Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Síða 12
c <12~rFiMMTU£iAGUR2'7: OKTÓBER2005
• - Fréttir DV
jyiiir
íslenskunám í
Alþjóðahúsinu
I Alþjóðahúsinu
er hafin íslensku-
kennsla fyrir inn-
flytjendur undir
stjórn Ingibjargar
Hafstað. í
kennslunni
verður megin-
áhersla lögð á
vinnustaða-
tengda íslenskukennslu
sem Ingibjörg hefur þróað
og kennt á fjölda vinnu-
staða undanfarin ár. Náms-
efnið tekur mið af dagleg-
um veruleika starfsmanna
og hefur verið hannað fyrir
íjölda vinnustaða.
Kennurum
boðin hand-
snyrting
Kennarar í Grunnskól-
anum í Bolungarvík nutu
góðs af námi
nemenda er
þeim var boð- V
in handsnyrt-
ing gegn vægu
gjaldi í síðustu viku.
„Snyrtifræðival er nýjung
hjá skólanum en við erum
að reyna að brjóta upp hið
hefðbundna val. Tilvalið
var að bjóða upp á
snyrtifræði þar sem einn af
kennurum skólans er
menntaður snyrtifræðing-
ur,“ segir Kristín Ósk Jónas-
dóttir skólastjóri. Þetta
kemur fram á vefsíðu Bæj-
arins besta. Þar segir enn-
fremur að snyrtifræðinám-
ið hafi hafist í haust og yfir
tugur nemenda valið það.
iPod stolið
Lögreglunni í Keflavík
barst tilkynning um þjófn-
að í Gerðaskóla £
Garði. Þar hafði
GSM-sími verið tek-
inn úr yfirhöfn og
tónlistarspilari, af
gerðinni, iPod hvarf
úr tösku eins nem-
anda. Töluvert hef-
ur borið á þv£ að
iPod-spilarar séu
teknir ófrjálsri
hendi á meðal grunnskóla-
nema út um allt land enda
um vinsælan og dýran tón-
listarspilara að ræða. Til
þess að sporna við þjófnaði
sem þessum er náms-
mönnum bent á.að skilja
tónlistarspilarann eftir
heima þegar farið er £ skól-
ann.
listarlifi hér á Neskaupstað,"
segir Vilhjálmur Pálsson,
bankastjóri i Sparisjóði Norð-
fjarðar.„Núna er verið að sýna
tónlistarstykki i Egilsbúð sem
heitir Tónqtitringur. Þaðer
Landsíminn
°g •
djassklúbburinn á Nesi sem
stendur fyrir þessari sýningu
og það var full Egilsbúð á
frumsýningunni á laugardag-
inn. Svo er klúbburinn með
Blúskjallarann sem ermeð
uppákomur öðru hvoru og
stundum koma listamenn
annars staðar frá og halda
djammsessjon í kjallaranum/'
Indriði Pétursson lá meðvitundarlaus í fjóra daga heima hjá sér. Vigfús Guðbrands-
son, æskufélagi Indriða, kom honum til bjargar. Indriði hefur auðvitað ekki efni á
þjónustuíbúð frekar en svo margt gamalt fólk í sömu stöðu og hann. Nú býr hann á
Rauða kross hótelinu við Rauðarárstíg. DV fékk borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins
til að líta inn til Indriða og Vigfúsar og ræða við þá um sín helstu áherslumál.
Gísli vænsti piltur en
Uilhjálmur er betri
DV fékk þá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Gísla Martein Baldurs-
son, sem báðir vilja leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, til
að líta inn á Rauða kross hótelið á Rauðarárstíg en þar býr Ind-
riði Pétursson á meðan hann jafnar sig eftir að hafa legið afskipt-
ur í fjóra sólarhinga meðvitundarlaus heima hjá sér. DV lék for-
vitni á því að vita hvernig Indriði og æskufélaga hans, Vigfúsi
Guðbrandssyni, litist á frambjóðendurna.
„Gfsli Marteinn er eflaust vænsti Eins og fýrr segir óskaði DV eftir
piltur og góður drengur en það er þv£ að þeir Vilhjálmur og Gfsli
ekki nóg ætli hann sér að vera borg- Marteinn hittu Indriða Pétursson
arstjóri. Vilhjálmur hefur hins vegar
reynsluna og er traustvekjandi, ég
myndi gefa honum mitt atkvæði,"
segir Indriði og vinur hans Vigfús
tekur undir og er ekki hrifinn af
hvernig Gfsli Marteinn heldur um
boðungana á frakkanum sfnum á
meðan hann talar.
sem býr einn í tíu til tólf fermetra
herbergi og hefur ekki ráð á að búa í
þjónustuíbúð á vegum borgarinnar.
Fyrr í þessum mánuði missti Indriði,
sem er 73 ára, skyndilega meðvitund
og lá í fjóra sólarhringa á gólfinu í
herbergi sínu. Mesta lán var að hann
skildi enn vera á lífi þegar vinur hans
fór að grennslast fyrir um hann og sá
til þess að hann komst undir lækn-
ishendur. Nú dvelur Indriði á Hótel
Lind við Rauðarárstíg þar sem vel er
um hann hugsað. Hans býður ekki
annað en fara aftur í herbergið sitt
en hann getur átt von á að missa
meðvitund hvenær sem er enda
hefur það hent hann tvisvar áður.
