Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1952, Side 3

Símablaðið - 01.01.1952, Side 3
5IMABLAÐIÐ 3 Samtök til styrktar lömuðu og fötluðu fólki Simablaðið er þess Jullvíst, að margir opinberir starfsmenn, sem ekki eru félags- bundnir, muni vera fúsir til að taka þátt í þessum samtökum, því er hér birt bréf það sem stjórn F.Í.S. hefur sent stjórnum ýmsra félaga. Þessir menn, hvort sem þeir starfa við símaafgreiðslu á hinum dreifðu landssímastöðvum eða ekki, gæti sent Símablaðinu framlag sitt. Æskilegast væri, að það yrði sent beint til blaðsins en ekki með skilagrein stöðvanna. — Vill Símablaðið mælast til þess við símastjórana að þeir beiti sér fyrir þesasu máli. FÉLAG ÍSL. SÍMAMANNA. Reykjavík, 27. 4. 1952. Síðasti aðaljundur Fél. ísl. símamanna samþykkti einróma, að félagið skyldi beita sér fyrir almennum samtökum meðal opinberra starfsmanna um stuðning við hið ný- stofnaða félag til styrktar lömuðum og fötluðum. Þess gerist ekki þörf, að fara um það mörgum orðum, hve brýn nauðsyn var á stofnun þessa félags, og hve mikið mannúðarstarf hér er um að rœða. Við teljum það víst, að allir opinberir starfsmenn sé á einu máli um það að það myndi síður en svo verða félagssamtókum þeirra fjötur um fót, þó að þau hefði fleiri viðfangsefni en eigin hagsmunamálin ein. Myndi t.d. stuðningur þeirra við hið mikla nauðsynjamál og mannúðarmál, sem hér er um að rœða, verða gott fordœmi öðrum stéttarfélögum, auk þess, sem hinn fjárhagslegi styrkur gæti orðið verulegur, án þess að íþyngja nokkrum með fjárframlögum. Við höfum ákveðið að vinna að þessu máli innan okkar félags á þann hátt, að skora á hvern einasta félagsmann að leggja af mörkum 10 krónur árlega, við ákveðin mánaðamót, og hafa mánaðamótin april—maí verið valin til þeirra samskota í ár. í samrœmi við ályktun aðalfundar ieyfum við okkur að beina þeirri áskorun til yðar, að þér gangist fyrir samskonar samtökum um samskot til styrktar lömuðum og fötluðum og sendið samskotin til stjórnar hins nýstofnaða félags (formaður þess er Svavar Pálsson endurskoðandi). Við viljum einnig mœlast til þess, að þér látið skrifstofu Bandalags starfsmanna ríkis og bœja í té vitneskju um árangur af þessum samskotum, svo fengið verði yfir- lit yfir framlag opinberra starfsmanna til þessa mannúðarmáls. Með félags kveðju. F.h. Fél. ísl. símamanna, A. G. Þormar, Steingrímur Pálsson, Karl Vilhjálmsson, Jón Kárason.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.