Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Page 10
7 0 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Kostir & Gallar
Hrafnhildur þykir stór-
skemmtileg, hugmyndarík og
heilsteypt manneskja. Tröll-
trygg vinum sínum og mikill
listamaður.
Hún er með fullkomnunar-
áráttu og haldin ákvörðun-
arfælni með litilvægar
ákvarðanir. Hrafnhildur er
ekki allra.
„Hún er náttúrulega I
fyrsta lagi stór-
skemmtileg. Hún er
hamhleypa til verka,
einstaklega hug-
myndarlk og Imyndunarafl
hennar á sér engin takmörk.
Hún er einstaklega traust og
hægt að ráðfæra sig við hana
um allt milli himins og jarðar.
Hún er trygg og gasprar ekki
um hlutina sem henni er trúað
fyrir. Eini gallinn sem ég finn
hjá henni er ákvörðunarfælni
hennar stundum, varðandi
smáhluti I dagsins önn."
Margrét Jónasdóttlr, sagnfræölngur og
mágkona Hrafnhildar.
„Hrafnhildur hefur
marga góða kosti. Það
sem ég met mikils við
hana er hversu óhemju
heilsteypt manneskja
hún er. Trygglind og einstak-
lega vel gefin og hefur mikinn
húmor. Efég á að telja upp ein-
hvern galla þá erþað helst að
hún er ekki allra og á það til að
loka sig afeins og reyndar allir
alvarlegir listamenn gera."
Þórunn Slguröardóttlr leikstjóri.
„Hún er bráðskínandi
skörp og algjör snill-
ingur I hverju sem hún
tekur sér fyrir hendur.
Hún er mikil hestakona
og sklöagarpur og mjög góður
gltarleikari. Hún er eins og
stúlkan Hildur I Ég er meistari
sem var fyrsta leikritið sem hún
skrifaði. Hún er trölltrygg vinum
slnum. Galli hennar sem er llka
kostur er fullkomnunarárátta
hennar. Hún er aldrei ánægð
með neitt sem hún hefur gert. “
Kjartan Ragnarsson leikstjóri.
Hrafnhildur Hagalín Guömundsdóttir er
fædd 30. mars 1965. Hún útskrifaöist I leik-
húsfræöum I París 1992. Síöan þá hefur
hún unniö viö ritstörfog fékk Leikskálda-
verölaun NorÖurlanda fyrir verk sitt Ég er
meistari. Hún skrifaöi leikgeröina á Sölku
Völku sem er veriö aö sýna í Borgarleik-
húsinu um þessar mundir.
Hjónin Gyða Bentsen og Flemming Madsen á Akranesi vilja 3 milljóna króna bætur
frá bænum. Hjónin seldu hús sitt þegar þau töldu sig hafa loforð Gísla Gíslasonar
bæjarstjóra fyrir nýrri lóð. Þau fengu hins vegar ekki lóðina og biðu í tvö ár eftir
annarri lóð. Á meðan þau bjuggu í bráðabirgðahúsnæði og gátu ekki hafið fram-
kvæmdir hækkaði húsið sem þau höfðu selt á 8,5 milljónir króna upp í 12 milljónir.
Vilja þrjár milljónir vepa
meintra svika bæjarstjora
Bæjarráð Akranes neitar að bæta hjónum í bænum fjárhagstjón
sem þau segjast hafa orðið fyrir vegna svikinna loforða bæjar-
stjóra um byggingarlóð við Innsta-Vog. Bæjarráð segir fyrirvara
hafa verið gerðan um lóðaúthlutunina. Bærinn hafi ekkert haft
að gera með sölu hjónanna á húsi sínu.
„Töluðum ítrekað við Gísla Gíslason bæjar-
stjóra sem sagði okkur að málið væri í höfn
„Ljóst er að við höfum orðið fyrir
verulegu fjárhagstjóni við að bærinn
gat ekki staðið við loforð um lóðina
við Innstavog," segja hjónin Gyða
Bentsen og Flemmning R. Madsen í
bréfi til bæjaryfirvalda á Akranesi.
