þótt ekki snjóaði að ráði, og hélzt jörð auð og voru sæmileg veður fram til 16.—17. maí, en þá gerði suðvestan átt með óvenjulegum hlýindum, sem hélzt til loka mánudagsins 26. maí. Leysti þá geysimikinn snjó af fjöll- um, svo að stórflóð kom í árnar, sem náði hámarki í lokin á hlýindakaflanum. Hitinn komst suma daga upp í um 20° í forsælu. Gróður þaut upp og var kominn ágætur sauðgróður í lok hlýindakaflans og t. d. á- gætur grasþeli hér á heimatúnið. Leit út fyrir að sláttur gæti hafist um miðjan júní, ef góð tíð héldist. En þá skipti um. Morg- uninn 27. maí var norðan hvassviðri og rigning og síðan slydda, sem fór stórversn- andi eftir því sem á daginn leið. Um kvöldið dró úr úrkomunni og frysti og gerði þá skafla í lautum, sem héldust marga næstu daga. Voru frost um nætur næstu dægur og tæplega gat talizt þýtt um hádaginn. Ekki fórst margt af lömbum í þessu á- hlaupi hér í Fljótsdal, en kuldakaflinn, sem í hönd fór, var þó ærið afdrifaríkur hér, með fóðureyðslu og því, að ær mjólkuðu af sér holdin og geltust síðan og áttu því rýrari lömb í haust. Útjörð hvítnaði upp, bæði af kuldanum og því, að sauðféð hirti gróður- inn, sem kominn var. Um mánaðamótin maí og júní var greinilegur haustlitur á grasþelanum í túninu hér. Hefi ég aldrei séð slíkt fyrirbæri áður að vori. Mörgum tví- lembum var borgið hér, með því að beita þeim á túnið. Júní var svo allur óvenju kaldur. Örfáir hitadagar í júlíbyrjun, síðan norðaustan rigning og kuldi um 10. júlí. Laugardag 12. júlí voru lambærnar héðan reknar til af- réttar í Rana. Gekk í norðan slydduhríð um kvöldið og síðan birti og var hörkufrost á Fljótsdalsheiðinni um nóttina og glömruðu ískleprarnir á fótum og tagli hestanna og síðum lambanna. Mánudag 14. júlí var norðan og norðvestan ofsaveður. Svarf þá öll blöð af kartöflugrasi í garði héðan, á bökkum Jökulsár. Um 20. júlí hlýnaði og var mikill hita- og þurrkakafli fram undir júlí- lokin. Eftir það mátti heita hagstæð hey- skapartíð, að vísu með rigninga- og kulda- köstum, en ekki langvarandi, þótt í heild væri veðráttan alltaf köld. Mikil norðanrok gerði 27. ágúst og 1. september og týndust þá nokkur hey. Frosthélu gætti í botni dals- ins að morgni 13. ágúst og féll til skaða kartöflugras á flatlendinu. Næturnar 28. og 29. ágúst var enn frost, einkum síðari nótt- ina, sem gjörfelldi kartöflugras víða og stór- skemmdi allsstaðar. Grasspretta var alls- staðar mjög sein, sæmilega góð á túnum, en víðast mjög léleg á útengi, þar til þá und- ir ágústlokin. Kalskemmdir voru ekki á túnum, en sáust á einstaka stað á útjörð. Á Skriðuklaustri byrjaði sláttur 4. júlí, og hefi ég byrjað öll 4 sumurin, sem ég er bú- inn að vera þar, svo að segja sama dag. Þetta sumar tel ég sérstaklega hagstætt fyr- ir það, að heita mátti að aldrei færi hand- tak í heyþurrk til ónýtis, og hey fengust oft- ast ágætlega þurr. Hausttíðin frá heyskap- arlokum má heita ágæt til þessa dags, þótt nokkrir frostdagar kæmu í byrjun nóvem- ber. Ég tel s.l. sumar gott og skemmtilegt heyskaparsumar, en hörmulegt garðyrkju-

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.