Símablaðið - 01.01.1971, Side 10
g'áfu Símablaðsins, en kostnaður við
blaðið hefur vaxið mjög að undanförnu.
Viðræður fóru fram við póst- og
símamálastjóra um að allt starfsfólk,
sem lokið hefur reynslutíma eða námi,
fái skipunarbréf. Þó nokkur brögð eru
að þvi, að starfsmenn hafi ckki fengið
slík bréf og þá sérstaklega úti á landi.
Póst- og símamálastjóri kvaðst sam-
þykkur Jíví að allt starfsfólk, sem ráðið
væri í fastar stöður, er sýnt þætti að
ekki vrðu lagðar niður innan skamms
tíma, fengi bréf. Gaf hann fyrirmæli um
að unnið yrði að því. Jafnframt sam-
þykkti hann að nota framvegis orðið
skipaður í fastráðningabréfum, en und-
anfarin ár hefur ýmist verið notað orðið
skipaður eða ráðinn.
Talsímakonur á Egilsstöðum leituðu
aðstoðar félagsins vegna þess að þeim
hafði öllum verið sagt upp störfum á
þeim forsendum, að fækka þyrfti stúlk-
um vegna opnunar sjálfvirkrar stöðvar
þar. Að áliti félagsins brutu uppsagnir
þessar i bág við lögin um réttindi og
skyldur og fengust ógiltar. Stúlkurnar
störfuðu allar áfram, þrátt fyrir opnun
sjálfvirku stöðvarinnar.
Stuttu seinna var svo tekin upp sól-
arhringsþjónusta á stöðinni. Skipulag
vakta í því sambandi varð nokkurt liita-
mál, og kom það að mestu í hlut fé-
lagsins, einkum formanns, að finna
lausn á þvi og sætta aðila. Stúlkurnar
hafa nú allar fengið skipunarbréf.
Upp kom ágreiningur út af vöktum
Starfsmenn á Keflavíkurflugvelli
leituðu til félagsins með ósk um athug-
un á öryggi þeirra, með tilliti til raf-
losts, er þeir væru að störfum á flug-
vellinum. Yar þetta mál athugað af
Öryggiseftirliti og Rafmagnseftirliti
ríkisins, og að tilhlutan þeirra voru
gerðar ýmsar varúðarráðstafanir til
aukins öryggis starfsmannanna.
I vetur samþykkti Starfsmannaráð,
samkvæmt tillögu F. I. S., að stofnunin
láti kanna og gera skrá yfir þá fyrr-
verandi starfsmenn eða maka þeirra, er
taka eftirlaun úr Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins og eftir hvaða launa-
flokki þeim væri greitt. Taldi félagið,
að mikill misbrestur væri á að lífeyris-
þegar nytu þeirra flokkabreytinga, er
gerðar væru á fyrri störfum þeirra.
Síðastliðið vor endurvöktu nokkrir
ungir áhugasamir menn Iþróttafélag
símamanna, nú Iþróttafélag Pósts &
Síma. Komið var á æfingum í hand-
knattleik og knattspyrnu. Félagið tók
þátt í firmakeppni K. S. í. í knatt-
spyrnu, þar sem það vann sér rétt til
að leika í 1. deild firmaliða næsta sumar.
Einnig tók það þátt í firmakeppni H.
Iv. R. R. i handknattleik og stóð sig
þar með prýði.
27. þing Randalags starfsmanna ríkis
og bæja var haldið i Súlnasal Hótel
Sögu í Reykjavík dagana 21. til 24. júní
s.l. Þingið sátu 15 fulltrúar frá F. I. S.
Umra'ður á þinginu snerust að mestu
um starfsmat og þau undirbúningsverk,
talsímakvenna í Hveragerði, sem leit-sem að því hafa verið unnin.
uðu aðstoðar f elagsins. Niðurstöður þess
máls urðu þær, að samið var um nýja
verðskrá og að stúlkurnar fengju leið-
réttingu á launagreiðslum aftur í tím-
ann, samtals um 120 þúsund kr.
Á starfsárinu voru haldnir 30 fundir
í framkvæmdastjórn og 6 í Félagsráði,
auk annarra funda, sem félagsstjórnin
átti með ýmsum aðilum. Fundir í Starfs-
mannaráði voru 25.
SÍMABLAÐIÐ