Hjónin telja sig hafa tapað rúm-
lega þremur milljónum króna með
því að hafa selt hús sitt í febrúar 2003
til þess að fjármagna nýtt hús sem
þau hugðust reisa á lóð við Innsta-
Vog. Með því að ekki hafi verið staðið
við fyrirheit bæjarráðs og loforð Gísla
Gíslasonar bæjarstjóra um nýju lóð-
ina hafa framkvæmdir þeirra dregist
allt til þess að þau fengu loks í janúar
á þessu ári afhenta nýja Ióð í landi
Ytri-Hólms.
Blokk rís í bakgarðinum
Gyða og Flemming keyptu húsið
Garðholt á Akranesi árið 1992. Húsið
stóð í útjaðri byggðar en þegar leið að
aldamótum var ákveðið að reist yrði
þriggja til fimm hæða íbúðablokk í 20
metra fjarlægð frá stofuglugga hjón-
anna eins og þau sjálf orða það. í áð-
umefndu bréfi þeirra til bæjarins
kemur fram að þau og nágrannar
þeirra hafi barist gegn blokkinni en
ekki náð meiri árangri en það að
blokkin var færð fimm metrum fjær
og höfð þijár hæðir.
Fengu skilmálum breytt
„Við gátum ekki sætt okkur við að
búa í svo þéttri byggð. Ljóst var að
nýbyggðin myndi þrengja verulega
að okkur og valda okkur verulegri
röskun. Brostnar voru forsendur fyrir
vem okkar í Garðholti, sem hafði ver-
ið nánast í dreifbýli," skrifa hjónin
sem segjast hafa sett sig í samband
við bæinn þegar framkvæmdir við
blokkina hófust árið 2002.
Gyða og Flemming segja að þau
hafi leitað eftir því við bæinn að fá
stóra lóð í Vogahverfi sem þá stóð
fyrir dymm að byggja upp. Að fmm-
kvæði þeirra hjóna hafi bærinn
bmgðist skjótt við sumarið 2002 og
rýmkað skilyrði um stærð húsa í
hverfinu.
Bæjarráð og bæjarstjóri
úthluta
„Eftir umsókn okkar var okkur út-
hlutað lóð við Innstavog í Vogahverfi á
bæjarráðsfundi 12. desember 2002,“
skrifa hjónin. „Var okkur bent á að
snúa okkur til Þorvaldar Vestmanns,
sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs
og honum falið að gera tillögu að sam-
komulagi vegna lóðarinnar."
Nú virðast Gyða og Flemming
hafa talið málið klappað og klárt:
„Töluðum við ítrekað við Gísla
Gíslason bæjarstjóra sem sagði okkur
að málið væri í höfn. Seldum við því
Garðholt á 8.500.000 krónur í því
skyni að afla framkvæmdafjár til
byggingar húss í Innstavogi."
Sviðsstjóri í veginum
Þrátt fyrir þetta segjast Gyða og
Flemming ekki hafa getað byrjað að
byggja í Innsta-Vogi: „Kom í ljós að
ekki var samkomulag um það meðal
bæjarstarfsmanna hvernig og hvort
lóðunum yrði úthlutað. Þannig virð-
ist nefndur Þorvaldur Vestmann ekki
vera sammála bæjarráði og bæjar-
stjóra þannig að við fengum aldrei
kost á eignarheimild fyrir lóðinni."
Hjónin segja að í byrjun sumars
2003 hafi komið í ljós að bærinn
myndi ekki standa við loforð sitt um
lóðina í Innsta-Vogi. Þau hafi þá farið
að leita eftir annarri lóð í grennd við
Akranes:
„Fengum við fljótlega loforð fyrir
sjávarlóð í landi Ytri-Hólms, Innri-
Akraneshreppi. Ekki reyndist unnt að
afhenda lóðina fyrr en í janúar 2005.1
millitíðinni höfðum við búið í
þröngu bráðabirgðahúsnæði."
Gátu ekki hafist handa
Eins og áður segir seldu Gyða og
Flemming hús sitt fyrir 8,5 milljónir
króna í febrúar 2003. Húsið var selt
aftur í desember 2004 á 10,2 milljón-
ir og enn eina ferðina í apríl á þessu
ári fyrir 12 milljónir króna. Þessa
verðþróun segja hjónin hafa verið í
takt við almenna þróun á verði fast-
eigna á Akranesi á þessu tímabili.