Vilhjálmur heilsar af alúð
Vilhjálmur bankaði upp á hjá
Indriða rétt fyrir klukkan þrjú í gær
en þá sat Vigfús vinur hans hjá hon-
um í heimsókn. Hann heilsaði þeim
Indriða af alúð og sagðist þekkja vel
vanda eldri borgara.
„Ég held að þú þurfir að komast í
þjónustuíbúð þar sem vel er hugsað
um þig og hægt er að grípa strax inn í
ef þetta kemur fyrir þig aftur. Þú átt
rétt á að komast inn í þannig
íbúð og ef ég get eitt-
hvað aðstoð-
að þig er
Stjörnugjöf Indriði og
Vigfih segjct Villijálm fjögurra
stjörnu fiambjódanda.
ég fús til þess," sagði Vilhjálmur og
útskýrði fyrir Indriða að það þyrfti
ekki að vera svo dýrt að búa í þjón-
ustuíbúð. Þær væru ekki allar á sama
verði. Auk þess væri hægt að greiða
eina upphæð á mánuði og þá væri
allt innifalið í þeirri upphæð, matur
oglyf líka.
Indriði ánægður
Það hýmaði yfir Indriða sem
sagðist ekkert vilja fremur en kom-
ast í þannig íbúð. Hann spurði
hvernig hann ætti að snúa sér í því
og Vilhjálmur reyndi að bestu getu
að útskýra hvernig það gengi fyrir
sig. Indriði hlustaði með athygli en
sagðist bara ekki hafa hugsað út í
það að sækja um íbúð. Tími væri
kominn til þess. Síðan kvaddi Vil-
hjálmur og sagði Indriða að hann
gæti leitað til sín ef hann þyrfti að-
stoð. f kveðjuskyni gaf hann honum
sfmanúmer sitt og sagði:
„Það er ekki vegna þess að rétt sé
að hygla neinum, bara að þú fáir þá
þjónustu sem þú átt rétt á,“ sagði
hann og lofaði að yrði hann borgar-
stjóri myndi hann beita sér í þessum
málum. Þeir voru sammála um það
félagarnir að Vilhjálmur væri fínn
maður og myndi standa sig prýði-
lega í stóli borgarsjóra.
„Já, Vilhjámur myndi standa sig
vel, hann þekkir þessi málefni aldr-
aðra eftir að hafa verið lengi í
þessu," sagði Vigfús og leyndi ekki
að hann hefði svona fyrirfram ekki
miklar mætur á Gísla Marteini.
Gísli heilsar með blómum
Tíu mínútum síðar var bank-
að laust að dyrum og Gísli
Marteinn gekk
inn og heils-
aði glaðlega.
í höndun-
um var j
hann með
„Vilhjámur myndi
standa sig vel."
vönd af bláum og rauðum rósum
sem hann sagði að rétt væri að Ind-
riði fengi að njóta. Indriði þakkaði
fyrir sig, bauð sæti og Gísli Marteinn
sagðist hafa lesið fréttina um hann í
DV f dag.
„Ég hef verið að tala við gamalt
fólk í allan dag og orðið margs vísari.
Mér skilst eftir umræður við starfs-
fólk á þessum stöðum að það séu að
minnsta kosti 300 manns á biðlista,"
upplýsir hann.
Vill bæta ástandið
Síðan spjallar hann glaðlega við
þá félaga og spyr Indriða um stöðu
hans. Gísli Marteinn telur að Indriði
ætti að geta
Vantar 7 þúsund krónur til að eiga ofan í sig og á
Ekki hægt að ná endum saman á ellilífeyri
Eldri borgarar landsins búa
margir við mjög bág kjör og margir
hverjir hafa ekki efni á þeirri þjón-
ustu sem Félagsmálastofnun hefur
upp á að bjóða. Ef tekið er dæmi um
eldri borgara sem býr einn ná ráð-
stöfunartekjur hans ekki til að lifa
sómasamlegu lífi.
MÁNUÐUR í LÍFI EINSTÆÐS ELDRI BORGARA
Tekjur á mánuði að frádregnum sköttum 93.359
Leiga á þjónustuíbúð að Lindargötu 57-66 -46.105
Fullt fæði -33.635
Þrif á íbúð 500 kr. á klukkustund, 8 tímar í mánuði -4.000
Simi: -2.000
Samgöngur 20 miðar í strætó með afslætti -1.800
Afnotagjöld RÚV með eldriborgaraafslætti -2.164
Lyfjakostnaður á mánuði -5.000
Lækniskostnaður á mánuði -3.000
Fatakostnaður að meðaltali á mánuð -3.100
Samtals = -7.209*
*( tölunum er ekki gert ráð fyrir öðru en brýnustu nauðsynj-
um. Viðkomandi nær ekki endum saman þrátt fyrir að reykja
hvorki né drekka áfengi, gefa aldrei gjafir eða horfa á Stöð
2. Einstaklingurinn í dæmi DV er ekki áskrifandi að neinu
blaði og fær sér ekki einu sinni kaffibolla eftir mat.