Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Síða 22
Halló Ragga Ég held að ég sé alls ekki týpískur maður til að skrifa þér bréf. Ákvað samt að láta slag standa. Málið varðar fjölskyldu mína. Við erum vel stæð og héld- um að allt væri í mesta sóma. Stelpumar okkar tvær eru 12 og 15 ára og em með herbergin sín í kjallaranum og smá selskaps- stofu með tölvu, sjónvarpi og sófa. Þær halda sig frekar út af fyrir sig. Þetta varð mér áhyggju- efni eftir að ég notaði tölvuna þeirra í gær. Þær vom í skólanum og ég lenti í vandræðum með mína eigin. Ég opnaði tölvuna og datt beint inn á msn-spjallið í nafni þeirrar eldri. Ég fékk hland fyrir hjartað þegar það komu upp gluggar frá tveimur drengjum með mjög vafasömum skilaboöum um hvað hún hefði verið sexí í gær, að myndirnar hefðu verið æðislegar og aukinheldur vísaði einn þeirra í eigin sjálfsfróun. Ég fékk svo mikið áfall að ég svaraði og sagðist vera faðir dóttur minnar fyrir framan tölvuna. Þeir hurfu strax af skjánum. í reiði minni skoðaði ég innihald tölv- unnar og fann myndir af 15 ára dóttur minni í mjög ögrandi stellingum. Ekki nektar- myndir en tilgangurinn var mjög greinilegur. Ég er mjög örvæntingar- fullur yfir þessu og velti fyrir mér hvað ég á að gera. Meðkveðju, Pabbinn Kæri pabbi, Bíddu aðeins á meðan ég set á mig Dr. Phil gleraug- un. Ég held að þú sért að upplifa þá tegund af áhyggjum sem verða á vegi flestra unglingaforeldra fyrr eða síðar. Stundum kemur sjokkið þegar fyrsti kærastinn eða kærastan er dregin í hús eða þegar litli eng- illinn biður um hjálp við val á getnaðarvöm. Netið og spjallrásir em dæmi um nýja nútímavídd vandans (ef vanda skyldi kalla því auðvitað er mikið af þessu hluti af eðlilegu ferli þegar barn breytist í fullorðna manneskju). Okkar nú- tíma fylgir ákveðin frelsisdýrkun - við viljum hafa frelsi til að gera nán- ast allt sem okkur dettur í hug. Við gefum börnunum okkar frelsi til ValiÖ fæðubótarefni ársins 2002 í Finntandi Minnistöflur FOSFOSER MEMORY - oq söluaðili sími: 551 9239 .birkiaska.is dæmis með því að sjá þeim fyrir nettengdum tölvum og sjónvarpi í kjaUaranum. Frelsi er fallegt og gott en til þess að ráða við frelsið þurfum við ákveðinn siðferðisramma. Þroski og reynsla hjálpa til - þannig að flestir fullorðnir ráða þokkalega við þessar aðstæður. Annað mál er kannski með unglingana okkar og börnin sem í raun hafa ekki forsend- ur tfi að leggja mat á hvað er passlegt í samskiptum og hvernig maður sýnir sjálfúm sér og öðrum tUhlýð- lega virðingu. Ég á handa þér nokkur ráð: Þú og eiginkona þín þurfið fyrir það íyrsta a& ræða saman, stUla saman strengi ykkar og ákveða hvernig þið ætlið að taka á málinu. Reynið að láta ekki reiðina og áfaUið stjórna aðgerðum. Stelpurnar ykkar þurfa miklu frekar örugga leiðsögn, styrka hönd og dulitla dómgreindarþjálfun. Kannið hvaða umföUun um sið- ferði og samskipti þær fá eða hafa fengið í skólanum. Margir skólar eru í dag með ágætis námsefni í h'fs- leikni og/eða kynfræðslu. Sumir eru heppnir með kennara en aðrir ekki svo að munurinn á gæðum getur verið talsverður. Leitið til fjölskylduráögjafa ef ykkur finnst ástæða tU. Ég vona að ykkur gangi vel. Kær kveðja, Ragga Kynlíf veldur hausverk Vísindamenn segja karl- menn frekarsegja sann- leikann þegar þeir segja: „Ekki I kvöid, ástin. Ég er með hausverk."