Hjónin segja að í ljósi þessa hafi
þau orðið fyrir rúmlega 3 milljóna
króna fjárhagstjóni því þau hafi ekki
geta nýtt söluandvirði húss síns til
byggingaframkvæmda í allan þenn-
an tíma.
Bæjarráðið vísar öllu á bug
,Auk þess hefur aukinn bygging-
arkosmaður og erfiðleikar við fram-
kvæmdir vegna þenslu gert okkur
mun erfiðara að koma okkur upp
húsi," skrifa hjónin til bæjaryfirvalda
og óska eftir viðræðum hið fýrsta um
að bærinn bæti þeim tjónið. Af þeim
virðist þó ekki munu verða:
„Fyrirvari var gerður hvenær um-
rædd lóð í Innsta-Vogi gæti orðið
byggingarhæf og rækilega gerð grein
fyrir því að Orkuveita Reykjavíkur var
ekki reiðbúin að leggja nauðsynlegar
lagnir vegna vams og rafmagns sök-
um þess að slíkt yrði of kostnaðar-
samt á meðan ekki sóttu fleiri um lóð
á svæðinu," segir bæjarráðið í bókun
um daginn og bætir við varðandi sölu
hjónanna á húsi sínu:
„Þá hafði bærinn enga aðkómu að
þeim málum og gemr því ekki fallist á
að ákvarðanir bréfritara [Gyðu og
Flemmings] í þeim efhum leiði til
ábyrgðar bæjarins."
gar@dv.is
Fíkniefni í
nærbuxunum
Nú á dögunum var
þingfest fíkniefnamál í
Héraðsdómi Reykjaness.
Þar var Jóhanni Geir
Karlssyni gefið að sök að
hafa haft í vörslu sinni
6,40 grömm af am-
fetamíni þegar lögreglan í
Keflavík handtók hann í
bifreið ■**,
sinni á . ,^|i
Njarð- /*
ar- T •
braut
í .. </ M>< .» í \
Njarð- ' ’ y
vík. Jóhann
hafði falið • /\
efnin í nær-
buxunum sínum en
lögreglan komst að því
við leit á honum á lög-
reglustöðinni í Keflavík.
Körfuboltastjarna dæmd í Héraösdómi Norðurlands eystra
Skallaði mann sem sem sagði körfuboltamenn aumingja
Körfuknattleiksmaðurinn knái í
Þór, Hermann Daði Hermannsson,
var í gær dæmdur í Héraðsdómi
Norðurlands eystra í 30 daga skil-
orðsbundið fangelsi fyrir að hafa
skallað mann á salemi Sjallans í des-
ember í fyrra. Maðurinn sem Her-
mann skallaði hlaut sentímeters
langan skurð á nef svo sauma þurfti
fjögur spor.
Vitni bar í héraðsdómi að að-
dragandi árásar Hermanns hafi ver-
ið rifrildi sem hann átti í við hand-
boltaáhugamann á salemi Sjallans.
Deilan var furðuleg því rifist var um
hvor íþróttin væri betri, körfubolti
eða handbolti.
Hermann er þekktur körfubolta-
maður á Akureyri og var valinn
körfuboltamaður ársins 2002 hjá
Þór. Þegar hann gekk inn á salemi
Sjallans fékk hann óblíðar móttökur
hjá handboltaáhugamanninum. „Er
þetta ekki körfuboltaauminginn?"
kallaði hann til Hermanns. Við þetta
reiddist Hermann nokkuð og í kjöl-
farið fóm þeir að rífast. Rifu í skyrtur
hvor annars og héldu fast þar til
Hermann skallaði handboltaáhuga-
manninn í nefið með áðurnefndum
afleiðingum. Við það var þeim stíað
í sundur. Handboltaáhugamaður-
inn öskraði þá að Hermanni að þeir
væm allir aumingjar og átti þar lík-
lega við körfuboltamenn almennt.
Lögregla var kölluð á staðinn og
var Hermanni vísað út en hand-
boltaáhugamanninum ekið á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Akureyri til að-
hlynningar. Hermann hefur aldrei
áður gerst sekur um líkamsárás og
því var 30 daga fangelsisvist hans
frestað og mun hún falla niður haldi
hann skilorð í tvö ár.
andri@dv.is
Hermann Daði Hermanns-
son Þórsarinn skallaðimann
sem héltþvl fram að handbolti
væri betri en körfubolti.