Þýskir vis- indamenn segja að einn afhverjum hundrað karl- mönnum finni fyrir harka- legum hausverk á meðan og eftir kynmök.„Verkur- inn tengist ekki einhverri sérstakri stellingu og veldur ekki skemmdum á heilanum. Hann hefst vanalega þegar sáðlát verður og stendur í nokk- uð langan tíma. Flestir upplifa þetta í nokkrar vikur og svo kannski aldrei aftur á eevinni." Mikil umræða hefur verið um kynhegð- un unglinga. Fréttir af stúlkum sem selja sig fyrir inngöngu í partý hafa vakið óhug. DV heyrði í fulltrúum ungu kyn- slóðarinnar og spurði þau um kynhegðun ungs fólks á íslandi í dag. Elísabet Thor- lacius fyrirsæta og Hafþór Hauksson herra Norðurland eru sammála um að ungt fólk notar ekki smokka eins og skyldi og að fæstir hugsi út í áhættuna á kynsjúkdómum og eyðni. HAFÞÓR HAUKSSON Stundar ungt fólk skyndikynni? „Já alveg hiklaust og ég held að það sé mun meira af því en hér áður fyrr." Er ungt fólk lauslátt?„Ég held það. Án þess að vita það alveg þá held ég til dæmis að íslenskar stelpur sé mun lauslátari en stelp- ur til dæmis á Spáni." Notar ungt fólk smokka?„í allt of litlu magni. Ég held að ungt fólk sé ekkert að spá í því heldur tekur bara sénsinn. Að mínu mati ættu smokkar að vera ókeypis enda held ég að margar stelpur fari í fóstureyðingu eftir skyndikynni." Hugsar ungt fólk út í kynsjúk- dóma og eyðni?„Einhverjir hugsa um þetta auðvitað en yfirleitt eru unglingar ekkert að spá í þessu. Skyndikynni gerast aðallega á fyll- erýi og djammi og þá er fólki alveg sama um allt og er ekkert að spá f hlutunum." Eru bamungar stelpur að borga fyrir inngang í partý með kyn- lífi?„Ég hef ekki orðið var við það en maður veit ekkert hverju mað- ur á að trúa. Ég veit samt að ég og mínum vinum finnst þetta ógeðs- legt og við myndum ekki vilja vera með stelpum sem stunda þetta." Er kynlíf ungs fólks og unglinga orðið grófara?„Kynlíf er orðið mun grófara og ég held að klámið spili þar inn í. Fólk er að prófa eitt- hvað nýtt og endaþarmsmök eru mjög algeng. Ég hef trú á að þessi lífstíll eigi eftir að koma niður á fólki síðar á æv- inni. Ef einhverjar stelpur eru að borga með kynlífi til að komast inn í partý hljóta þær að enda í dópi því ég trúi ekki öðru en þessi partý séu einhver dóp- partý." Er litið niður á lauslátar stelpur?„Já ég Hafþór Hauksson Hafþór er 19 ára og ný- krýndur Herra Norðurland. myndi segja það. Allavega finnst mér þær ekki svalar." Er litið niður á lausláta stráka?„Ekki eins mikið og stelp- umar. Fæstir spá í hvað strákar sofa hjá mörgum, það skiptir ein- hvem veginn minna máli. En að mínu mati em strákar sem sofa hjá mörgum alls ekki svalari en aðrir." Hvemær byija krakkar að sofa hjá„Ég held að það sé í kringum 13 og 14 ára aldur sem er náttúrulega allt of snemma. Ég þekki engan sem ætlar að bíða með að sofa hjá þangað til hann giftir sig en mér og mínum vinum þætti ekkert að því ef krakk- ar myndu bíða með þetta þangað til þeir em orðn- ir eldri. Það væri öðmvísi en við myndum ekki h'ta niður á þá manneskju."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.